26.8.2024 | 09:43
Mót-15. Mosó. 19. ágúst.
Gamalt máltæki segir "Þegar kötturinn er úti leika mýsnar sér". Forystusauður mótaraðarinnar brá sér af landi og þá notuðu mýsnar tækifærið og styttu golfhringinn um helming, spiluðu aðeins fyrri níu holurnar.
Ástæðan var nú samt ærin því spilaaðstæður þennan mánudaginn voru afar krefjandi, hávaðarok og bolar héldust vart á tíum og spilarar flýttu sér að merkja bolta á flötum áður en hann rúllaði aftur af stað, eins og gerðist í einhverjum tilvikum.
Skorið var enda afar dapurt á heildina litið en þó voru tveir spilarar af átta sem komu inn á hreint ótrúlega góðu skori miðað við þessar aðstæður. Tommi skilaði 16 punktum í hús og var efstur og Hanna var á 15 punktum og paraði þar af hina löngu 5 holu. Vel gert Hanna.
Tveir skrifstofu bráðabanar voru haldnir, Jói Fel tók Tóta í slag um 4 sætið en síðan var botnbaráttuslagur á milli Haffa og Eggerts sem málarinn hafði hafði betur. Eggert var ekki mjög sáttur við eigin spilamennsku og sagðist hættur að spila golf! Reyndar í fjórða skiptið í sumra að einhverra sögn :D
Menn lenda í ýmsum þrautum á golfvellinum eins og þessi mynd sýnir, en þar er Haffi að taka annað högg á 6. braut hvar boltinn sat fastur upp í runna.
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 68408
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.