16.6.2025 | 10:12
Mót-2. Mosó. 19. maí, 2025.
Önnur keppni sumarsins fór fram í dandalablíðu 19. maí en elstu menn muna ekki aðra eins veðurlíðu í maí á Íslandi frá landnámsöld. Vellinum hafði verið snúið og hófust leikar á 10. Holu. Veðrið og viðsnúningurinn fór misjafnlega í spilara, sumir þornuðu upp og fengu sólsting en öðrum óx ásmegin. Engum þó meira en Viktori sem er enda nýkomin úr heiðríkjunni a Spáni og kann vel við sig við svona aðstæður. Skipti engum togum að hann hesthúsaði 45 stigum á hringnum (23 á fyrri og 22 á seinni). Viktor burstaði keppnina annan mánudaginn í röð og hefur tekið afgerandi forystu á mótaröðinni. Ljóst er að aðrir spilarar þurfa að fara að grafa djúpt eftir frammistöðum til að halda í við kappann.
Eggert og Halli náðu einnig fínum hringjum með 39 punkta þar sem Eggert hafði betur á seinni níu.
Tveimur tilþrifum var lýst í skálnum sem þóttu bæði verðskulda aukastig. Eggert sló 3ja högg sitt úr glompu á braut eitt (eins og margir hafa lent í) en skipti engum togum að hann þrumaði beint í stöngina sem annars hefði farið vel framyfir holuna og boltinn steindó og datt beint niður en stoppaði á brúninni og var hársbreidd að fara ofaní fyrir fugli. Af mörgum glæsilegum höggum Viktors þennan dag var 4ja höggið á 13. holu þó einkar glæsilegt. Hann hafði verið í smá brasi í brautarhöggunum á holunni og lenti utanbrautar (vinstra megin) í höggi tvö. Náði hann að redda sér vel í 3ja höggi og lá boltinn ofan (hægra megin) við flötina, rétt þar sem gengið er upp á 14. Teig. Skipti engum togum að hann sippaði boltanum þaðan beint í holu fyrir fugli af ca 20-25 metra færi.
Stigaskor umferðarinnar og heildarstaða í keppninni má sjá hér að neðan. Þrír spilarar hafa enn ekki mætt til leiks.
ÚRSLIT:
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 37
- Sl. sólarhring: 37
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 68445
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 14
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning