27.6.2009 | 02:14
Viðtalið: Bætaefna-Sigurður.
Tíðindamaður mótaraðarinnar (T) hringdi í einn athyglisverðasta kylfinginn á Haren-Iceland mótaröðinni og fékk hann í smáspjall. Maðurinn gengdur undir ýmsum nöfnum, en gegnir þó helst nöfnunum; Sigurður Vítamín, Siggi mágur, Sigurður majones nú eða bara Stardust (S).
T: Hvað segir kallinn?
S: Kallinn er fínn.
T: Menn hafa tekið eftir sérkennilegri samsetningu á settinu þínu, segðu okkur aðeins frá því.
S: Þetta er nú bara eins og hjá flestum kylfingum, 3 driverar, 4-5 trékylfur, 2 pútterar, 7-járn og 5 fleygjárn.
T: já sæll...þrír driverar og 2 pútterar...segðu okkur aðeins frá því.
S: ööö....sjáðu til ég nota pútterinn í löngu upphafshögginn og...
T: og...driverana ?
S: ....aðallega notaðir í kringum greenin.
T: ????
S: sjáðu til, 9° offsettin nota ég í fringe-inu...9.5° offsettin svona 5-10 mtr frá greeni og....
T: ...Taylor Made-inn með skrúfunum,,,notar þú í...?
S: ...ööö þegar greenið er bakvið hól...
T: jahá...þú ert snillingur! En segðu okkur frá pútternum...upphafshögg?
S: Maður miklu beinni með pútternum heldur nokkuri annari kylfu...3-ball-inn var algjör bylting fyrir mig og örugglega fleiri!
T: ...fleiri?
S: já, ég var upp í Básum um daginn að æfa drive-inn...með pútternum og á sama tíma var Ragga Sig með hóp af eldri borgurum, byrjendum við hliðina....og ekki gekk það vel, þ.a. hún skrapp í kaffi. Á meðan tóku gamlingjarnir að fylgjast með kallinum flengja bolta 250+,,,,með pútternum.
T: ...og?
S: Nú þegar Ragga kom tilbaka stóðu 10 ellilífeyrisþegar neglandi boltann af tí-i...með pútter...strikbeint!
T: og hvað svo?
S: Mér var hent lóðbeint út og sagt að koma aldrei aftur...."VERTU ÚTI!"...svo ég hermi það nákvæmlega.
T: Þetta svakaleg saga Sigurður og þú ert sannarlega "one to watch" á Haren-Iceland. Þakka þér kærlega fyrir spjallið þetta var mjög áhugavert og gangi þér allt í haginn.
S: Ókey...
T: Bæ Bæ
S: Bæ
T: Ókey
S: Ókey..bæ bæ.
...sónn bíbar...
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 25
- Sl. viku: 53
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.