Viðtalið: Jón Ari

Tíðindamaður mótaraðarinnar hitti einn mesta höfðingja mótaraðarinnar, Jón Ara, á Café París við Austurvöll á fallegu sumarkvöldi. Jón Ari var mættur á kaffihúsið, íklæddur leðurstuttbuxum með smekk og með grænan Týróla-hatt sem í var brún arnarfjöður. 

T: Bleeeessaður,  menn eru bara alldeilis í dressinu ?

JA: Já sæll,  þetta er þjóðbúningur Haren-Ems-héraðsins.  Ég hef það fyrir sið að kaupa þjóðbúninga allra héraða sem ég kem til og spila golf.

Við pöntum okkur drykki og með því.   Jón fær sér eiturgulan kokteil með regnhlíf og ristaðan tommustokk vafðan í bananalaufi en tíðindamaður lætur sér nægja að fá sér Irish-Coffee (sleppti samt kaffinu) og eina auma arabíska karamellu á myntubeði.  Allt mjög huggulegt.

T: Það hefur verið eftir því tekið að þú ert hættur að spila með hanska á golfmótaröðinni, einhver sérstök ástæða?

JA: Ja, eins og þú veist þá hef ég verið í trial-hóp fyrir nýja hárgelið hans Loga Geirs, The silver gel. (innsk. T:  http://thesilver.is/ ).  Svo þegar ég var að laga hárið á mér fyrir einn hringinn í Haren-Iceland þá uppgvötaði ég þvílíkan kontakt á kylfinunni með þessu geli. Þ.a. ég bara prófaði þetta og þetta svínvirkar.  Maður verður bara að passa eitt…

T: Nú hvað, meira húkk ?

JA: uuu neibb….ef maður þarf að létta á sér í miðjum hring þá verður maður að muna að nota hina hendina annars…er maður...

T: …. í vondum málum ?

JA: Já verulega…. þetta er svo gott hald.

T: Jæja, þú lofaðir mér einni góðri golfsögu…

JA: Ég var eitt sinn að veiða fyrir norðan, nánar tiltekið í Laxá í Aðaldal og var í mínu uppáhaldshyl þegar ég fæ svaka töku.  Ég berst lengi við og tekst að landa þeim gula eftir 30 mín. viðureign.

T: …?? Þeim GULA ???? Ég bað um golfsögu en ekki veiðisögu, please.

JA: Jabb, þetta er golfsaga.

T: AAAAH,  nú skil ég.  Þú hefur húkkað í risa Yellow Mellow-driverinn frá Big-Bang golf company…frábært!

JA: öööö…neibb,  þetta tengist sko Global Warming.

T: …Global what..?

JA: Sjáðu til. Global Warming hefur breytt strauminum í hafinu þ.a. GOLF-straumurinn fer nú aðra leiðir og þar meðal upp í Laxá í Aðaldal og honum fylgir mikið af Þorski….skilurðu nú….sá guli !!

T: Þetta er svakaleg saga Jón Ari og þú er sannarlega “one to Watch” á Haren-Iceland.  Takk fyrir spjallið. Hvert á annars að halda.

JA: Ætli maður skelli sér ekki í Vínbarinn og panti sér þverröntóttan kokteil með regnhlíf og bulli í nokkrum Fitness-Queen.

T: Gangi þér vel.  Ég ætla hinsvegar niður höfn og skella mér í sjóinn, það er fátt meira hressandi á sumarkvöldi í Reykjavík en að taka 2 til 3 hringi í Reykjavíkurhöfn…svo fær maður frítt handklæði og frítt far heim….með löggunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-6-b
  • 2025-6-a
  • 2025-boltar
  • 2025-5-b
  • 2025-5-a
  • 2025-4-B
  • 2025-4-A
  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 25
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband