22.7.2009 | 01:04
Haren-Iceland, mót 4
Eftir nokkra bið var fjórða mót á Haren-Iceland 2009 mótaröðinni haldið í kvöld. Spilað var í Leirunni og leikfyrirkomulag Texas skramble þar sem þrír voru saman í liði. Valið í lið eftir aldri þar sem yngri og eldri voru saman. Það kom síðan á daginn að yngri kynslóðin hafði sigur eftir nokkuð spennandi leik. Siggi vítamín, Jón Ari og Halli spiluðu samtals á tveimur undir pari vallar eða 70 slög (fjórir fuglar, tveir skollar og restin par. Gömlu mennirnir Heggi, Tommi og Haukur voru á 74 höggum (einn fugl, þrír skollar og restin par). Þetta breytir heildar stöðunni nokkuð þar sem Jón Ari hefur tekið örugga forustu. Heildar staðan er eftirfarandi:
Jón Ari 20 stig
Heggi, Halli og Siggi 17 stig
Tommi 14,5 stig og klúbbmeistarinn rekur lestina með 7,5 stig. Það er ljóst að klúbbmeistarinn kemur til með að ráða leikfyrirkomulagi í næsta móti ásamt því að velja sér makker.
Þess má geta að Sigurður Vítamín átti skot dagsins sem var 70 metra pútt fyrir erni. Boltinn fór í stöngina og endaði um 20 cm frá. Hann var síðan ekki í vandræðum að ná fuglinum.
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 25
- Sl. viku: 53
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.