19.8.2009 | 01:06
Viðtalið: H.Elíasson, Haren-meistari 2005
Tíðindamaður mótaraðarinnar mælti sér mót við H.Elíasson og fyrsta sigurvegara Haren-mótaraðarinnar (2005), í bílskúr snillingsins í Safamýrinni. Þegar tíðindamanninn bar að garði var H.Elíasson að dytta að settinu og þvo golfkúlurnar sínar, með þeim hætti að stinga þeim upp í sig, velta þeim aðeins til þannig að þegar hann spýtti þeim út úr sér komu þær alveg hvítþvegnir tilbaka, hreinni en úr nokkurri golfboltavél.
"Er þetta hollt" spurði Tíðindamaðurinn.
"Á misjöfnu þrífast börnin best" svaraði H.Elíasson.
Áður en tíðindamaður hóf spurningaflóðið bauð H.Elíasson í mat. Tíðindamaður hugasaði sér gott til glóðarinnar enda Frau Eliasson annálaður snilldarkokkur en annað átti nú eftir að koma á daginn.
H.Elíasson byrjaði á því að opna golfpokann og reiða fram veitingarnar; Þarna var snitzelbiti frá Haren 2005, hálfur lunc-pakk frá Haren 2007 sem innihélt epli, hálfa samloku og mars súkkulaði, Tomat-suppe í krukku undan "Wiskey-in-a-jar" frá Jóni Ara. Þessu var öllu skolað niður með tveimur hálfum Slotz-bjórum í plastflösku. Ekki laust við að, aðeins vantaði uppá gosið í bjórunum.
"Ég veit ekkert verra en að henda mat" sagði snillingurinn!
Tíðindamaðurinn ákvað að fá sér Tomat-suppe en fann fljótlega að hún var salt-lítil.
"Kallinn hlýtur að eiga saltkorn" spurði Tíðindamaðurinn enda er H.Elíasson þekktur fyrir salt-neyslu sína, saltar t.d. saltfisk þegar Frau Eliasson býður uppá hann á þriðjudögum.
"Jú jú, teygðu bara aftur og fáðu þér úr 1 Tonna tröllapokanum sem ég keypti af vegagerðinni rétt áður en kreppann skall á. "Bestu kaup sem ég hef gert"!
Að máltíð lokinni var boðið uppá súkkulaði-mola úr konfekt-kassa með mynd af Kristjáni heitnum Eldjárn og frú Halldóru og var því skolað niður með Ís-cola sem virtist vera nóg til af í bílskúrnum (það skal tekið fram að þetta fylgti með í kaupunum á Safamýrinni). Með þessu reyktum við birdie-vindla af bestu sort frá Haren-2005.
Það voru sorglega margir eftir í Ten-pakkinum.
T: "Jæja Mr. H.Eliasson, golfið hefur nú kannski ekki verið að gera sig eftir sterka byrjun á Haren-Iceland túrnum"?
H.Eliasson "Nei, en það er skýring á því".
T: "I´m all ears".
H.Eliasson: "Sko sjáðu til, það er alltof kalt, kroppurinn er alltof kaldur, alltof loftkalt".
T: "Ok...og...?"
H.Eliasson: "Eftir að ég að ég byrjaði í Ál-fabrikkunni þá vil ég hafa svona ca. þrr....."
T: "Hey þú getur ekki beðið um 30 gráður á klakanum"
H.Elíasson: "Nei, ég vil hafa svona 3000 gráður!"
T: "Þá verður þú að flytja"
H.Elíasson: "ég er einmitt að spá í það"
T: "nú hvert......Samóa?"
H.Elíasson: "nei, sun...."
T: "Aaah...Sun City"
H.Elíasson: "nei til sólarinnar og mamma kemur með, hún getur setið allt árið útá svölum"
T: "Takk fyrir mig og hvenær fer leið 3 uppí Breiðholt?"
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 25
- Sl. viku: 53
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.