Færsluflokkur: Íþróttir

16. Mót. -Mosó 17. ágúst-

Það voru 11 ferskir og fallegir leikmenn mættir í 16. mót sumarsins. Leikið var við frábærar aðstæður í Mosanum. Hægviðri, hlýtt og frábærar vallaraðstæður sem gátu boðið uppá gott skor leikmanna. Enda fór svo að hinn stabíli reynslubolti, Hergeir Elíasson lét ekki bjóða sér svona aðstæður tvisvar og nældi sér í 39 pkt. með því að leika á 81 höggi. Vel gert Heggi og annar sigur sumarsins í húsi hjá kappanum.

Staðan á toppnum breyttist ekki eftir keppni kvöldsins. TT situr þar sem fastast þrátt fyrir að vera reykspóla hringveginn þessa dagana. Sig.Egill náði ekki að nýta tækifærið og minnka bilið. Hinsvegar drógu næstu menn aðeins á forystusauðina. Það má segja að mikið kapphlaup sé hafið um 3ja sætið.

Nú eru tvö mánudagsmót eftir á þessu keppnistímabili. Toppmæting hefur verið í sumar. Jói hefur mætt í öll mótin til þessa og nýtur þess að geta tekið vel til í sínu skori. Tíðindamaður lítur svo á að mótið sé galopið og úrslit munu ekki ráðast fyrr en síðasta pútt hefur verið slegið.

 

 

ÚRSLIT:

SætiNafnPkt.Bráðab.
1Hergeir3981 högg !
2Jói36 
3Binni35 
4Hanna33 
5Haukur32Last 9. 17 p.
6Gauti32Last 9. 16 p.
7Haffi31 
8Sig.Egill30 
9Jón Ari29 
10Tóti27 
11Viktor23 

 

STAÐAN:

SætiNafn11.mai18.maí25.maí1.jún8.jún15.jún22.jún29.jún6.júl13.júl20.júl27.JÚL3.ágú7.ágú10.ágú17.ágúSamtals11 Bestu
1Tryggvi5440406046445860 245480488060 748644
2Sig.Egill604228 606080484446447260  40684616
3Haukur4838508054 52423840606236643446744598
4Viktor42346064504848385060 64 583034680582
5Hergeir50503266405466446038365038  60684578
6Tóti462854 2830605448324254 665436632574
7Jói30324846323656305448384854624854716556
8Haffi 364448444662  36 5642604642562526
9Eggert32 34523438545046444058 5438 574508
10Gauti  305030326436 34465246525044566506
11Tommi36483862 4250   3446407236 504504
12Hanna   4442  404030506044 4248440440
13Halli3854 5648 7228 4248   44 430430
14Ingvar34244258 284632 50  50 32 396396
15Jón Ari446026   4446 54 66   38378378
16Binni 2636723834 34 26    4050356356
17Ragnar404422543640          236236
18Reynir 3046  50  4228      196196
19Beggi             5628 8484
20Óli 4624             7070

 

 


15. Mót. -Mosó 10. ágúst-

Það voru 14 mættir í Mosó í gærkvöldi til að berjast um stigin dýrmætu. Veðrið var sæmilegt a.m.k. framan af. Rigningarsuddi og svo hvessti þegar á leið. Hlíðavöllur var í toppstandi enda Íslandsmótinu nýlokið. HOS-mótaröðin fékk að kljást við sömu pinnastaðsetningar og voru á lokadegi Íslandsmótsins. Flatirnar hafa sjálfsagt aldrei verið betri, rennisléttar og hraðar. Karginn var hærra sleginn og þar af leiðandi erfiðar að slá úr honum.

Annað mótið í röð og það þriðja af síðustu fjórum sigrar Tryggvi Tryggva. Þessi fyrrum HOS-meistari hefur heldur betur sett í fluggírinn núna síðsumars og skilar hverju meistaraskorinu inn á fætur öðru. Að vísu fékk TT dágóða keppni um efsta sætið frá Tóta og réðust úrslitin í hörkuspennandi bráðabana á 19ándu holu. Talandi um bráðabana þá voru leiknir fimm slíkir og er ljóst að menn eru gefa allt í þetta á síðustu metrunum.

Staðan á toppnum í mótinu er að skýrast. Það stefnir í tveggja hesta hlaup um deildarmeistaratitilinn milli TT og Sigga nema eitthvað stórkostlegt gerist hjá næstu mönnum fyrir neðan. Staðan fyrir neðan er reyndar mjög þétt. Mjög góð mæting hefur verið í sumar og rekur Tíðindamann ekki minni til að fleiri hafi náð að skila inn ellefu mótum sem telja en þetta árið. Það er frábært og eiga leikmenn heiður skilið fyrir það.

Það eru þrjú mánudagsmót eftir áður en kemur að lokaballinu þar sem allt mun ráðast. 

Nú er komin tími til að girða sig í brók cool.

 

ÚRSLIT:

SætiNafnPkt.Bráðab.
1Tryggvi37Last 9. 19 p.
2Tóti37Last 9. 18 p.
3Gauti34 
4Jói33Last 9. 18 p.
5Haffi33Last 9. 16 p.
6Halli30 
7Hanna28Last 6. 9 p.
8Binni28Last 6. 7 p.
9Eggert27Last 6. 10 p.
10Tommi27Last 6. 8 p.
11Haukur26 
12Ingvar23Last 9. 15 p.
13Viktor23Last 9. 12 p.
14Beggi18 

 

STAÐAN:

SætiNafn11.mai18.maí25.maí1.jún8.jún15.jún22.jún29.jún6.júl13.júl20.júl27.JÚL3.ágú7.ágú10.ágúSamtals11 Bestu
1Tryggvi5440406046445860   245480488060748644
2Sig.Egill604228 606080484446447260  644616
3Haukur4838508054 524238406062366434698590
4Viktor42346064504848385060 64 5830646582
5Hergeir50503266405466446038365038  624556
6Tóti462854 2830605448324254 6654596540
7Jói303248463236563054483848546248662538
8Haffi 364448444662  36 56426046520520
9Eggert32 34523438545046444058 5438574508
10Tommi36483862 4250   3446407236504504
11Gauti  305030326436 344652465250522492
12Halli3854 5648 7228 4248   44430430
13Ingvar34244258 284632 50  50 32396396
14Hanna   4442  404030506044 42392392
15Jón Ari446026   4446 54 66   340340
16Binni 2636723834 34 26    40306306
17Ragnar404422543640         236236
18Reynir 3046  50  4228     196196
19Beggi             56288484
20Óli 4624            7070

14. Mót. - Öndverðarnes FRAM OPEN 7. ágúst, RISAMÓT-

FRAM OPEN var vettvangur 14.móts HOS-mótaraðarinnar. Leikið var velli Múraranna í Öndverðarnesi. Aðstæður voru krefjandi, nokkur vindur og dembuskúrir af og til. Í heildina mættu 60 golfarar til leiks og átti HOS-mótaröðin 10 leikmenn þeirra á meðal. Vilbergur Flóvent mætti loks til leiks eftir að hafa tekið sér alllangt hlé frá keppnisgolfi. Kappinn er búinn að vera í æfingabúðum á Hellishólum í allt sumar og getur Tíðindamaður staðfest að Beggi er ansi efnilegur og ætlar að taka þetta alvarlega á næsta ári. Að sjálfsögðu taldi þetta sem RISAmót á HOS-mótaröðinni og því var um feit stig að slást. Leikið var í skugga COVID-19 og leikreglur samkvæmt leiðbeiningum sóttvarnarlæknis. 

Skorið var í öllum regnboganslitum en sigurvegarinn skar sig þó vel úr hópnum. Það var enginn annar en Tryggvi T. sem kom inná stórkostlegum 42 pkt. Þetta var hraustlega gert hjá TT en dugði þó einungis í annað sætið í FRAM OPEN. Tommi krækti i 38 pkt. og skilaði það honum 3ja sætinu í FRAM OPEN.

Fleiri verðalaun féllu HOS -mönnum í skaut. Gauti tók nándarverðlaun 5.holu (308 cm frá holu) og það undir mikilli pressu fjölda áhorfenda að sögn heimildarmanns. Beggi tók svo nándaverðlaunin á 18. holu (287 cm frá holu) undir lítilli pressu.

Þau tíðindi hafa nú gerst að sætaskipti hafa átt sér á toppnum. TT er sestur í bílstjórasætið, albúinn að reykspóla í jakkanum með bikarinn undir hönd. Sig.Egill ákvað að hlýða Víði og mætti ekki til leiks en ákvað þess í stað að aka vestur á firði. Það gæti reynst dýrkeypt á endasprettinum. Samkvæmt kollega Tíðindamannsins, blaðamanni Bæjarins Bezta á Ísafirði,  þá er Vitamínið komið með hrikalegt tak í bakið eftir ferðalagið. Er hann þá komin í hóp með Mótastjóranum sem sat heima í dag með tak í bakinu. Veit Reynir af þessu ? cool

 

ÚRSLIT:

SætiNafnPkt.Bráðab.Sæti í FRAM OPEN
1Tryggvi42 2
2Tommi38 3
3Tóti36 8
4Haukur32 16
5Jói29 28
6Haffi28Last 9.32
7Viktor28 33
8Beggi27Last 934
9Eggert27 37
10Gauti22 50

 

STAÐAN:

SætiNafn11.mai18.maí25.maí1.jún8.jún15.jún22.jún29.jún6.júl13.júl20.júl27.JÚL3.ágú7.ágúSamtals11 Bestu
1Tryggvi5440406046445860 2454804880688624
2Sig.Egill604228 606080484446447260 644616
3Haukur4838508054 5242384060623664664590
4Viktor42346064504848385060 64 58616582
5Hergeir50503266405466446038365038 624556
6Jói3032484632365630544838485462614522
7Tóti462854 2830605448324254 66542514
8Eggert32 34523438545046444058 54536504
9Haffi 364448444662  36 564260474474
10Gauti  305030326436 3446524652472472
11Tommi36483862 4250   34464072468468
12Halli3854 5648 7228 4248   386386
13Ingvar34244258 284632 50  50 364364
14Hanna   4442  404030506044 350350
15Jón Ari446026   4446 54 66  340340
16Binni 2636723834 34 26    266266
17Ragnar404422543640        236236
18Reynir 3046  50  4228    196196
19Óli 4624           7070
20Beggi             565656

 


13. Mót. -Mosó 3. ágúst-

Það voru 10 mættir á frídegi verzlunarmanna og léku golf við topp aðstæður á Hlíðavelli. Veðrið gat ekki verið betra til golfleiks, skýjað, sæmilega hlýtt framanaf og hægviðri. Völlurinn í sínu besta ástandi enda framundan Íslandsmót í golfi.

Flestir létu þetta tækifæri ekki fram hjá sér fara og léku mjög gott golf og skiluðu inn fínu skori. Spennan var mikil á 19ándu holu og skrifstofubráðabani allsráðandi um flest sæti.

Það var engin annar en heitasti leikmaður sumarsins, Sigurður Ás, Majónes og Vítamín sem kláraði en eitt mótið með glæstum sigri eftir að hafa leikið afburðarvel á seinni 9 holum vallarins. Ekki í fyrsta skipti í sumar sem seinni 9 holurnar skila Sigga sigri. Þessi kappi kann sannarlega á þennan leik.

Tíðindamaðurinn ákvað að reyna kenningu sem hefur verið sett fram í sumar. Kenningin gengur semsagt út á það að sá sem leikur með Ingvari í holli muni standa uppi sem sigurvegari kvöldsins. Ekki gekk þessi kenning eftir og til að bæta gráu ofan á svart þá gerði Tíðindamaðurinn alveg uppá bak og skilaði að lokum inn "all time low" punktaskori. Ekki er þó hægt að kenna Ingvari um slakan árangur meðspilara síns enda lék Ingvar sjálfur flott golf og skilaði sér í gott sæti. Hugsanlega hefði hann getað gert enn betur ef hugurinn hefði verið "all in", því að meðan á leik stóð var kappinn ansi upptekin í símanum við að selja búslóðina sína. Tókst honum t.d. að selja forláta hillusamstæðu úr IKEA, þurrkarann og þvottavélina á meðan holurnar 18 voru leiknar. Þetta er ákveðið afrek og verður seint leikið eftir.

Næsta mót samkvæmt dagskrá er á föstudaginn kemur, en þá verður hið árlega FRAM OPEN. Að sjálfsögðu verður slegið í RISA-mót að því tilefni. 19 manns hafa tekið þátt HOS-mótaröðinni og eru því gjaldgengir til stigasöfnunar. Skorið í FRAM OPEN, eins og það birtist á golf.is, mun ráða röðun í sæti á HOS-mótaröðinni.

 

 

ÚRSLIT:

SætiNafnPkt.Bráðab.
1Sig.Egill36Last 9. 23 p.
2Jói36Last 9. 19 p.
3Ingvar35Last 9. 22 p.
4Tryggvi35Last 9. 19 p.
5Gauti35Last 9. 17 p.
6Hanna33 
7Haffi32Last 9. 23 p.
8Tommi32Last 9. 15 p.
9Hergeir31 
10Haukur20LAST !

 

STAÐAN:

SætiNafn11.mai18.maí25.maí1.jún8.jún15.jún22.jún29.jún6.júl13.júl20.júl27.JÚL3.ágúSamtals11 Bestu
1Sig.Egill604228 606080484446447260644616
2Tryggvi5440406046445860 24548048608584
3Haukur4838508054 52423840606236600564
4Viktor42346064504848385060 64 558558
5Hergeir50503266405466446038365038624556
6Jói30324846323656305448384854552490
7Eggert32 34523438545046444058 482482
8Tóti462854 2830605448324254 476476
9Gauti  305030326436 34465246420420
10Haffi 364448444662  36 5642414414
11Tommi36483862 4250   344640396396
12Halli3854 5648 7228 4248  386386
13Ingvar34244258 284632 50  50364364
14Hanna   4442  404030506044350350
15Jón Ari446026   4446 54 66 340340
16Binni 2636723834 34 26   266266
17Ragnar404422543640       236236
18Reynir 3046  50  4228   196196
19Óli 4624          7070

12. Mót. - Nesvöllur 27. júlí, RISAMÓT-

Það hvítfryssaði á Faxaflóanum þegar 13 leikmenn HOS-mótaraðarinnar mættu á Nesvöllinn í gærkvöldi. Tilefnið var ærið, RISA-mót var framundan. Aðstæður semsagt nokkuð erfiðar, stífur vindur af norð-vestri en glampandi sól og ca. 12 stiga hiti. Íslenskt sumar í sinni tærustu mynd.

Nesvöllurinn stendur alltaf fyrir sínu. Fínasta stand er á vellinum og grínin flott, nema kannski 9unda sem var pínu hrátt. Tíðindamanni hefur alltaf þótt Nesvöllurinn vera sýnd veiði en langt frá því að vera gefin. Hann er svona úlfur í sauðagæru, lítur meinleysislega út en svo poppa hætturnar upp hingað og þangað þegar menn þræða sig um völlinn.

Talandi um úlf í tíglóttri peysu þá var það engin annar en Tryggvi Tryggva sem sigraði RISA-mótið að þessu sinni en með naumindum þó þar sem heitasti prinsinn á mótaröðinni, Sig.Egill, kom inná sama skori og úr varð blóðugur skrifstofubráðabani þar sem Tryggvi hafði betur. TT er slóttugur sem úlfur og veit nákvæmlega hvenær taka skal slemmuna eða reykspóla í burt þegar ekkert er að hafa. Frábærlega að verki staðið TT og flott skor hjá ykkur Sigga við krefjandi aðstæður.

Mikið var um jafnglími í RISAmótinu og þurfti að útkljá mörg einvígin á 19ándu holu.

Nú er mótið komið á nýjan stað. 12 mótum lokið og tveir spilarar byrjaðir að henda út skori. Sex aðrir kláruðu svo sitt ellefta mót. Stóru tíðindin eru að Sig.Egill er sestur á toppinn og hefur sett nýtt viðmið við aðra að ná.

Nú fer pakkinn alldeilis að þéttast og hver sigur skiptir gríðarlegu máli. Stutt er í næsta RISA-mót þegar FRAM-open verður leikið. Þetta verður svakalegt í haust cool.

 

ÚRSLIT:

SætiNafnPkt.Bráðab.
1Tryggvi37Last 9. 21p
2Sig.Egill37Last 9. 17p
3Jón Ari36 
4Viktor34Last 9. 19p
5Haukur34Last 9. 17p
6Hanna31 
7Eggert30Last 9. 16p
8Haffi30Last 9. 15p
9Tóti30Last 6. 10p
10Gauti30Last 6. 7p
11Hergeir29 
12Jói28 
13Tommi22 

 

STAÐAN:

SætiNafn11.mai18.maí25.maí1.jún8.jún15.jún22.jún29.jún6.júl13.júl20.júl27.júLSamtals11 Bestu
1Sig.Egill604228 6060804844464472584584
2Haukur4838508054 524238406062564564
3Tryggvi5440406046445860 245480560560
4Viktor42346064504848385060 64558558
5Hergeir505032664054664460383650586554
6Eggert32 34523438545046444058482482
7Tóti462854 2830605448324254476476
8Jói303248463236563054483848498468
9Halli3854 5648 7228 4248 386386
10Gauti  305030326436 344652374374
11Haffi 364448444662  36 56372372
12Tommi36483862 4250   3446356356
13Jón Ari446026   4446 54 66340340
14Ingvar34244258 284632 50  314314
15Hanna   4442  4040305060306306
16Binni 2636723834 34 26  266266
17Ragnar404422543640      236236
18Reynir 3046  50  4228  196196
19Óli 4624         7070

 

 

 


11. Mót. -Hveragerði 20. júlí-

Það voru 11 mættir í 11.mót sumarsins sem haldið var á hinum fallega Gufudalsvelli í Hveragerði. Aðstæður voru frábærar. Rjómablíða og hlýtt. Völlurinn í flottu ásigkomulagi og umhverfið engu líkt. Ef gluggað er í annála þá kemur í ljós að síðast þegar HOS-lestin á ferðinni í Hveragerði þá var það árið 2016. Þá sigraði hinn snjalli spilari TT. Í sögustund eftir það mót kom í ljós að TT hafði verið sveitapiltur þarna í Gufudalnum og komið að uppbyggingu vallarins. Það kemur því ekki á óvart að TT skili inn góðu skori á þessum velli þar sem hann þekkir hverja þúfu.

Það dugði þó ekki til í gærkvöldi þar sem Mister Mosó var mættur á stuttbuxum og sportsokkum og nældi sér í 35 pkt. og sinn annan sigur á mótaröðinni þetta sumarið. Í örstuttu spjalli við Tíðindamanninn sagði Misterinn að hann hafi undirbúið sig óvenjuvel fyrir mótið með því að taka sér frí frá vinnu og liggja í sólbaði og heitum potti á ótilteknum stað á suðurlandinu til að ná góðri tengingu við svæðið.

Nú hefur mótaröðin náð á þann stað að 11 mót eru búin og tveir leikmenn klárað þau öll, Hergeir og Jói. Hergeir situr í efsta sætinu og hefur sett viðmið fyrir aðra að ná. Nú byrja þeir félagar að taka til í skori sínu og henda út hringjum. 

Tíðindamaður spáir mikilli stöðuþéttingu eftir því sem á líður. Það lítur út fyrir þetta verði mest spennandi mótaröð frá upphafi og margir verða tilkallaðir en eins og alltaf aðeins einn útvalinn.

 

ÚRSLIT:

SætiNafnPkt.Bráðab.
1Haukur35 
2Tryggvi34Last 9. 20p
3Hanna34Last 9. 16p
4Halli33 
5Gauti32 
6Sig.Egill31Last 9. 22p
7Tóti31Last 9. 17p
8Eggert31Last 9. 16p
9Jói30 
10Hergeir28 
11Tommi24 

 

STAÐAN:

SætiNafn11.mai18.maí25.maí1.jún8.jún15.jún22.jún29.jún6.júl13.jún20.júlSamtals
1Hergeir5050326640546644603836536
2Sig.Egill604228 60608048444644512
3Haukur4838508054 5242384060502
4Viktor42346064504848385060 494
5Tryggvi5440406046445860 2454480
6Jói3032484632365630544838450
7Eggert32 345234385450464440424
8Tóti462854 28306054483242422
9Halli3854 5648 7228 4248386
10Gauti  305030326436 3446322
11Haffi 364448444662  36 316
12Ingvar34244258 284632 50 314
13Tommi36483862 4250   34310
14Jón Ari446026   4446 54 274
15Binni 2636723834 34 26 266
16Hanna   4442  40403050246
17Ragnar404422543640     236
18Reynir 3046  50  4228 196
19Óli 4624        70

10. Mót. -Mosó 13. júlí-

Það var valin maður í hverju rúmi þegar 10.mótið fór fram við kjöraðstæður á Hlíðavelli. Að þessu sögðu reyndist "bara" pláss fyrir 16 en ekki 17 spilara sem höfðu skráð sig til leiks. Hinn snjalli mótastjóri og bridsspilari ákvað skv. fyrirfram gefnum líkum, að skilja einn eftir við skráningu í þeirri vissu að einhver myndi "beila" á mánudaginn. Auðvitað gekk þetta plan ekki upp ! Eftir sat valmennið Raggi með sárt ennið og Mótastjórinn ekki lengur á jólakortalistanum cool. Við látum þetta ekki gerast aftur.

Skor mánudagsins var allgott hjá langflestum og miklir skrifstofubráðabanar háðir yfir einum svellköldum í lokin. Því var fleygt að TT hafi leiðst lítil fjölmiðlaumfjöllun um sig og því ákveðið að slaufa leik á 9undu holu til að taka duglegt reykspól í burtu svo eftir væri tekið.

Það var engin annar en hinn eitursvali Viktor sem sigraði þetta mánudagskvöldið og hefur þá sigrað í tveimur mótum á árinu. Bísna vel gert hjá Viktori sem nartar nú í sigggróna hæla forystusauðsins H.Elíassonar. Ekkert sérstaklega geðslegt að vera svona nærri toppnum surprised.

Næsta mót verður leikið á útivelli, nánar tiltekið á Nesvellinum góða, öðrum heimavelli litla Málarans. Þeir sem hafa ekki fengið nóg af kríunni munu fá nóg af henni þar.  Að vísu segir Málarinn að krían á Nesinu sé miklu spakari en villingarnir sem halda til á Hlíðavelli. Hver trúir því?

Það kemur allt í ljós næsta mánudag.  

 

ÚRSLIT:

SætiNafnPkt.Bráðab.
1Viktor39 
2Jón Ari37 
3Ingvar36 
4Jói35Last 9. 20p
5Sig.Egill35Last 9. 18p
6Eggert34Last 9. 18p
7Halli34Last 9. 17p
8Haukur32 
9Hergeir31Last 9. 19p
10Haffi31Last 9. 16p
11Gauti30Last 6. 14p
12Tóti30Last 6. 10p
13Hanna29 
14Reynir26 
15Binni24 
16Tryggvi10Front 9. Reykspól

 

STAÐAN:

SætiNafn11.mai18.maí25.maí1.jún8.jún15,jún22.jún29.JÚN6.JÚL13.JÚLSamtals
1Hergeir50503266405466446038500
2Viktor42346064504848385060494
3Sig.Egill604228 606080484446468
4Haukur4838508054 52423840442
5Tryggvi5440406046445860 24426
6Jói30324846323656305448412
7Eggert32 3452343854504644384
8Tóti462854 283060544832380
9Halli3854 5648 7228 42338
10Haffi 364448444662  36316
11Ingvar34244258 284632 50314
12-13Tommi36483862 4250   276
12-13Gauti  305030326436 34276
14Jón Ari446026   4446 54274
15Binni 2636723834 34 26266
16Ragnar404422543640    236
17-18Reynir 3046  50  4228196
17-18Hanna   4442  404030196
19Óli 4624       70

9. Mót. -Mosó 6. júlí-

Það voru 9 mættir í 9unda mót sumarsins. Það er talsvert færra en verið hefur í sumar. Örugglega margir lagðir af stað í ferðalög og annað fjör sem fylgir árstímanum. Það kemur þó ekki fyrir að mótaröð þeirra bestu haldi áfram eins og ekkert hafi í skorist.

Það var rjómablíða í Leirvognum og ekkert til fyrirstöðu til að skora vel. Völlurinn í toppstandi enda meistarmót klúbbsins ný-yfirstaðið. Það urðu því talsverð vonbrigði þegar mótið var gert upp á nítjándu holu hversu skorið var dapurt nema hjá einum spilara og sá var ekkert að tvínóna við þetta.  Margfaldur meistari mótaraðarinnar, Hergeir Elíasson tók sig til og sló 79 högg og setti í 40 punkta. Þetta er ekkert annað en snilldarspilamennska og kappinn er sjóðheitur um þessar mundir.

 

Með þessu sigri treysti Hergeir stöðu sína á toppnum. Það er í raun ótrúlegt að þetta hafi verið fyrsti sigur hans í sumar þar sen spilamennskan hefur verið afbragð. Hann hefur verið mjög stabíll og sjaldan verið utan topp 5 á mánudögum og það telur grimmt á langri mótaröð. Gamli maraþonhlauparinn, með danskar Prins í rassvasanum, þekkir það laughing.

Eitt er þó víst; að hart verður barist...allt til enda. 

 

ÚRSLIT:

SætiNafnPkt.Bráðab.
1Hergeir4079 högg !!
2Jói32 
3Viktor29Last 9. 16 p.
4Tóti29Last 9. 14 p.
5Eggert28 
6Sig.Egill26 
7Reynir25 
8Hanna23 
9Haukur22 

 

STAÐAN:

SætiNafn11.mai18.maí25.maí1.jún8.jún15,jún22.jún29.JÚN6.JÚLSamtals
1Hergeir505032664054664460462
2Viktor423460645048483850434
3Sig.Egill604228 6060804844422
4-5Tryggvi5440406046445860 402
4-5Haukur4838508054 524238402
6Jói303248463236563054364
7Tóti462854 2830605448348
8Eggert32 34523438545046340
9Halli3854 5648 7228 296
10Haffi 364448444662  280
11Tommi36483862 4250  276
12Ingvar34244258 284632 264
13Gauti  305030326436 242
14Binni 2636723834 34 240
15Ragnar404422543640   236
16Jón Ari446026   4446 220
17Reynir 3046  50  42168
18Hanna   4442  4040166
19Óli 4624      70

 


8. Mót. -Mosó 29. júní-

Enn og aftur var góð mæting á mánudagsmótaröðina og hart barist um stigin. Blíðskaparveður var í Mosanum og völlurinn í frábæru standi enda Meistaramótsvika að hefjast. Samkvæmt vallarstjóra þá hefur grasspretta verið allra mesta og besta móti þetta sumarið. Því fá menn að kynnast ef þeir lenda utan brauta. Karginn er sérstaklega þéttur þetta árið.

Karginn var ekkert að þvælast fyrir toppspilurunm sem allir eru þekktir fyrir að slá strikbeint og gætu þess vegna leikið á inniskóm. 

Maður kvöldsins var TT sem skilaði 39 pkt í hús á stuttbuxum í hitabylgjunni. Þessi fyrrum HOS-meistari er búinn að læða sér hægt og rólega uppá toppinn við hlið kartöflubóndans úr Safamýri.

Af öðrum spilurum sem minntu á sig má nefna Tóta sem skilaði inn flottu skori og sama má segja um málarann. Tíðindamaður fylgdi málaranum um völlinn og getur staðfest að sjaldan hafi jafnmörg færi á fugla-skori verið jafn illa nýtt. Alltaf of stuttur, litli málarinncool .

Spennan heldur áfram að magnast og er þétt setið á toppnum og í kringum hann.

 

ÚRSLIT:

SætiNafnPkt.Bráðab.
1Tryggvi39 
2Tóti37 
3Eggert35 
4Sig.Egill34Last 9. 19 p.
5Jón Ari34 
6Hergeir33Last 9. 21 p.
7Haukur33 
8Hanna32 
9Viktor31 
10Gauti30 
11Binni29 
12Ingvar28 
13Jói27Last 9. 14 p
14Halli27

 

STAÐAN:

SætiNafn11.mai18.maí25.maí1.jún8.jún15,jún22.jún29.JÚNSamtals
1-2Hergeir5050326640546644402
1-2Tryggvi5440406046445860402
3Viktor4234606450484838384
4Sig.Egill604228 60608048378
5Haukur4838508054 5242364
6Jói3032484632365630310
7Tóti462854 28306054300
8Halli3854 5648 7228296
9Eggert32 345234385450294
10Haffi 364448444662 280
11Tommi36483862 4250 276
12Ingvar34244258 284632264
13Gauti  305030326436242
14Binni 2636723834 34240
15Ragnar404422543640  236
16Jón Ari446026   4446220
17-18Reynir 3046  50  126
17-18Hanna   4442  40126
19Óli 4624     70

 


7. Mót. - Brautarholt 22.júní, RISAMÓT-

Það voru 14 kappar mættir í annað risamót árisins sem var haldið á hinum frábæra Brautarholtsvelli á Kjalarnesi. Veðrið var hið ágætasta og lítill vindur sem annars getur spilað stóra rullu á þessum velli.  

Almennt var skorið í mótinu í lakari kantinum og aðeins fjórir spilarar náðu yfir 30 punktum. Það kom þó ekki veg fyrir það að einn spilari náði líklega að setja mótsmet þegar heilum 45 pkt. var skilað í kassann á 19ándu holu. Það er náttúrulega heitasti prinsinn á mótaröðinni, Sigurður Egill, sem skutlar í svona tölur. Þetta var bæði hraustlega og vel gert Sigurður og innilega til lukku með árangurinn sem er engu líkur þessa dagana.  Kappinn er búinn að vinna 4 mót af þeim 6 sem hann hefur tekið þátt í. Það er örugglega líka met.

Aðrir góðir þetta kvöld voru fyrrum meistarar Halli og Hergeir sem skiluðu inn flottu skori. Þá náði nýliðinn sem er þó búinn að vera á póstlistanum frá upphafi, Dr. Gauti, rosaflottu skori. Leiða menn líkum að því að þarna hafi konan hans spilað stórt hlutverk, þar sem Kjalarnesið eru hennar æskuslóðir og ekki ólíklegt að þarna hafi þau leiðst um Brautarholtið löngu áður en golfvöllurinn kom til sögunnar. 

´Defending Champion´ Hergeir El. er nú kominn á kunnulega slóðir og er sestur á toppinn í bili að minnsta kosti. Margir snjallir spilarar fylgja fast á eftir. Mætingin hefur verið frábær í sumar og spáir Tíðindamaðurinn að þetta verði sumar mikilla sviptinga.

 

ÚRSLIT:

SætiNafnPkt.Bráðab.
1Sig.Egill45 
2Halli36 
3Hergeir35 
4Gauti34 
5Haffi28Last 6. 11 p.
6Tóti28Last 6. 6 p.
7Tryggvi28 
8Jói27 
9Eggert25Last 9. 13 p.
10Haukur25Last 9. 10 p.
11Tommi24 
12Viktor23 
13Ingvar19 
14Jón Ari129 holur.

 

STAÐAN:

SætiNafn11.mai18.maí25.maí1.jún8.jún15,jún22.júnSamtals
1Hergeir50503266405466358
2Viktor42346064504848346
3Tryggvi54404060464458342
4Sig.Egill604228 606080330
5Haukur4838508054 52322
6-7Jói30324846323656280
6-7Haffi 364448444662280
8Tommi36483862 4250276
9Halli3854 5648 72268
10Tóti462854 283060246
11Eggert32 3452343854244
12Ragnar404422543640 236
13Ingvar34244258 2846232
15-15Binni 2636723834 206
14-15Gauti  3050303264206
16Jón Ari446026   44174
17Reynir 3046  50 126
18Hanna   4442  86
19Óli 4624    70

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband