Færsluflokkur: Íþróttir

6. Mót. -Mosó 15.júní-

Tíðindamaður var fjarverandi þegar 6.mótið fór fram en sem betur fer á hann Hauk í horni sem hljóp í skarðið og skýrði hann frá atburðum á eftirfarandi hátt;

 

Ásarnir á eldi

 

14 kvikindi mættu í fínu veðri þennan mánudaginn.  Ingvar einnig mættur vel tímanlega og með allt meðferðis.  Einn gestur var mættur í mótið en hann varð gríðarlega svekktur strax upp í skála þegar hann sá að Jón Ari var í raun 2 metrar og gráhærður.   Raggi nennti heldur ekki í Tomma og Jenna leikinn við hann.

 

Í fyrsta sinn í sögunni kom upp eineltismál og það barst kæra strax að leik loknum.  Það vildi þannig til að strax á fyrstu holu stal Tóti boltanum hans Eggerts og neitaði að segja honum hvar hann væri.  Jói Fel vildi taka þátt í leiknum og keyrði nýju rafmagnskerrunni beint á Eggert í miðri sveiflu eftir að hann var kominn með nýjan bolta.  Þetta var orðið einskonar hópefli fyrir alla nema Eggert.  Kæran var strax tekin fyrir og vísað frá.  Í eineltisteymi Harenmótaraðarinnar sitja Þór Björnsson og Jóhannes Felixsson.

 

Krían var í stuði á nesinu og sáust margar regnhlífar á lofti og jafnvel 150 metrar á milli þeirra í sama holli.  Tommi ákvað að „snapchata“ kríuna á meðan hún var að ráðast á hann.  Það gekk ljómandi vel þangað til að hann fattaði að hann stóð upp á æðarkollu sem lá á hreiðri sínu.

Setningin „þetta er svo auðvelt sport“ heyrðist óma út um allan völl oft og títt ásamt setningunni „djöfull er ég góður í þessu.  Alvöru Gorgeir.

 

Höfuðpaurar mótaraðarinnar tóku sér frí þennan mánudaginn.  Haraldur var upptekinn að djúpsteikja fish and chips fyrir erlenda ferðamenn á Stapanum og Haukur var með Europris chipnámskeið.

 

Háværar raddir voru um að þetta hafi verið RISAmót.

 

ÚRSLIT:

SætiNafnPkt.Bráðab.
1Sig.Egill38 
2Hergeir37 
3Reynir36Last 6. 14 p.
4Viktor36Last 6. 12 p.
5Haffi36 
6Tryggvi35 
7Tommi31Last 6. 12 p.
8Ragnar31Last 6. 10 p.
9Eggert31 
10Jói28 
11Binni27 
12Gauti26Last 9. 18 p.
13Tóti26Last 9. 12 p.
14Ingvar21 

 

STAÐAN:

SætiNafn11.mai18.maí25.maí1.jún8.jún15,júnSamtals
1Viktor423460645048298
2Hergeir505032664054292
3Tryggvi544040604644284
4Haukur4838508054 270
5Sig.Egill604228 6060250
6Ragnar404422543640236
7Tommi36483862 42226
8Jói303248463236224
9Haffi 3644484446218
10Binni 2636723834206
11Halli3854 5648 196
12Eggert32 34523438190
13-14Ingvar34244258 28186
13-14Tóti462854 2830186
15Gauti  30503032142
16Jón Ari446026   130
17Reynir 3046  50126
18Hanna   4442 86
19Óli 4624   70

5. Mót. -Akranes 8.júní-

Garðavöllur á Akranesi var vettvangur 5.móts HOS-mótaraðarinnar. Florida-Skaginn heilsaði með óvenjugóðum aðstæðum í þetta skiptið, logn, skýjað og raki í lofti. Völlur Skagamanna í flottu standi eins alltaf þó blautur væri. Þó Garðavöllur sé á flatlendi og léttur á fót er hann frekar langur og með mjög mörgum hindrunum í formi sandbönkera og vatnstorfæra. Flestir leikmenn fengu að spreyta sig á hættunum einhverstaðar á vellinum. Það kom þó ekki fyrir að skorið væri almennt gott eins og verið hefur þetta sumarið á mótaröðinni.

Enginn lék þó betur en Sigurður Egill sem skilaði heilum 42 pkt. í hús, sem er aldeilis frábært skor á alla kanta. Þó Tíðindamaður hafi ekki fylgt hollinu hans þá reiknar hann með að high-draw-dræv og sjóðheit pútt af +50 mtr. hafi verið inni hjá kappanum. Siggi hefur þá sigrað í tveimur mótum af þeim fjórum sem hann hefur mætti í. Það má því búst við miklum afrekum hjá honum á mótaröðinni í sumar.

Staðan er galopin og pakkinn þéttur.

 

ÚRSLIT:

SætiNafnPkt.Bráðab.
1Sig.Egill42 
2Haukur37 
3Viktor35 
4Halli34Last 9. 19 p.
5Tryggvi34Last 9. 17 p.
6Haffi32 
7Hanna30 
8Hergeir29Last 9. 12 p.
9Binni29Last 9. 11 p.
10Ragnar28Last 9. 12 p.
11Eggert28Last 9. 10 p.
12Jói27 
13Gauti25 
14Tóti24 

 

STAÐAN:

SætiNafn11.mai18.maí25.maí1.jún8.júnSamtals
1Haukur4838508054270
2Viktor4234606450250
3Tryggvi5440406046240
4Hergeir5050326640238
5-6Ragnar4044225436196
5-6Halli3854 5648196
7Sig.Egill604228 60190
8Jói3032484632188
9Tommi36483862 184
10-11Binni 26367238172
10-11Haffi 36444844172
12Ingvar34244258 158
13Tóti462854 28156
14Eggert32 345234152
15Jón Ari446026  130
16Gauti  305030110
17Hanna   444286
18Reynir 3046  76
19Óli 4624  70

4. Mót. - Mosó 1.júní, RISAMÓT-

Það voru 14 mættir í fyrsta RISA-mót sumarsins sem haldið var á Hlíðavelli í þetta skiptið. Fleiri voru þó skráðir upphaflega en voru löglega afsakaðir þar sem þeir sváfu yfir sig í fyrstu tjaldútilegu sumarsins. 

Völlurinn var í toppstandi eftir talsvert rigningarveður og grínin tóku vel við. Ekki oft sem boltaför sjást svona greinilega á Hlíðavelli.

Eins og undanfarin mót þá eru menn að skila inn frábæru skori. Annað mótið í röð vinnst það á 40 pkt.! Nú dugar ekkert minna en besta frammistaða til að eiga möguleika á sigri.

Í stuttu viðtali við Tíðindamanninn sagði sigurvegari kvöldsins hafa verið gráupplagður þetta kvöld enda sleppt öllum ferðalögum og mætt með rúsínuputta eftir að hafa legið í ný-uppsettum heitum potti í 3 daga við heimili sitt.

Mikil þéttni er á toppnum á mótaröðinni og eftir hvert mót er hrært vel upp í stöðunni. Minni á að 11 bestu mótin telja þ.a. raunstaðan birtist ekki fyrr en fyrstu menn ná þeim. 

 

 -Úrslit kvöldsins-

SætiNafnPkt.Bráðab.
1Haukur40 
2Binni37 
3Hergeir36 
4Viktor34 
5Tommi33 
6Tryggvi32 
7Ingvar31Last 9. 17 p.
8Halli31Last 9. 13 p.
9Ragnar28 
10Eggert27Last 9. 17 p.
11Gauti27Last 9. 15 p.
12Haffi27Last 9. 14 p.
13Jói25 
14Hanna139 holur.

 

-STAÐAN-

SætiNafn11.mai18.maí25.maí1.júnSamtals
1Haukur48385080216
2Viktor42346064200
3Hergeir50503266198
4Tryggvi54404060194
5Tommi36483862184
6Ragnar40442254160
7Ingvar34244258158
8Jói30324846156
9Halli3854 56148
10Binni 263672134
11-12Jón Ari446026 130
11-12Sig.Egill604228 130
13-14Tóti462854 128
13-14Haffi 364448128
15Eggert32 3452118
16Gauti  305080
17Reynir 3046 76
18Óli 4624 70
19Hanna   4444

3. Mót. -Mosó 25.maí-

Það voru 17 mættir í þriðja mót sumarsins sem fór fram í rysjóttu veðri á mánudagskvöld. Menn létu veðrið ekkert trufla sig og glæsileg tilþrif sáust að vanda.  

Skorið var alveg frábært og nú dugir ekkert lengur að sitja á gamla gráa svæðinu með 32-36 pkt. það er bara ávísun á miðjumoð. Allt yfir 36 pkt er málið í dag, þökk sé nýju vallarmati og nýrri forgjöf. 

Gamalreyndir leikmenn mótaraðarinnar minntu á sig en engin meir en Viktor sem skilaði sér inn í hlýjan skálann á heilum 40 pkt. og sigraði glæsilega þetta mánudagskvöldið. Tóti vaknaði til lífsins eftir rólega byrjun í fyrstu tveim mótunum. Jói fann loks sveifluna og þá var ekki að sökum að spyrja. Æfingalítill Retro Stefan taldi ekki mikið mál að skella í 36 pkt. "þetta er eins og að hjóla, maður gleymir því ekki".  Gauti Laxdal mætti í fyrsta skipti en hann hefur verið á HOS-póstlistanum nánast frá upphafi. Gauti er harður stuðningsmaður Luton Town og telur tíðindamaðurinn fullvíst að aldrei fyrr hafi stuðningsmaður Luton leikið á mótaröðinni. Megum við sjá sem mest af honum í sumar. 

Skrifstofubráðabaninn á 19ándu holu var með fjörugsta móti og skera þurfti úr um flest sæti.

Nýjir menn hafa tyllt sér á toppinn í bili. Tíðindamaður spáir miklum sviptingum og mikilli spennu þetta sumarið. Margir verða tilkallaðir en að lokum einn útvalinn.

Næsta mót er á öðrum í hvítasunnu og þá verður væntanlega slegið í RISA-mót og enn fleiri stig verða í pottinum til að berjast um.

 

Úrslit kvöldsins:

SætiNafnPkt.Bráðab.
1Viktor40 
2Tóti38Last 9. 23 p.
3Haukur38Last 9. 18 p.
4Jói37 
5Reynir36 
6Haffi35 
7Ingvar34Last 9. 20 p.
8Tryggvi34Last 9. 19 p.
9Tommi34Last 9. 17 p.
10Binni34Last 9. 15 p.
11Eggert33Last 9. 19 p.
12Hergeir33Last 9. 17 p.
13Gauti32 
14Sig.Egill31Last. 9.
15Jón Ari31 
16Óli30 
17Ragnar29 

 

-STAÐAN-

SætiNafn11.mai18.maí25.maíSamtals
1-2Haukur483850136
1-2Viktor423460136
3Tryggvi544040134
4Hergeir505032132
5-6Jón Ari446026130
5-6Sig.Egill604228130
7Tóti462854128
8Tommi364838122
9Jói303248110
10Ragnar404422106
11Ingvar342442100
12Halli3854 92
13Haffi 364480
14Reynir 304676
15Óli 462470
16Eggert32 3466
17Binni 263662
18Gauti  3030

2.Mót. -Mosó 18.maí-

Það voru frábærar aðstæður til golfleiks á Hlíðavelli í gærkvöldi, logn, blíða og fuglasöngur um allan völl (bæði í náttúrunni og hjá spilurum). Mætingin var með mesta móti eða 16 leikmenn alls. Rafmagns-kerrur og golfbílar settu svip sinn á mótið og minntu tíðindamann á það að þetta er engin unglingamótaröð. Þáttakendur eru þó upp til hópa ungir í anda þrátt fyrir stirða liði og bak-eymsli sem er þó auðvelt að laga, spyrjið bara Reyni Stef. hvað gera skuli ef þið eruð slæmir í bakinu, hann er með svarið cool

Skor kvöldsins var frábært. Ljóst að hækkuð vallarforgjöf og nýja forgjafarkerfið spilar þar stóra rullu. Samkvæmt gamla kerfinu hefðu 5 leikmenn lækkað í forgjöf en núna veit enginn hvað gerist, sem er dálítið spennandi í sjálfu sér.

Eins og alltaf er bara einn sem stendur uppi sem sigurvegari og í gærkvöldi var það hinn snjalli mála- og mælingamaður Jón Ari. Jón Ari er illviðráðanlegur þegar kappinn dettur í gírinn og nær sínum frægu "draw and roll" höggum...þá geta aðrir pakkað saman. 

Hörkubarátta var um næstu sæti og þurfti marga skrifstofubráðabana til að raða niður í sæti.

Jón Ari hefur tyllt sér á toppinn í bili en margar firnasterkar kanónur fylgja fast á eftir og geta ekki beðið næsta mánudagskvölds. 

 

ÚRSLIT kvöldsins
SætiNafnPkt.Bráðab.
1Jón Ari39 
2Halli38Last 9. 22 p.
3Hergeir38 
4Tommi37Last 9. 23 p.
5Óli37Last 9. 22 p.
6Ragnar36 
7Sig.Egill34Last 9. 19 p.
8Tryggvi34 
9Haukur34 
10Haffi32 
11Viktor31Last 3.
12Jói31 
13Reynir30 
14Tóti29 
15Binni27 
16Ingvar24 

 

-STAÐAN-

SætiNafn11.mai18.maíSamtals
1Jón Ari4460104
2Sig.Egill6042102
3Hergeir5050100
4Tryggvi544094
5Halli385492
6Haukur483886
7-8Ragnar404484
7-8Tommi364884
9Viktor423476
10Tóti462874
11Jói303262
12Ingvar342458
13Óli 4646
14Haffi 3636
15Eggert32 32
16Reynir 3030
17Binni 2626

1. Mót. -Mosó 11.maí-

HOS skipalestin lagði af stað í vorkalsa og pusi þetta árið. Áhafnarmeðlimir voru þó brattir og var skipstjóri mótaraðarinnar settur í fyrsta holl. Var það sett í hendurnar á honum hvort beygt skyldi af við Blikastaðanes eða gefið í og haldið út á nesið. Þegar tilkom tók skipstjóri af skarið og beygði af. Boðin náðu þó ekki alveg eyrum öftustu áhafnarmeðlima sem óðu útá nes en með snarræði nokkurra háseta miðskips tókst að snúa þeim við. Allir komu í höfn á 19ándu holu misblautir og sumum nokkuð heitt í hamsi yfir þessari ákvörðun. En svona er nú íslenska sumarið, allra veðra von og ekkert við því að segja. 

Þar sem 14 holur voru leiknar þá miðast pkt.fjöldinn við það. En að sjálfsögðu breytast þessir pkt. svo í HOS-stigin mikilvægu.

Skor helmings manna reyndist bara alveg ágætt. Hinir hafa veðrið til afsökunar.

Sigurður Egill kom skemmtilega á óvart og sigraði fyrsta mót sumarsins. Alltof langt síðan að þessi snillingur lét að sér kveða og mætir sterkur til leiks þetta árið. TT fylgdi fast á eftir og gefur ákveðin skilaboð um að hann ætli ekki að vera neinn áhorfandi sumar. 

Nú hefur verið tekið upp nýtt forgjafarkerfi sem og nýtt vallarmat á Hlíðavelli. Undirritaður hvetur menn til að fylgjast vel með forgjöf sinni sem og vallarforgjöf þegar þeir mæta til leiks á mánudögum. Þetta er talsvert öðruvísi kerfi. Sem dæmi þá er ekkert grátt svæði lengur og forgjöfin breytist skv. meðaltali 8 bestu hringja af síðustu 20 sem leiknir hafa verið.  Eitt er þó víst; Þetta verður stórskemmtilegt og æsispennandi eins og alltaf cool

 

ÚRSLIT
SætiNafnPkt.
1Sig.Egill28
2Tryggvi27
3Hergeir26
4Haukur26
5Tóti26
6Jón Ari25
7Viktor23
8Ragnar23
9Halli21
10Tommi21
11Ingvar20
12Eggert20
13Jói17

 

STAÐAN
SætiNafn11.mai
1Sig.Egill60
2Tryggvi54
3Hergeir50
4Haukur48
5Tóti46
6Jón Ari44
7Viktor42
8Ragnar40
8Halli38
9Tommi36
10Ingvar34
11Eggert32
13Jói30

HOS-2020 fer af stað í kvöld.

Þá er loksins komið að því, HOS-2020 leggur af stað í kvöld.

Fyrirkomulag stigagjafar verður með sama sniði og á síðasta ári (sjá töflu). 

Mögulega nást 17 mánudagsmót auk FRAM-OPEN og munu 11 bestu mótin gilda.

Síðasta mánudagsmótið verður þá 31.ágúst og lokamót er áætlað laugardaginn 5.september. 

Þetta verður æsispennandi eins og alltaf. Allir ætla sér sigur en aðeins einn verður útvalinn í haust og mun hljóta nafnbótina "Golfmeistari ársins". Að auki fylgir vegsemdinni forláta jakki og áletraður silfurbikar. Ekki má gleyma ótakmarkaðri virðingu og öfund meðspilara.

Það má víst ekki heilsast eða knúsast þetta árið en látum ekki kappið bera fegurðina ofurliði og gangi öllum sem allra best! laughinglaughinglaughing

 

Mánudagsmót Risamót
Sæti.Stig Sæti.Stig
160 180
254 272
350 366
448 464
546 562
644 660
742 758
840 856
938 954
1036 1052
1134 1150
1232 1248
1330 1346
1428 1444
1526 1542
1624 1640

Sierra golf park

Fjórir vaskir sveinar úr Haren/Hos/Fram mánudagshópnum halda í víking til Pólands á laugardaginn þar sem stefnan er á að spila mikið golf. Sumir hafa verið ansi lengi frá í hópnum og gaman að fá gamla góða félaga aftur en HB kom með okkur 2008 og HE, núverandi meistari 2014. Vonandi er þetta komið til að vera næstu árin. Rástímar eru klárir og eru eftirfarandi:

Rástímar í Póllandi


20. Mót. - Lokamótið haldið í Mosó 8. september-

Það voru 12 mættir til leiks í lokamót HOS-mótaraðarinnar. Upphaflegt plan var að spila á laugardag í Hveragerði og á Hellu en vegna votviðris var það slegið útaf borðinu og leikið á sunnudag á heimavellinum í Mosó. Leiknar voru 18 holur sem skiptist tvo 9 holu leiki. Annarsvegar var hefðbundinn pkt. keppni einstaklinga þar sem hægt var að fá 60 stig í hvorum leik. Hinsvegar var leikin liðakeppni þar sem tveir leikmenn skipuðu lið og betra pkt. skor á holu taldi. Þar var hægt að 30 stig í hvoru leik. Semsagt 180 stig í boði fyrir þann sem næði fullkomnum sigri.

Fyrir mót sat Hergeir El. nokkuð örugglega á toppnum og að loknum fyrri hluta lokamótsins var kappinn enn í nokkuð öruggri fjarlægð frá næstu mönnum. Tommi hafði þó klórað í bakkann og var kominn í annað sætið. Í seinni hluta mótsins setti H.Bragason í fluggírinn á meðan H.Elíasson slakaði lítilega á klónni.

Að lokum skildu svo 8 stig fyrsta og annað sætið og Hergeir var krýndur sigurvegari árið 2019. Kappinn er gríðarvel að þessu kominn. Hann hefur spilað mjög stabílt og gott golf í allt sumar og hefur sjaldan látið sig vanta á mánudögum. Að auki hefur meistarinn æft duglega og mátti ósjaldan sjá hann í ljósaskiptunum á kvöldin á æfingasvæðinu æfa til skiptis pressuð og dempuð högg með þrjú- og fimmtré. Fáir sem leika það eftir. 

Að loknum móti var haldið í AB-Varhluti-Mathöll á Höfðanum þar sem svangir fengu líkn. Að lokum klæddi Tommi sigurvegarann í jakkann góða og færði honum bikarinn sem Hergeir er að vinna í 3ja sinn. Þetta var í fimmtánda skipti sem bikarinn er afhentur, var fyrst afhentur árið 2005.

Að endingu var skálað var fyrir meistaranum í einum göróttum undir dynjandi lófaklappi.

 

Úrslit í lokamóti:

  Fyrri leikurSeinni leikur 
SætiNafnEinstakl.LiðEinstakl.LiðSamtals stig
1Haukur40266026152
2Tommi52304418144
3-4Haffi44264818136
3-4Tryggvi48105622136
5Halli60183614128
6Hergeir56142822120
7-8Eggert32223230116
7-8Hanna16185230116
9-10Jón Ari36144010100
9-10Írunn20302426100
11Ingvar2422201480
12Jói2810161064

 

Lokastaða:

SætiNafnLokastig
1Hergeir772
2Haukur764
3Tommi750
4Halli696
5Jói666
6Eggert646
7Tóti632
8Haffi612
9Jón Ari610
10Viktor554
11Ingvar542
12Tryggvi532
13Ragnar L.524
14Sig.Egill506
15Hanna316
16Írunn202
17Jónas El162
18Binni142
19Óli132
20Reynir70
21Beggi48
22Ingólfur46

 

Til heiðurs sigurvegara ársins 2019....

       RO L E X         
  W E  P 
    HERGI R    
       
      A      
  HLÍÐAVÖLLUR 
  M Æ  
         

 

Afhending bikars og jakka:

20190908_204552

 

 

 

20190908_204629

 

 

 

 

 

 

 

 

 


19. Mót. -Mosó, 2. september-

Tíðindamaður var fjarverandi þegar síðasta mánudagsmót sumarsins fór fram. Það kom ekki að sök þar sem íhlaupadrengur á ritstjórn Hallahipp var mættur á staðinn og tók niður eftirfarandi nótur;

 

"Það voru 10 vaskir sveinar sem tóku þátt á Hlíðavelli í gær.  Fyrstir út voru fóstbræðurnir Siggi og Jón Ari.  Siggi mun hafa átt erfitt með einbeitingu á fyrri 9, þar sem í holl með þeim skráði sig undurfögur yngismær, sem hafði þann leiða sið að snúa baki í Sigga og halla sér fram þegar hún mundaði kylfuna.  Hún hætti eftir fyrri 9 og þá slaknaði spennan hjá okkar manni og fimm pör komu í hús á seinni níu.  Jón Ari lét sér fátt um þetta finnast og skilaði sínum standard 36 punktum örugglega í hús.

Það bar lítið til tíðinda hjá þeim Tomma, Tryggva, Ragga og Viktori. Meðalskor 30 punktar – eiginlega steindautt jafntefli.  Eins var með Hergeir, Jóa og Ingvar.  Lítið að frétta.

Síðastur inn kom hins vegar Tóti á nýju vallarmeti í sínum þyngdarflokki. Hann skilaði 43 punktum í hús.  Spilaði seinni 9 á 39 höggum, eftir að hafa misst mörg pútt fyrir fugli og sum svo illa að parið fór líka.  Meistaraleg spilamennska og veruleg lækkun á forgjöf".

 

Og þar með höfum við það.  Orrustunum er lokið en stríðinu engan vegin. Framundan er úrslitamótið í allri sinni dýrð.

Mun H.Elíasson standast pressuna ? Slaufar Tóti Floridaferðinni og mættir í staðinn á Rangárbakka ?  Hefur Yfirlögfræðingurinn einhver svör eða mun hann jafnvel fara með úrslitin fyrir dóm ?  Er Jói með leyniuppskriftina til að klára dæmið í fyrsta sinn ?  Eða verður það þú sem stendur uppi í jakkanum góða með bikar í hönd ?

 

Þessu öllu verður svarað á laugardagskvöldið kemur. Eitt er víst, þetta verður gaman cool.

 

ÚRSLIT KVÖLDSINS:

SætiNafnPkt.B.banar
1Tóti43 
2Jón Ari36 
3Tommi329
4Ingvar32 
5Tryggvi31 
6Hergeir309
7Jói30 
8Viktor29 
9Ragnar L25 
10Sig.Egill24 

 

STAÐAN:

SætiNafn6.mai13.mai20.mai27.mai3.jún10.jún17.jún24.jún1.júl8.júl15.júl22.júl29.júl5.ágú9.ágú12.ágú19.ágú26.ágú2.sepTOTAL11 BESTU
1Hergeir48465472444662  46507254608046445444922652
2Tóti40 485838506650606048 48 7240603860836632
3Haukur38606064 4072   388060  504642 650612
4Tommi54504462 5458  54345446466654 5050776606
5Jói50 4252546064604844366040 5636544442842602
6Halli60544650364452 38 4464 54584232  674568
7Viktor344450425036464254 5462  6244344640740554
8Eggert36 36544048544650504050424254    642530
9Ragnar L.30 3456   54464846665044  364038588524
10Jón Ari46  6646  4844    50 48486054510510
11Sig.Egill44483248 4280 36 4258    40 36506506
12Haffi32   34385644 4230 444860  48 476476
13Ingvar  408060 48   3256   6038 48462462
14Tryggvi   4032 60  4060 38  3842 46396396
15Hanna 423044           3450  200200
16Jónas El   60  50       52    162162
17Binni        40  52  50    142142
18Óli42   48   42          132132
19Írunn  38           64    102102
20Reynir  28 42              7070
21Beggi              48    4848
22Ingólfur   46               4646

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband