Færsluflokkur: Íþróttir
26.5.2015 | 10:18
25. mai...HOS nr. 4.
Það voru 13 grjótharðir spilarar mættir í 4 HOS-mótið í gær. Aðstæður til golfleiks voru erfiðar. Vindur og dugleg rigning inná milli. Þrátt fyrir aðstæðurnar voru menn að skila inn flottu skori. Maður kvöldsins var Ragnar Lárus Kristjánsson sem stóð uppúr blómahafinu með heila 38 punkta og væntanlega með lækkun uppá 1 heilan í forgjöf. Glæsilegt Raggi. Tíðindamaðurinn hefur óbilandi trú á að þetta verði sumarið hans Ragga og miklir hlutir muni gerast. Annars voru fleiri að gera góða hluti. Daði kom sterkur tilbaka eftir erfiða byrjun á mótaröð hinna bestu og skilaði inn 32 pkt. Hann byrjaði þó hringinn á því að gata golfskálann í upphafshöggi á fyrstu holu! Hann hefur þó sér til málsbóta að vera örvhentur
. Síðan fögnum við því að Tryggvi er mættur til leiks. Hann byrjaði daginn á því að ganga í GM og hætti að gerast styrktaaðili hjá GR. Skorið var frekar í daprari kantinum þ.a. reykspólið var víst mjög gott samkvæmt þeim sem til sáu
. Við sem þekkjum Tryggva úr körfunni vitum að hann á eftir að koma gríðarsterkur inn í þetta og er til alls vís. Þá að úrslitum og stöðu:
Úrslit kvöldsins:
Sæti | Nafn | Pkt. | Athugasemdir |
1 | Raggi Kr. | 38 | |
2 | Raggi Hil. | 33 | |
3 | Hanna | 32 | betri seinni 9 |
4 | Sig. Egill | 32 | |
5 | Daði | 32 | |
6 | Óli | 30 | |
7 | Ingvar | 29 | betri seinni 9 |
8 | Haukur | 29 | |
9 | Tommi | 27 | betri seinni 9 |
10 | Írunn | 27 | |
11 | Binni | 26 | |
12 | Sig.Óli | 22 | betri seinni 9 |
13 | Tryggvi | 22 |
Staðan:
Sæti | Nafn | 5.maí | 11.maí | 18.mai | 25.mai | Samtals |
1 | Írunn | 40 | 26 | 27 | 21 | 114 |
2 | Hanna | 34 | 25 | 22 | 28 | 109 |
3 | Sig. Egill | 24 | 30 | 20 | 27 | 101 |
4 | Raggi Kr. | 28 | 19 | 19 | 30 | 96 |
5 | Sig. Óli | 26 | 24 | 24 | 19 | 93 |
6 | Tommi | 22 | 23 | 25 | 22 | 92 |
7 - 8 | Heggi | 32 | 29 | 29 | 90 | |
7 - 8 | Haukur | 20 | 21 | 26 | 23 | 90 |
9 | Halli | 36 | 18 | 28 | 82 | |
10 - 11 | Raggi Hil. | 30 | 20 | 29 | 79 | |
10 - 11 | Binni | 16 | 22 | 21 | 20 | 79 |
12 | Óli | 28 | 16 | 25 | 69 | |
13 | Beggi | 10 | 27 | 30 | 67 | |
14 | Ingvar | 18 | 18 | 24 | 60 | |
15 | Reynir | 38 | 17 | 55 | ||
16 | Daði | 12 | 15 | 26 | 53 | |
17 | Haffi | 14 | 23 | 37 | ||
18 | Tryggvi | 18 | 18 |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 10:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2015 | 11:34
18. mai...HOS nr. 3.
Það voru glæsilegar aðstæður til golfleiks á 3. HOS mótinu. Sól og blíða og allir voru kátir. 16 leikmenn mættir til að slást um stigin dýrmætu. Mótastjórinn sá til þess að ritarar hefðu nóg um að hugsa þar sem hann skellti í eina Ryder-keppni til hliðar við hefðbundinn punktaleik.
Það bar til tíðinda að í miðri sögu af því þegar Tommi skaut Helsingjagæs á æfingasvæði Nessklúbbsins var Írunn að munda dræverinn á 11. holu. Og viti menn, bang...skýtur hún ekki niður Helsingjagæs á flugi ! Eftir smávangaveltur um hvað gera skyldi við gæsina sem virtist óbrotin en illa áttuð var ákveðið að leyfa henni að njóta vafans og athuga hvort hún hefði það ekki af...enda engin með pláss í pokanum til að taka gæsina með .
Það var þó pylsugerðarmaðurinn sem sló í gegn þetta kvöldið og skellti í 38 glæsilega pkt. Sá hefði nú ekki tvínónað við Helsingjann og snarlega breytt honum í pylsu ef hann hefði verið í því holli. Vel gert Flóvent.
Ryder-úrslit:
Gulir | Hvítir | Úrslit | |
Haukur / Hanna | Tommi / Írunn | 1 - 2 | |
Siggi / Beggi | Daði / Reynir | 2 - 1 | |
Hergeir / Haffi | Sig.Óli / Ingvar | 2 - 1 | |
Halli / Binni | Óli / Raggi Kr. | 2,5 - 0,5 | |
Samtals | 7,5 | 4,5 |
Úrslit kvöldsins:
Sæti | Nafn | Pkt. | Athugasemdir |
1 | Beggi | 38 | |
2 | Heggi | 35 | |
3 | Halli | 34 | betri seinni 9 |
4 | Írunn | 34 | |
5 | Haukur | 31 | betri seinni 9 |
6 | Tommi | 31 | |
9 | Hanna | 30 | betri seinni 9 |
10 | Binni | 30 | |
8 | Haffi | 30 | |
7 | Sig. Ólí | 30 | betri á síðustu 6 |
12 | Raggi Kr. | 29 | |
11 | Sig. Egill | 29 | |
13 | Ingvar | 26 | |
14 | Reynir | 26 | |
16 | Daði | 25 | |
15 | Óli | 25 | betri seinni 9 |
Staðan:
Sæti | Nafn | 5.maí | 11.maí | 18.mai | Samtals |
1 | Írunn | 40 | 26 | 27 | 93 |
2 | Heggi | 32 | 29 | 29 | 90 |
3 | Halli | 36 | 18 | 28 | 82 |
4 | Hanna | 34 | 25 | 22 | 81 |
5 - 6 | Sig. Egill | 24 | 30 | 20 | 74 |
5 - 6 | Sig. Óli | 26 | 24 | 24 | 74 |
7 | Tommi | 22 | 23 | 25 | 70 |
8 - 9 | Haukur | 20 | 21 | 26 | 67 |
8 - 9 | Beggi | 10 | 27 | 30 | 67 |
10 | Raggi Kr. | 28 | 19 | 19 | 66 |
11 | Binni | 16 | 22 | 21 | 59 |
12 | Reynir | 38 | 17 | 55 | |
13 | Raggi Hil. | 30 | 20 | 50 | |
14 | Óli | 28 | 16 | 44 | |
15 | Haffi | 14 | 23 | 37 | |
16 | Ingvar | 18 | 18 | 36 | |
17 | Daði | 12 | 15 | 27 |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2015 | 10:53
11. mai...HOS nr. 2.
"Hann hefur tekið alltof krappa beygju, á of lítilli ferð og flogið of lágt" sagði flugmaðurinn Vilbergur Flóvent horfandi útá Leirvoginn þar sem flak flugvélar lá. Svo flaug Begginn af stað og skoraði 20 pkt á fyrri hring. En eins og með flugmanninn, sem var á kafi í drullu í Leirvognum, missti kjötiðnaðarmaðurinn Beggi einbeitinguna, fór að hugsa um kjötfars og bjúgu á seinni níu og bætti ekki nema 11 við. Engu að síður frábær endurkoma eftir hafa þurft að hætta í miðjum hring á fyrsta mótinu.
Annars voru 13 mættir í þetta annað mót sem hófst í blíðskaparveðri og sól. Fljótlega tók þó að blása og kólna verulega. Það hafði enginn áhrif á snillingana; Sigurð Egil, Hegga og Óla formann sem kláruðu sig inná gráa svæðið. HOS-meistari 2014 ætlar greinilega að halda fast í Jakkann og hefur komið sér þægilega fyrir, á milli stelpnanna...og leiðist það ekki neitt ef maður þekkir gamla sjarmatröllið rétt .
Úrslit kvöldsins:
Nafn | Pkt. | Athugasemdir |
Sig.Egill | 34 | Betri á síðustu 3 |
Hergeir | 34 | |
Óli | 32 | |
Beggi | 31 | |
Írunn | 30 | |
Hanna | 28 | Betri á seinni 9 |
Sig. Óli | 28 | |
Tommi | 28 | |
Binni | 27 | |
Haukur | 26 | |
Raggi Hil. | 25 | |
Raggi Kr. | 24 | |
Halli | 23 |
Staðan eftir 2 umferðir:
Sæti | Nafn | 5.maí | 11.maí | Samtals |
1 | Írunn | 40 | 26 | 66 |
2 | Heggi | 32 | 29 | 61 |
3 | Hanna | 34 | 25 | 59 |
4 - 5 | Sig. Egill | 24 | 30 | 54 |
4 - 5 | Halli | 36 | 18 | 54 |
6 - 7 | Sig. Óli | 26 | 24 | 50 |
6 - 7 | Raggi Hil. | 30 | 20 | 50 |
8 | Raggi Kr. | 28 | 19 | 47 |
9 | Tommi | 22 | 23 | 45 |
10 | Haukur | 20 | 21 | 41 |
11 | Reynir | 38 | 38 | |
12 | Binni | 16 | 22 | 38 |
13 | Beggi | 10 | 27 | 37 |
14 | Óli | 28 | 28 | |
15 | Ingvar | 18 | 18 | |
16 | Haffi | 14 | 14 | |
17 | Daði | 12 | 12 |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2015 | 10:43
5. mai...HOS nr. 1.
Þá er HOS-mótaröðin 2015 hafin eftir langt og strangt undirbúningstímabil. Eins og flestir vita er þetta hin eina sanna íslandsmeistaramótsröð og sigurvegari hennar er sannarlega langbesti kylfingur Íslands og þó víðar væri leitað. Það voru 16 góðir spilarar mættir í fyrsta mót ársins. Með stuttum fyrirvara ákváð mótstjóri að halda RISA-mót og Ryder-keppni. Þess má geta að engin mótaröð í heiminum, s.s. PGA né European-tour, hafa risamót í upphafi vertíðar. Ef þetta sýnir ekki þvílíka yfirburðarstöðu sem HOS-motaröðin hefur í heiminum þá veit ég ekki hvað.
Að mótinu í gær. Það blés allhressilega á Hlíðavelli en síðan brast á dandalablíða á kafla. Sumir náðu alveg fyrirtaksskori við þessar frekar erfiðu aðstæður. Ný andlit sáust í mótinu sem ætla sér stóra hluti á stóra sviðinu. Það má segja að stelpurnar og Reynir hafi stolið senunni. Stelpurnar með því að vinna alla mögulega leiki í Ryder-keppninni og Reynir með mjög góðu skori auk "almost hole-in-one but no cigar" á fyrstu holu.
Þá eru það úrslit Ryder-keppninnar:
Hvitir | Gulir | Stig |
Raggi Kr. / Ingvar | Binni / Beggi | 1-1 |
Hanna / Írunn | Hergeir / Haffi | 3-0 |
Reynir / Haukur | Halli / Daði | 1,5 - 1,5 |
Raggi Hil. / Sig. Egill | Tommi / Sig. Óli | 1-2 |
Samtals | 6,5 - 4,5 |
Til hamingju Hvítir! Þið eigið inni einn kaldann hjá gulum.
Hér eru úrslit kvöldsins:
Sæti | Nafn | Pkt. | Athugasemdir |
1 | Írunn | 35 | |
2 | Reynir | 33 | betri seinni 9 |
3 | Halli | 33 | |
4 | Hanna | 29 | betri seinni 9 |
5 | Heggi | 29 | |
6 | Raggi Hil. | 28 | |
7 | Raggi Kr. | 27 | betri síðustu 6 |
8 | Sig. Óli | 27 | |
9 | Sig. Egill | 26 | |
10 | Tommi | 25 | betri síðustu 3 |
11 | Haukur | 25 | |
12 | Ingvar | 24 | |
13 | Binni | 22 | |
14 | Haffi | 21 | |
15 | Daði | 19 | |
16 | Beggi | 6 | Hætti efir 9 holur |
Og þá eru það fyrsta stigataflan:
Sæti | Nafn | 5.maí |
1 | Írunn | 40 |
2 | Reynir | 38 |
3 | Halli | 36 |
4 | Hanna | 34 |
5 | Heggi | 32 |
6 | Raggi Hil. | 30 |
7 | Raggi Kr. | 28 |
8 | Sig. Óli | 26 |
9 | Sig. Egill | 24 |
10 | Tommi | 22 |
11 | Haukur | 20 |
12 | Ingvar | 18 |
13 | Binni | 16 |
14 | Haffi | 14 |
15 | Daði | 12 |
16 | Beggi | 10 |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.9.2014 | 15:38
Óli flengdi menn að lokum
Þá eru komin lokaúrslit í golfið á Florida 2014. Það fór svo að enginn átti séns í Óla og hann hafði 15 stiga forskot á PGA kennarann að lokum. Hann fékk 160 dollara fyrir sigurinn sem eru nokkrum núllum minna en Fedex mótaröðin er að greiða út. Við væntum þessa að þessi klyfingur verði ekki lengi að ná forgjöfinni niður fyrir 20 næsta sumar. Lokastaðan er eftirfarandi þar sem fjórir bestu hringir telja:
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 17:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2014 | 00:05
Day 7 HOS Florida 2014
Glæsilegu lesendur og aðdáendur Hallahipp.
Viljum byrja á því að þakka öll innlitin og lesninguna á síðunni. Við erum komnir á næst síðasta dag ferðarinnar, shit hvað þetta líður hratt. Öll skrif lágu niðri í gær á síðunni þar sem talvan var í viðgerð í svokölluðu "clean the keyboard" eftir að einn gleymdi að sleppa tölvunni áður en hann kastaði sér í laugina.
Annars var dagurinn í gær nokkuð góður. Farið var á Skyview golf course sem er snilldarvöllur í um 10 mínútna fjarlægð frá okkur. Það var vaknað snemma, áttum rástíma klukkan 8. Ekki voru allir mættir á teig á réttum tíma en Halli gleymdi tíum heima og þurfti að snúa við. Þrír aðrir mættu of seint en þeir voru að koma beint úr verslunarferð í Tampa en þar er ein stærsta undirfatabúð í USA. Annars gekk golfið vel þegar allir voru mættir til leiks. Stöðuna má sjá í færslunni á neðan. Menn voru á rosalegu skori og menn á gráa svæðinu allir kandídadar í rössun. Óli frændi var alveg að meika það og setti í 46 punkta. Aðrir voru í ruglinu þó svo að nokkrir lækkuðu í forgjöf, en það þykir nú ekki merkilegt í þessum hópi. Sumir náðu þó í nokkra puntka í sundlauginni en þar voru gefin 10 punktar fyrir hverja tá sem dýft var í laugina. Nú hófst mikil reikistefna eftir hringinn þar sem 6 manns úr hópnum vildum allir fara í meiri búðir. Eftir mikla samninga tókst að henda saman í 9 holu Texas, þar sem liðin spiluðu bæði undir pari. SVO VAR FARIÐ Í BÚÐIR AFTUR. Gærkveldið var svo í rólegri í kantinum en hent var í eitt pizzupartý. Gamla liðið sofnaði allt eftir 10 fréttirnar en kjúklingarnir voru að standa sig margir hverjir. Siggi og Hemmi enduðu á trúnó til klukkan 6.
Þá að deginum í dag. Heimavöllurinn var spilaður í dag. Menn fengu að lúlla aðeins lengur en vanalega þar sem planið var bara 18 holur. Menn mættu á teig rétt fyrir klukkan 11. Mikil flugeldasýning var í klæðnaði enda búið að detta í nokkrar búðirnar. Frændi var í svo skærum litum að hinir spiluðu allir með sólgleraugu þrátt fyrir að það væri skýjað. Annars gekk golfið bara vel, 2 spiluðu til lækkunar , ÁSINN OG FRÆNDINN. En þess ber að gera að Óli frændi spilaði eins og fífl í dag þrátt fyrir lækkun. Aðrir voru á gráa svæðinu en golfkennarinn okkar Ragnar Lárus var að útskrifa nemendur í dag og slóg því bara með til gamans og gaf ráðleggingar og tips. Svo var kíkt á 19 holuna á eftir en nýji barinn var að opna þar í gær. Í því tilefni var boðið upp á svarta bolta. Þar duttu menn í salatið og baunirnar en skammtarnir af mat þarna voru hálf aumingjallegir. Því var farið beint á Mac Donalds á eftir.
Það er rétt að minnast á það að PGA golfskóla Ragnar Lárusar lauk í dag með útskrift á 3 nemendum. Tveir náðu en einn féll. Námskeiðið er skipt upp í nokkra þætti. Þrátt fyrir að menn náðu prófinu féllu menn í nokkrum þáttum. Óli féll í Anger Management, Axel féll í bóklegu um "tímastjórnun" og Hemmi féll í vélritun. Eins og þið sjáið þá var námskeið mjög fjölbreytt og krefjandi. Næsta námskeið hjá Ragnari er á Jullliete Falls í október en þar verður boðið upp á nýjan þátt en það heitir sjálfstjórnun á barnum og bannað að stara". Þess ber að geta að Ragnar lærður PGA kennari frá Grænlandi með lægstu forgjöf á golfvöllum sem eru þaktir ísi.
Annar þakkar hópurinn fyrir sig, veit ekki hvort það koma fleir færslur þar sem það er ferðadagur á morgun en stefnt er á að spila 18 holur á morgun.
HOS Florida þakkar fyrir sig..................over and out. Kveðja frá strákunum
ps . sérstök kveðja á Tíðindamanninn og Bobby Fischer
ps. ÁSINN er bestur
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.9.2014 | 03:36
Day 5 - allir komnir í enskuna
Elsku Íslendingar, Snuddur, Haren , SnudduHaren og aðrir. Þá er dagur 5 að baki í HOS Florida 2014. Engin færsla var sett inn í gær og einungis staðan send. Gaman að sjá komment frá fornleifafræðingnum og Tíðindamanninum. Í gær var spilaður völlur sem heitir Juliette Falls, en sá völlur var valinn 10 besti völlur í USA árið 2012. Heimsókn HOS mun sennilega koma þessum velli í fyrsta sætið í ár, enda var barist um að fá okkur á vellina hér í USA. Flestir spiluðu gott golf í gær þar, Óli henti í 41 punkt og voru menn sem enduðu í 33 punktum rassaðir. Tókum svo 9 holu Texas þar sem 55 ára og eldri unnu kjúklingana. Gærkvelið endað á ABBABEE og var okkur heilsað "takk fyrir síðast". Halli and the gang mætt. Menn byrjuðu á G og T nema Vítamínið og Túkallið hentum í einn 007 kokteil , með 8 kílóum af salt á barminum, dassa af hinum ógleymanlega TEkíla og smá lime. Ógleymanlegur drykkur en Halli elskaði þetta enda bragðskynið farið á þessum aldri. Enn og aftur var happyhour, menn pöntuðu tvöfaldan skammt, alveg óvart. því miður var karokí ekki í boði þetta kveld en engu að síður hélt HOS hópurinn uppi stuðinu.
Ræs and shæn var eldsnemma í morgun þar sem hópurinn átti rás kl 8. Þetta byrjaði vel í morgun þar sem annar bíllinn var að verða bensínlaus og við á síðasta snúning í að ná rástíma. Þá voru góð ráð dýr og vildi svo vel til að einn í hópnum var svo mikið mál og "tankaði hann". Ferðinni var heitið á CItrus Spring sem var valinn annar besti völlur í heiminum, árið 1887. Hann stóð sannarlega undir nafni. Svona vel hirtur og flottur völlur hefur maður aldrei séð áður. Green keeperinn mesti snilingur allra tíma, gráhærður með sítt að aftan í tagl. Vel gert. Maður fylltist spenningi og öryggistilfinningu. Hvað um það menn hófu leik. Brautirnar voru aðeins í loðnari kantinum en "NORÐAN menn US segja að það sé rosa gott", sagði gráni. Hér voru hlutirnir að gerast, eftir 18 holur, skelltu 3 í lækkun, Óli formi frændi hent í 38 kvikindi eins og Hvíti hákarlinn. Þetta var ekki neitt, Haraldur túkall setti upp sýningu og 43 punktum, þannig að hann lækkaði forgjöfin vel í daga og er komin því með 45,1. Heggi sagði samt eftir hringinn "hann var ekkert sérstakur, þetta var engin flugeldasýning", einmitt.
Nokkrir vildu svo halda áfram en aðrir ekki. Heggi, Siggi, Reynir, Halli og Hemmi tóku 18 holu Texas á Júlíu Falli. Hinir fóru í Wallmart, en þar var 2 fyrir 1 af golfboltum og ekki veitti af.
Endað var í ala Óla Tudda Benn upp í húsi. Kokkurinn búinn að standa sig eins og hetja.
Nú er í gangi óskalagakeppni, hver fékk að velja eitt lag. Hemmi valdi Framlagið, Raggi valdi Gullvagninn, Heggi valdi "The Gardener" með Pink Floyd, Halli valdi "kaffibrúsakarlana" og Óli frændi valdi Britney Spears. Aðrir voru út á túní valalagi.
Þangað til seinna................við erum farnir að sofa or not..............
Kveðja til hinna HOS , Seve , Tíðindamannsins og Begga golfara. Góða nótt Jenni minn
kveðja
HOS Flordia 2014
Látum þetta duga í bil
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.9.2014 | 00:18
Staðan eftir fyrstu 4 dagana
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 00:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.9.2014 | 03:53
Dagur 3
Daginn, við vilijum biðja afsökunar á því hversu slappar færslunar voru á degi 1 og 2. Það er bara ein ástæða fyrir því , to much alcahol. Að vísu setti Halli einn Miller lite yfir tölvuna hjá Reyni í gær og var hún því ekki tiltæk í gær.. Hvað um það við erum mættir. Ferðadagurinn gekk vel, áfengis birgðarnar kláruðust í vélinni og allt efitr plani. Daginn eftir voru teknar 36 holur (dagur 2 Haukur B). Byrjað var á 4 manna Texas. Siggi, Reynir, Raggi og Óli unnu H-in 3 og Axel, vel gert. Þetta var ekki í spilunum. Svo var punktaleikur og henti Vítamínið í 37 kvikindi og aðrir minna. Kveldið var svo tileinkað Applebees, en það er svona fjölskyldlustaður með karókí ívafi. Eftir góða steik og 67 kokteila, var kominn tími til að keyra þetta í gang. Mótstjórinn ákvað að þetta yrði kveldið hans. Hann ákvað að draga liðið í karókí. Fyrstir á svið voru Halli, Siggi og Raggi. Okei Raggi tók að vísu bakröddina. Það var ekki spurning, við áttum salinn. Mótstjórinn fannst ekki nóg komið og skellti í annað lag. Spursarinn ákvað að næst yrði sungið YNWA. Liverpool menn og Halli mættu á sviðið. Reynir, Siggi, Hemmi og Halli áttu salinn, þvílíík fagnaðarlæti í salnum. Salurinn tók vel undir og fór það svo að lokum að Halli & The Gang var fór aftur á svið eftir að hafa verið beðnir um óskalag..... YMCA sem reyndar er oft ruglað við lag eftir Eirík Fjalar eða skrifað oft XXYX. Sumir fengu samt ekki sinn besta Kokteil. Eftir að Hos hópurinn hafði slegið í gegn á sviðinu þá var komið að tíma Túkallsins. Nú átti að ná í einn góðann kokteil. Hann prufaði 11 stóla við barinn en aldrei fékk hann afgreiðslu á barnum. Vinirnir voru kallaði til en það gekk ekki heldur. Ástæðan kom svo í ljós stuttu síðar, framkvæmdastjóri staðarins kom og skýrði þetta út. "Þið erum búnir með ykka áfengis kvóta". Við pöntuðum reikninginn og þá skildum við hann, reikningurinn var 3,5 metra strímill.
Það verður samt að minnast á þátt aðalleikonunar úr Every body loves Raymond. Hún var á staðnum og náði fljótt ástarsambandi við hópinn. Það endaði þannig að einn úr hópnum flaug með hana yfir til Las Vegas og þau settu upp hringa. Love hearts.
Annars var spilaðar 18 holur í dag á Skyview Course. Raggi og Hallil settu gott mót. Staðan mun fylgja hér á eftir en samanlagðir punktar á bestu 4 munum telja. Frábær völlur og allt að gerast. Gamla fólkið var svo sent í búðina en 4 vaskir fóru í Texas 9 holur. Nenni ekki að ræða það.
Annars eru allir góðir, Hemmi er farinn út fyrir rammann, Óli er hættur að telja kindur áður en hann fer að sofa og telur nú bara kóngulær, Túkallinn er með nýja hatt, Heggi er að vinna í garðinum (allt annað að sjá garðinn), Reynir er að þurrka tölvuna, Axel er að lifna við í golfinu, Raggi er ennþá í aulahúmórnum.
Over and out
Hos Florida 2014
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar