Færsluflokkur: Íþróttir
21.9.2014 | 05:45
Dagur 2
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 05:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2014 | 10:40
Síðastur en ekki sístur
Jæja það er ekki seinna að vænna en kynna síðasta liminn. Það eru 7 tímar núna í brottför þegar þetta er ritað og mikill spenningur kominn í hópinn. Ég ætla ekkert að bregða út af vananum og hendi inn lýsingu sem Ragnar Lárus gerði á karlinn fyrir Spánarferðina.
Síðast en alls ekki síst kynnum við fararstjórann til leiks. Sigurður Egill Vítamín/Mæjó Þorvaldsson er síðasta Snuddan sem kynnt er til leiks. Hann er eins og margir í hópnum uppalinn í Framhverfinu, fyrst á Háaleitisbraut og síðar í Álftamýrinni, þar sem þeir feðgar héldu bestu partýin. Siggi hóf síðar búskap með Röggu sinni í Álftamýrinni og var heimili þeirra alltaf opið fyrir félaganna, og ekki voru veislur þeirra síðri en feðganna.
Siggi er þeim hæfileikum gæddur að hann er góður í öllum íþróttum sem hann kemur nálægt. Margfaldur Íslandsmeistari í handbolta með yngri flokkum Fram, unglingalandsliðsmaður í þeirri grein, spilar enn fótbolta í hæsta gæðaflokki í utandeildinni og í enn meiri gæðum á fimmtudagskvöldum í Álftamýrarskóla. Þá er hann aðaldriffjöðurin í Harlem Globetrotters hópnum sem hittist í körfubolta á þriðjudögum í Árbænum. Ekki lætur Siggi þar við sitja, heldur stundar golfið af miklum krafti, svo miklum að hann er kallaður Torfi í þröngum vinahóp, en grastorfurnar fá sko sannarlega að finna fyrir því þegar Siggi sveiflar og er uppá sitt besta. Siggi er einmitt frægur fyrir virkilega skemmtilegar sveiflur og verður spennandi að sjá hvaða sveiflu hann mætir með til Spánar.
Siggi er mikill félagsmálafrömuður. Hann situr í stjórn handknattleiksdeildar Fram þar sem hann sér um alla heimaleiki félagsins, er í foreldraráði bæði hjá HK og Breiðablik í handbolta, fótbolta og körfu, dansráði hjá djassballetskóla Báru og verður farastjóri með 50 spræka Hkinga í keppnisferð til Svíþjóðar milli jóla og nýárs. Sigurður er fremstur meðal jafningja í foreldrahóp hjá Breiðablik sem kalla sig Grænu flíspeysurnar og hannaði m.a annars slagorðið Ekkert hik Breiðablik. Þá má ekki gleyma hans mikilvæga starfi sem ritara Snuddanna, en það starf tekur líklega mestan tíma af öllu fyrrnefndu og heilt ritsafn sem liggur eftir hann á þeim vettvangi. Þá er hann einnig formaður húsfélagsins Lautasmára 8.
Fyrrgreindu sinnir Siggi af miklum áhuga og eljusemi ásamt því að vera aðalfararstjóri í Snuddu-Haren ferðinni til Spánar, aðstoðarmótastjóri Snuddu-Haren mótaraðarinnar og formaður afhendingar- og afmælisnefndar.
Ál er hans ær og kýr, en hann hefur starfað í álverinu í Straumsvík frá 17 ára aldri er leiðtogi þar, slökkviliðstjóri og formaður skemmtinefndar og starfsmannafélagsins.
Sigurður er líklegur til stórafreka á Spáni og líklegur til að vinna verðlaun fyrir flottustu sveifluna og glæsilegustu dressin. Það er ekki hjá því komist að velta því fyrir sér Er hans tími kominn . Bjóðum fararstjórann og dugnaðarforkinn Sigga sæta velkominn til leiks:
Hitti svo karlinn fyrir framan spegilinn á klósettinu í Álverinu og náði tal af honum.
Fullt nafn: Sigurður Vítamín Þorvaldsson
Gælunafn: Vítamínið
Hæð: Rétt tæplega Hemmi
Þyngd: 102 kg pure muscles
Áhugamál: Jenni Duddurrddu, pólítíkin á Samúa
Skóstærð: Helmingi stærri en Heggi
Limastærð: Konan er sátt, liggur oftast niður með vinstri skálminni
Mottó: Ná Jenna
Uppáhaldsfélagslið í ensku: YNWA og Wimbledon
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: Ekki KR
Golfklúbbur: GKJ núna, hef þó fengið fullt af tilboðum og núna nýjasta er frá ST Andrews eftir að kvennfólki var heimiluð þátttaka
Forgjöf: Fáranlega lág, 14,9 bíð eftir að stutta spilið kikki inn og rikkurinn fari
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft: 13,5
Besta skor á hring: 80 högg double á 17 og 18. shit
Flestir punktar á hring: fjörtíuogeitthvað
Vandræðalegasta golfmómentið: Þegar Reynir henti sér út úr bílnum þegar húsflugan flaug þar í gegn. Einnig er náttúrlega hálfvandræðanlegt að vera alltaf að setja holu í höggi og aðrir líta illa út.
Uppáhaldsgolfvöllur: Arcos Garden og Sherry, vona að ég fái nýjan uppáhaldsvöll eftir Florida ferðina
Tegund járnasett: Handsmíða og logsoðið Callaway X 18 voða flott
Tegund driver; Matti B 49 og svo Púlli
Tegund pútter: Magnað verkfæri - Dísey
Uppáhaldskylfan í pokanum: Fáranleg spurning - Pútterinn
Lægsta skor á eina holu: 1 - Ásinn
Hvernig gekk á HOS mótaröðinni 2014: Byrjaði illa með vorverki en endaði með bakverki
Uppáhaldsleikmaður á HOS mótaröðinni: Hér er komið saman mikið úrval af miklum snillingum. Er erfitt að gera upp á milli þeirra. Mér finnst mjög gaman af Tryggva malarspól, Jenna mús þegar hún mætir, Binnsi er sígildur (sá einhver boltann minn). HLHHH flokkurinn er einnig flottur og miklir snillingur. Snuddurnar bera þó alltaf af á velli.
Tommi eða Jenni: Tommi allann daginn, hann vinnur alltaf (nema í teiknimyndum sem eiga sér engar stoðir í raunveruleikanum).
Væntingar fyrir Florida 2014: Sóttsvartur og skjálfandi á teig á hverjum morgni. Aumir rassar eftir refsingar.
Veistu hver er Tíðindamaður HOS mótaraðarinnar: Hallur Hallsson
Ertu með langan innkaupalista frá frúnni fyrir Florida ferðina: Hann er ekki kominn enn.
Þínar hugmyndir hvernig mótið muni þróast erlendis: Ég á von á því að strax í Keflavík muni menn komast á skrið og trompa strax á fyrsta degi. Þetta mun svo fjara út þegar líða tekur á ferðina. Í golfinu mun Halli og Raggi byrja mjög sterkt en svo fjarar undan þeim. Ásinn siglir þessu í höfn eins og vanalega.
Finnst þér að það eigi að leggja rassaboltarefsinguna niður: Aldrei á meðan ég er í þessum félagsskap, þvert á móti ætti að bæta í og jafnvel rassa á milli hringja eða á hring. Í holu keppni ætti að rassa eftir hverja holu. Boltinn er kominn í töskuna.
Hrýtur þú: Ekki segir hún , þó Raggi og Reynir hafi aðra skoðun eftir að hafa legið nokkur skipti undir sæng hjá mér.
Hefur þú verið slæmur í baki: Aldrei
Ef já, veistu ástæðuna fyrir því: Spurðu Reyni
Ertu hræddur við krókódíla: Elska Lacoste, ég skal passa ykkur úti stelpur mínar
Mun Hemmi Haukss fara út fyrir rammann í ferðinni: Það er ekki fræðilegur í helvíti. Gæti hins vegar að ramminn muni stækka í ferðinni.
Góða ferð Sigurður minn
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2014 | 11:38
Spáð í spilin fyrir Florida 2014.
Fullt nafn: Haukur Bragason
Gælunafn: Stundum kallaður tíðindamaðurinn...veit ekki afhverju.
Hæð: u.þ.b 180 cm (held að ég sé farinn að ganga eitthvað saman :-)
Þyngd: u.þ.b. 80 kg.
Áhugamál: Já.
Skóstærð: 42
Limastærð: Nær a.m.k. meðaltali EU.
Mottó: Þetta kemur bara á næstu holu :-)
Uppáhaldsfélagslið í ensku: Manchester City
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: Fram
Golfklúbbur: GKJ
Forgjöf: 12,4
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft: 8,5 í einhverju vallarmatsrugli hér um árið (tók mig 2 ár að leiðrétta það á golfvellinum :-)
Besta skor á hring: 77 í Mosó.
Flestir punktar á hring: 44 pkt. í Mosó.
Vandræðalegasta golfmómentið: Var að vinna í slæsmálum á æfingasvæðinu í Mosó um árið...breytti uppsetningunni og tók svakalegt húkk til vinstri og braut rúðu í húsi í Svöluhöfða :-). Þegar ég knúði dyra hafði húsbóndinn legið steinsofandi sófanum og hélt að krakkaandskotarnir hefðu verið eitthvað djöflast :-)
Uppáhaldsgolfvöllur: Einhvern veginn fæ ég ekki leið á Mosanum...alltaf jafnmikill áskorun að spila hann. Síðan er hinn frábæri HAREN-völlur í Þýskalandi eftirminnilegur.
Tegund járnasett: Callaway
Tegund driver: Núna, 12 ára gamall Ping G2 (helvíti solid kylfa).
Tegund pútter: Odissey sem ég hef átt í ástar- og hatursambandi í s.l. 8 ár.
Uppáhaldskylfan í pokanum: Pútterinn þegar hann og ég erum í stuði.
Lægsta skor á eina holu: Örsjaldan fengið 0 pkt. á eina holu :-)
Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni: Maður gerir ekki upp á milli barnanna sinna!
Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni: Sigurður getur verið stundum smekklegur en stundum er hann alveg ferlegur...segi bara Halli þegar hann er grænu terlín-buxunum sem þorna á 10 mín. eftir að hafa rennblotnað...það er eitthvað svo fallegt við það :-)
Hvernig fer HOS Florida 2014: Þarna mun eðlisfræði flata skipta miklu máli (þá er ég að meina yfirborðsflata kroppa en ekki golf-flata). Ég held að Halli og Reynir verði að berjast við uppþornun sökum yfirborðsflatarmáls. Samkvæmt eðlisfræðinni ættu stóru mennirnir Raggi, Heggi og Hemmi að hafa hagstæðasta yfirborðsflatarmálið o.þ.l. að höndla best innbyrta drykki og útgufunina sem síðan leiðir til skynsamlegrar hugsunar sem aftur hjálpar til við spila viðundnandi golf. Restin af hópnum er síðan algjörlega óráðin stærð.
Hver telur þú að muni drepast fyrstur á Florida: Ef Halli þyrfti ekki að keyra fyrsta daginn myndi hann örugglega detta út úr bílnum á áfangastað eitthvað segir mér að Siggi eigi eftir að dotta í sófanum.
Hverjar eru þínar væntingar til Floridafarana: Að menn komir nú útiteknir tilbaka.
Mun tíðindamaðurinn vera með fréttir frá Íslandi: Hver er það ??
Þínar hugmyndir hvernig mótið muni þróast erlendis: Þarna komum við aftur að vökvafræðinni. Sá sem getur haldið sér seigfljótandi alla daga án þess að verða timbraður og getur komið morgunmat í sig á hverjum degi...hann mun sigra :-)
Finnst þér að það eigi að leggja rassaboltarefsinguna niður: Bara alls ekki. Þar sem þið eru staddir í landi skrýtna fótboltans legg ég til að keyptur verður amerískur knöttur sem notaður verði til þess arna Þegar líður tekur á ferðina gæti jafnvel, einhverjum, hugsanlega, þótt nokkuð gott að fá hann Í SIG. :-)
Ertu sáttur við þína spilamennsku í sumar: Ekki alveg forgjöfin hefur farið upp sem segir allt.
Ertu stundvís: Alltaf mættur 20-30 sek. fyrir tee-off.
Hverjir verða rassaðir fyrst á Florida: Stóru mennirnir munu rassa litlu mennina...og kyssa svo á bágtið :-)
Veist þú hver Tíðandamaðurinn á HOS er: Ekki grænan .kannski Hanna?
Hver vinnur Florida 2014: Tippa á Axel eða Óla.
Verða menn meira í golfi eða mollinu á Florida: Er þetta ekki golfferð ????
Ert þú hræddur við krókódíla: Jebb...heilræði til ykkar; "ball in waterhazard stays in a waterhazard"
Fallegust fyrir utan konuna: Það toppar ekkert Hönnu.
Munt þú mæta sterkur til leiks í næstu golfferð: Alltaf sterkur.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2014 | 20:03
Forgjaftöflur á Florida
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2014 | 12:53
Leikmaður númer 7 á HOS Florida 2014
Það er það leikmaður númer 7 H. Elíasson from KJölur Moso. Hann hafði lítinn tíma til að ræða við ritarann og svaraði öllum spurningum í miklu flýti.
Læt Spánarlýsingu fylgja hér ásamt viðtalinu við hann þegar ég hitti hann en hann var í einhverju sérverkefni.
Leikmaður sem við kynnum er enginn annar en H.Elíasson from Kjölur Mosó. Hergeir eða Heggi eins og hann er oft kallaður er fæddur í Framhverfinu, fljótlega eftir stríð. Þeir sem muna ekki eftir honum , þá var hann bílstjórinn í lokamóti Haren í Borgarnesi, enda kominn af miklum ökumannsættum, en móðir hans var kjörinn ökumaður ársins frá árunum 1950 til 1970 af Umferðastofnun Ríkisins. Þessi unglingspiltur frá fljótt uppgötvaður sem mikið fótboltaefni og var fljótt tekinn inn í knattspyrnuakademíu Alberts Guðmundssonar og átti að búa til framtíðarstjörnu. Kvennafarið og Bakkus sigruðu þann draum að lokum en þess ber að geta að hann stundar enn knattspyrnu á fimmtudagskvöldum í Álftamýrarskóla (eftir myrkur) og fara góðar sögur þar af honum og greinilegt að hann hefur þetta allt saman ennþá, nema hraðann og tæknina.
Hergeir hefur komið víða við en hann fluttist til Danmerkur og hóf nám þar. Eftir námið lág leiðin til Píluskins þar sem hann starfaði við að gefa gömlum verkamönnum bjór og gammel á morgnana og í hádeginu. Eftir árangursríkt starf í Danaveldi fór hann í útrás (langt á undan öðrum) til Samúa, Færeyja, Noregs og fleiri góðra staða. Hann komst fljótlega í landslið Samúa í bananaklifri og á nokkur landsmetin þar.
Nú eftir langan of farsælan feril hefur hann sest að í Safamýri 11 og gerst bóndi. Hann leggur áherslu á garðrækt en útilokar ekki að gerast svínabóndi seinna meir. Hann dvelur nú löngum stundum í garðinum en guð má vita hvað hann er að gera þar.
Inni á milli þegar hann er ekki arfavitlaus í garðinum stundar hann golfið. Hergeir er með þeim sterkari á Snuddu Haren mótaröðinni og endaði í 2.sæti þar í sumar. Virkilega stabíll kylfingur og fáir með svona mjúka John Daily sveiflu. Þar verður mikið vænst af honum á Spáni.
Fullt nafn: Hergeir Ás sonur Ella á Sæbrautinni
Gælunafn: Ásinn, Tvisturinn, Hús kötturinn, Ernie Els, Big easy
Hæð: Rúmlega metri
Þyngd: Shit, komið 101 kg á vigtina, still counting ..
Áhugamál: Latex gallar, almennar rólur og handjárn
Skóstærð: Vill ekki gefa upp nákvæma stærð, geri eins og sokkarnir eru merktir 27-32
Limastærð: Ekki kallaður Big Easy fyrir ekki neitt
Mottó: Ekki er hey í harðindum nema garð þú eigir
Uppáhaldsfélagslið í ensku: Liverpool
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: DDP og þriðjudagskarfan
Golfklúbbur: Hef ekki fengið neina umsókn samþykkta ennþá, það liggja þó nokkuð margar inni hjá klúbbunum á landinu. Fékk þá jákvæð viðbrögð frá Ljúfling í Oddi.
Forgjöf: Rising
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft: 28.5
Besta skor á hring: 80 högg á 9 holum
Flestir punktar á hring: Hvað er punktar
Vandræðalegasta golfmómentið: Þau eru mörg .er líka alltaf farinn að tapa fyrir Ásinum í höggleik
Uppáhaldsgolfvöllur: Væntanlega Ljúflingur í Oddinum ef ég kemst inn
Tegund járnasett: Pink Ladies 500 Offsett
Tegund driver: Ragnar Lárus áður en hann byrjaði að drekka aftur
Tegund pútter: Nota ekki pútter, chippa alltaf beint í.
Uppáhaldskylfan í pokanum: Nota ekki poka
Lægsta skor á eina holu: 6 högg
Hvernig gekk á HOS mótaröðinni 2014: Illa ég vann
Uppáhaldsleikmaður á HOS mótaröðinni: Ég sjálfur
Tommi eða Jenni: Báðir saman eru þeir frábærir dudurudddud
Væntingar fyrir Florida 2014: Versla sem mest fyrir konuna
Veistu hver er Tíðindamaður HOS mótaraðarinnar: Siggi Geirss ??
Ertu með langan innkaupalista frá frúnni fyrir Florida ferðina: Skilgreindu langt, 8 blaðsíður ??
Þínar hugmyndir hvernig mótið muni þróast erlendis: Já það mun þróast
Finnst þér að það eigi að leggja rassaboltarefsinguna niður: Já helst , ég er að drepast ennþá í rassgatinu
Hrýtur þú: Spurðu Halla
Hefur þú verið slæmur í baki: Já
Ef já, veistu ástæðuna fyrir því: Ekki nóg garðvinna
Ertu hræddur við krókódíla: Allavegna Lacoste, geng aldrei í svoleiðis
Mun Hemmi Haukss fara út fyrir rammann í ferðinni: Spurðu Sigga Tomm, það fer eftir stærð á Rammanum.
Ásinn óskar honum góðs gengis og skemmtunar á Florida
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2014 | 11:33
Leikmaður númer 6 á HOS Florida 2014
Þá kynnum við til leiks, hinn risann á Florida, Ragnar Lárus Kristjánsson. Þessi stóri og stæðilegi leikmaður hefur nú tekið golfið föstum tökum eftir þrolausa vinnu í Básum árum saman. Hann er nú að berjast við bakið á sér þessa dagana og sækir sálfræði tíma til Reynis Stefánss á hverjum degi fyrir ferðina. Sögur segja að hann sé allur að réttast við enda með mjög færan sálfræðing. Ég læt flakka með fyrra lýsingar af Ragnari fyrir Spánarferð forðum.
Næstur á mælendaskrá er stóri maður með gælunöfnin Ragnar Lárus Kristjánsson. Hann er 4 Snuddan af 5 sem við kynnum til leiks. Ragnar er alinn upp í Álftamýrinni og er mikill Framari og situr þar í stjórn. Ragnar er mikill húmoristi og grínisti og hugsa ég að hann taki við hlutverkinu af Jóni Ara að bulla í mönnum. Hann kemur úr handboltanum og spilaði þar sem línumaður. Hann var sérstakur áhugamaður á yngri árum að fá æfingaleiki við meistaraflokk kvenna, wonder why, allavegana voru sumar blokkeringarnar ansi skrýtnar og ólöglegar. Pilturinn spilaði með öllum yngri landsliðum Íslands og spilaði nokkur ár í meistaraflokki Fram en endaði ferilinn í Breiðablik með fararstjóranum og Geira Hallsteinss. Hann skoraði ófá mörkin úr hraðupphlaupum og lang fyrstur fram, en ástæðan var vanalega sú að hann var lengi að koma sér í vörn og við búnir að vinna boltann aftur. Einnig var hann einn af fáum leikmönnum á Íslandi sem notaði harpix bara í vörn, enda margir mótherjar skrautlegir í framan eftir leik. Þetta er fyrsta ferðin sem Ragnar kemur með okkur í golferð en hann hefur þó farið styttri ferðir til Englands. Hann hefur ekki mikið verið að flagga sveiflunni undanfarin ár og er eini Íslendingurinn sem er í Golfklúbbi Bása en þess ber að geta að hann er klúbbmeistari þar frá árinu 2008 og unnið öll árin síðan. Hann kom með þá hugmynd í gær að hafa lokamót SnuddHaren í Básum á næsta ári. Hann kom þó sterkur inn í sumar og spilaði grimmt með okkur. Virkilega ánægjulegt að sjá karlinn kominn á Mosó völlinn. Þó forgjöfin sé ennþá há hefur hann alla burði til að ná góðum árangri og lækka hratt. Það er ekki hægt að sleppa því að minnast á golfsýninguna sem hann setti upp fyrir austan á Neistaflugsgolfmótinu um verslunarmannahelgina. Á einni brautinni þurfti að skjóta yfir ánna yfir á greenið, ca 100 metra högg (50 metra yfir ánna). Ég var í hollinu á eftir honum og biðum við í 20 mínútur eftir að sýningu myndi ljúka. Það fóru 12 bolta í ánna en einnig var fullt af fólki í klúbbhúsinu og varð vitni af sýningunni. Eldri maður var með mér í holli og komst hann skemmtilega að orði þetta verður ansi dýrt fyrir hann.
Eins og ég nefndi áður hefur hann fullt af gælunöfnin eins og sjá má í viðtalinu við hann. Eitt viðurnefnið er lakkskórinn en hann mæti í leik í útandeildinni í fótbolta á sunndagsmorgni kl. 9 en var rekinn út af eftir 5 mínútna leik fyrir að vera í lakkskóm en hann var að koma beint af djamminu. Hann á fleiri afrek á knattspyrnuvellinum en hann er gamall Íslandsmeistari í yngri flokkum. Skemmtilegt atvik var líka þegar hann hreinsaði einu sinni frá að boltinn fór svo hátt upp í loftið að viðbótartíminn var 6 mínútur.
Fullt nafn: Ragnar Lárus Kristjánsson
Gælunafn: mörg í gegnum tíðina, á erfitt með að gera upp á milli
Hæð: 195 cm
Þyngd: Aðeins of þungur tek á því eftir ferðina (5/2 kerfið hans Óla form)
Áhugamál: Allar íþróttir, í seinni tíð aðallega sem áhorfandi
Skóstærð: 47-48
Limastærð: Breytileg, margir vilja meina að þetta sé í takti við skóstærð
Mottó: Lifðu í lukku
Uppáhaldsfélagslið í ensku: Arsenal
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: FRAM
Golfklúbbur: GKJ
Forgjöf: 30,9
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft: 26,2 (þá skráði ég bara inn góðu hringina)
Besta skor á hring: 95
Flestir punktar á hring: 41
Vandræðalegasta golfmómentið: Fyrsta golfmótið á Grænanesvelli, þar sem Neistaflugsgolfmótið tafðist aðeins meðan undirritaður var að reyna að komast yfir Norðfjarðaránna á 8.braut
Uppáhaldsgolfvöllur: Grænanesvöllur
Tegund járnasett: Adams
Tegund driver: Ping
Tegund pútter: Man ekki er með einn gamlan og góðan frá árinu 1987. Mögulega nota ég tækifærið og fæ mér nýjan í ferðinni, þessi hefur ekki verið að virka og komin ágæt reynsla á hann.
Uppáhaldskylfan í pokanum: Sjöan
Lægsta skor á eina holu: 2
Hvernig gekk á HOS mótaröðinni 2014: Þetta var brekka eins og alltaf
Uppáhaldsleikmaður á HOS mótaröðinni: Á erfitt með að gera upp á milli þessara snillinga. Vilbergur Flóvent kom samt sterkur inn á mótaröðinni 2014.
Tommi eða Jenni: Þetta er eins og að biðja mann um að gera upp á milli barnanna sinna, það gerir maður ekki
Væntingar fyrir Florida 2014: Engar
Veistu hver er Tíðindamaður HOS mótaraðarinnar: er það ekki Frú Hanna
Ertu með langan innkaupalista frá frúnni fyrir Florida ferðina: Eitthvað að bætast á listann þessa dagana
Þínar hugmyndir hvernig mótið muni þróast erlendis: Svipað og hjá mínu liði í Pepsi deildinni í sumar reddast samt allt fyrir rest.
Finnst þér að það eigi að leggja rassaboltarefsinguna niður: Er ekki rétt að halda í fornar hefðir
Hrýtur þú: Aldrei orðið var við það
Hefur þú verið slæmur í baki: Já, allt of mikið Siggi minn allt of mikið
Ef já, veistu ástæðuna fyrir því: Doktor Reynir Stef hefur verið óspar á ráðleggingar, vinn nú eftir stífu prógrammi frá honum til að komast í lag fyrir ferð.
Ertu hræddur við krókódíla: Nei, það ættu allir að eiga einn
Mun Hemmi Haukss fara út fyrir rammann í ferðinni: Er Hemmi að fara með ????
Fararstjórinn óskar Hvíta hákarlinum góðs gengis og skemmtunar á Florida
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2014 | 10:01
Leikmaður númer 5 á HOS Florida 2014
Þá er komið að mótstjóranum sjálfum frá HOS mótaröðinni, rándýr leikmaður. Hann hefur haldið utan um mótaröðina hjá Snuddum og Haren í mörg ár og staðið sig með sóma. Þetta er maðurinn sé fær sér rauðvín á föstudagskvöldum og sullar til klukkan 12 á miðnætti og er þá klár við tölvuna að skrá rástíma fyrir mánudagshópinn. Vil nota tækifærið og þakka mótstjóranum þetta örláta starf, sem hefur verið leyst mjög vel af hendi. Þá að pilti. Hann kom sterkur inn á mótaröðinni í sumar og verið stigvaxandi. Helstu fréttirnar eru þó þær að hann kláraði meistarmóti, 72 holur og gerði það með mikillil prýði og endaði í 2.sæti. Innilega. Hann spilaði svo besta hring lífsins í lokamótinu 81 högg og 41 punktur.
Ég er búin að lýsa Túkallinum svo oft að ég hendi inn fyrri lýsingu frá Spánarferð til upprifjunar
Jæja, þá er komið að mótstjóranum sjálfum, Haraldur Þór Gunnlaugsson. Þetta er aðal driffjöðurinn í golfhópnum, heldur utan um mótin, mótafyrirkomulagið, skipulagið og öllu því sem tilheyrir. Halli er líka eigandi af síðunni, sem við skrifum inná, en upphaflega ætlaði hann að nota hana til að skrá andlega íhugun sína en eini vinirnir sem skráðu sig á síðuna hjá honum voru Guðjón L. Og Vítamínið. Nú er síðan orðin aðalvettvangurinn til að halda utan um golfferðir, golfskipulag og allt sem tengist golfinu hjá Snuddu Haren. Haraldur er enn einn Framarinn í hópnum, og enn ein handboltastjarnan í hópnum. Hann er mikill spilamaður, margfaldur Íslandsmeistari í lokuðum bridge með fjórum laufum, 8 faldur bikarmeistari í félagsvist án atrennu og nú síðast Íslandsmeistari Tottenham klúbbsins í Olsen Olsen. Hann þykir mjög lunkinn með allt sem hann setur í hendurnar á sér, sama hvort það sé kylfa, spil, spaðar eða kjuði. Haraldur hefur farið í ófáar golferðirnar með okkur. Fyrst með Haren hópnum og svo hefur hann einnig farið í eina Snuddu ferð og það var akkúrat á Oasis Plantio fyrir 2 árum. Hann hefur séð um tónlistina í þessum ferðum við góðan orðstír fram af kvöldi , en það er þó ekki jafn fjölmennt á dansgólfinu undir morgun, þegar hann byrjar á Sigurrós Eitthvað hefur heyrst að undirbúningurinn gangi illa hjá mótstjóranum þar sem hann eigi við eymsli að stríða. Grunar þó að hann sé að beita einhver herkænsku hérna. Ef einhver sér Halla vera að leika MR. BEAN á kvöldin, þá er hann ekki að því, hann verður svona haltur og ráfar um eftir nokkra drykki. Vinsamlegast styðjið við hann ef þið verðið vitni af þessu. Halli mun halda utan um allt mótafyrirkomulag úti og hefur hann nú þegar sent dagskrána. Halli er mikill golfsnillingur og leiddi mótaröðina lengi vel fram að lokamóti í Borgarnesi, þar sem hann reið ekki feitum hesti, enda með hugann við norskar raflagnir.
Hitti svo kauða þar sem hann var að kenna golf í Básum. Námskeiðið sem hann stýrir þar er fyrir SHANK hópa.
Haraldur Þór Gunnlaugsson
Gælunafn
Túkallinn, Hipphopp Halli og ýmislegt fleira
Hæð
Passinn segir ennþá 178 cm en ég kvíð fyrir að fá nýjan passa
Þyngd
Líklega eittvað 10-15 kílóum yfir kjörþyngd, en mikið svakalega er ég stórbeinóttur.
Áhugamál
Passa að bakið sé í lagi, Sjá Liverpool tapa, golf, bridge, squash, badminton (hnit), billi og margt fleira
Skóstærð
Tveimur númerum stærri en konuleggurinn á Hegga
Limastærð
Lítil tippi lengjast mest
Mottó
Lífið er yndislegt
Uppáhaldsfélagslið í ensku
Tottenham
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi
Fram
Golfklúbbur:
Kjölur
Forgjöf
Eftir nýjasta hittið 14.4
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft
14.4
Besta skor á hring
81 högg
Flestir punktar á hring
47 punktar líklega annað árið í golfi.
Vandræðalegasta golfmómentið
Þau eru mörg en ég náði því um daginn að eiga vindhögg og það er langt síðan síðast.
Uppáhaldsgolfvöllur
Haren Golfpark
Tegund járnasett
Cobra
Tegund driver
TaylorMade R7, en nýi TaylorMade SLDR er mættur á undan mér til Florida
Tegund pútter
Ping Anser
Uppáhaldskylfan í pokanum
Það er breytilegt en eins og hjá Sigga V þá eru fleygjárnin líklega í mestu uppáhaldi
Lægsta skor á eina holu:
Örn á par 4
Hvernig gekk á HOS mótaröðinni 2014
Náði 3 sæti eftir að báðir mótherjar mínir fengu of góða makkera í Texas miðað við hversu slappir þeir voru.
Uppáhaldsleikmaður á HOS mótaröðinni
Þeir eru nú ansi margir en líklega er það helst Ásinn og Tvisturinn.
Tommi eða Jenni
Jenni er svo mikið krútt!
Væntingar fyrir Florida 2014
Stefni á sigur á punktamótaröðinni og að spila á forgjöf a.m.k. 4 hringi.
Veistu hver er Tíðindamaður HOS mótaraðarinnar
Nei en hvar er Digger?
Ertu með langan innkaupalista frá frúnni fyrir Florida ferðina
Hann lengist stöðugt
Þínar hugmyndir hvernig mótið muni þróast erlendis
Þetta á eftir að verða svakalega spennandi. Ef bakið á Ragga heldur þá á hann eftir að koma sterkur inn. Óli á eftir að kalla For a.m.k. 5 sinnum á hring, Reynir verður flottur ef hann slær í gegn og Siggi nær sínum 3. holu í höggi á árinu. Hemmi kemur sterkur inn og parar fjórar í röð og fær síðan einn fugl en tapar samt og Axel nær sínum besta hring.
Finnst þér að það eigi að leggja rassaboltarefsinguna niður
Ég myndi nú ekki sakna þeirra mikið en ef þær ætta þá missir maður úr hálftíma hlátur á dag þannig að ég er on!
Hrýtur þú
Það hefur aldrei böggað mig.
Hefur þú verið slæmur í baki
Var hjá kíró í tvö ár þangað til ég fékk uppljómun og fékk að vita hvaða tvær ástæður gætu legið að baki.
Ef já, veistu ástæðuna fyrir því
Já.
Ertu hræddur við krókódíla
Í huganum er ég hræddur en aldrei verið í návígi við þannig skeppnu.
Mun Hemmi Haukss fara út fyrir rammann í ferðinni
Ég ætla rétt að vona það.
Fararstjórinn óskar mótstjóranum góðs gengis og skemmtunar á Florida
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.9.2014 | 16:12
Leikmaður númer 4 á HOS Florida 2014
Næstur til leiks er enginn annar en Retro Stefsson. Þessi er sko alls enginn nýliði og er rótgróinn meðlimur í Snuddum, Haren og HOS. Hann hefur verið að spila gríðarlega vel í ár og komin með nokkrar lækkanir í forgjöfina. Þessi er líklegur á Florida. Reynir kemur úr Snuddu hópnum , einn 5 meðlima þar. Hann er alinn upp í Framhverfinu og eins og flestir okkar.
Ég las síðustu kynningu á Reyni þegar við fórum til Spánar og ég læt hana flakka hér, enda mjög áhugaverð lesning.
Næstum kynnum við til leiks Reynir Stefánsson eða Gorgeir Loftsson eins og hann er oft kallaður. Þessi piltur er meðlimur í Snuddunum og einnig ofvirkur formaður þess félags. Hann er sá sem hefur haldið félaginu gangandi og verið drifkraftur félagsins. Reynir er fæddur 1972 í Framhverfinu og er alinn þar upp. Hann á langan og farsælan handboltaferil að baki sem varamaður á bekknum í yngri flokkum Fram. Eftir þann feril snéri hann sér að þjálfun og náði góðum árangri þar og þjálfaði meðal annars Þór og KA fyrir norðan en hann flutti þangað og bjó þar í nokkur ár, en er nú kominn í bæinn og eyðir flestum sínum frístundum í svefnherberginu og afrekaði það að eignast 2 börn á innan við einu ári. Reynir hefur gert það gott í tölvuheiminum en hann byrjaði hjá Nett á Akureyri en starfar nú sem yfirmaður hjá Advania og sér um að koma öllum vírusum í umferð. Reynir er þekktur fyrir að eiga gullnar setningar eins og ég kem bara hvítur heim, þegar hann var rekinn í bolinn á Spáni eftir að hafa sofnað á maganum í nokkrar tíma í sólbaði. Blöðrurnar á bakinu á honum voru eins og hólarnir í Vatnsdal um kvöldið. Fræg setning er einnig hvað svo þegar við voru komnir niður á strönd á Spáni en hann vissi ekkert hvað átti að gera á strönd. Nokkrum mínútum seinna kom hann æðandi á fjórhjóli fram hjá öllum sem voru í sólbaði. Margir kannast við setningar úr golfinu, þegar einhver á slæm högg, þessi er týndur, þessi er out of bounds, þetta er bara víti.
Ég hitti Reyni fyrir helgi áður en hann fór til London að hitta golf þjálfara sinn til að setja lokahnykkinn fyrir golfferðina til Florida. Þess ber að geta að hann var hálf slappur í bakinu þegar ég hitti hann. Hann hafði enga skýringu á þessum bakverkjum.
Fullt nafn: Reynir Stefánsson
Gælunafn: Reynsi, Roy, Retro, Goggi
Hæð: 179cm
Þyngd: of þungur
Áhugamál: Golf og margt fleira
Skóstærð: hvaða spurningar eru þetta eiginlega
Limastærð: Breytilegt
Mottó: Lífið er yndislegt!
Uppáhaldsfélagslið í ensku: Liverpool
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi Fram
Golfklúbbur: GA og GKJ
Forgjöf, 21,7
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft: 21,4
Besta skor á hring 90 högg meistaramót á 2013.
Flestir punktar á hring 43 punktar tvisvar, Spánn 2011 og Mosó 2013
Vandræðalegasta golfmómentið: Þegar Hilmar henti mér út úr golfbílnum á Spáni 2012
Uppáhaldsgolfvöllur: Jaðar Akureyri
Tegund járnasett Ping G25
Tegund driver: Taylor Made (var þó að kaupa G25 sem býður mín úti)
Tegund pútter Ping B60
Uppáhaldskylfan í pokanum: PW
Lægsta skor á eina holu: 2
Hvernig gekk á HOS mótaröðinni 2014, upp og niður, gekk vel nema á þessum risamótum, klikkaði svakalega á þeim, en sigur á tveimur mótum og svo á lokadeginum í Texas scramble
Uppáhaldsleikmaður á HOS mótaröðinni: Tilvonandi herbergisfélagi
Tommi eða Jenni: Jenni
Væntingar fyrir Florida 2014: Já
Veistu hver er Tíðindamaður HOS mótaraðarinnar: Hinn eini sanni H. Bragason
Ertu með langan innkaupalista frá frúnni fyrir Florida ferðina: nei
Þínar hugmyndir hvernig mótið muni þróast erlendis: Ég vinn það
Finnst þér að það eigi að leggja rassaboltarefsinguna niður: uuuuu nei
Hrýtur þú: Aldrei
Hefur þú verið slæmur í baki: Nei aldrei, þetta snýst bara um að gera þetta allt rétt og nóg.
Ef já, veistu ástæðuna fyrir því
Ertu hræddur við krókódíla: já
Mun Hemmi Haukss fara út fyrir rammann í ferðinni: Ertu að meina Crocodile Dundee ?
Fararstjórinn óskar Reyni góðs gengis og skemmtunar á Florida
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.9.2014 | 11:21
Leikmaður númer 3 á HOS Florida 2014
Þá kynnum við til leiks, enn einn nýliðann á HOS mótaröðinni. Þessi var fundinn í Vesturbænum og á rætur að rekja til KR. Hér er á ferðinni einstakt ljúfmenni og þrífst vel í hópum sem eru mikið undir áhrifum áfengis. Móðir hans lýsir honum sem dagfarsprúðum manni , snyrtilegur með eindæmum, mikill humoristi og einstaklega lunkinn í íþróttum. Þó hann hafi ekki spilað golfið mikið þá hefur hann náð góðum tökum á því , þó hann hafi aldrei verið í klúbb, veit ekkert hvað punktar eru og á erfitt með að telja. Þetta er klárlega Wild card í þessari ferð, bæði varðandi golfið og dagdrykkjuna. Hann hefur þó ákveðið forskot á okkur hina þar sem hæðin er mikil á þessu knapa og mun hann sjá yfir tréin og völlinn og getur skoðað aðstæður framundan (gott af hafa þennan með sér í holli). Ég hitti Hergeir mág hans og hann lísti honum svona - "á góðum degi er hann Ásinn en dettur oft í Jókerinn þess á milli".
Það verður spennandi að fylgjast með þessu Wild cardi í Florida.
Ég hitti kauða þar sem hann var staddur í vinnunni í Boss búðinni í Kringlunni að afgreiða eina áttræða konu. Sá ekki betur en hann náði af henni mest öllum lífeyrinum og í þokkabót seldi henni bara karlmannsföt.
Fullt nafn Hermann Hauksson
Gælunafn Hemmi
Hæð 2,00
Þyngd 88,5
Áhugamál Körfubolti og flest allar aðrar íþróttir, Tíska
Skóstærð 44,5
Limastærð sjá skóstærð .
Mottó Lifa í núinu.
Uppáhaldsfélagslið í ensku Liverpool
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi KR
Golfklúbbur: Engin
Forgjöf í kringum 2526
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft Góð spurning
Besta skor á hring 99 .og já Siggi á 18 holum.
Flestir punktar á hring Ekki hugmynd
Vandræðalegasta golfmómentið Kemur örugglega í þessari ferð.
Uppáhaldsgolfvöllur Ventura í orlando, Kiðjaberg.
Tegund járnasett Top flite Pro respons
Tegund driver Callaway Diablo Edge 10
Tegund pútter Wilson
Uppáhaldskylfan í pokanum Diabloinn
Lægsta skor á eina holu: 2 á par 3 holu
Hvernig gekk á HOS mótaröðinni 2014 Þokkalega fannst mér bara
Uppáhaldsleikmaður á HOS mótaröðinni Siggi eða Heggi
Tommi eða Jenni TOMMI
Væntingar fyrir Florida 2014 Miklar,enda spila ég best í hita
Veistu hver er Tíðindamaður HOS mótaraðarinnar Nóbb,giska á Halla
Ertu með langan innkaupalista frá frúnni fyrir Florida ferðina Nóbb
Þínar hugmyndir hvernig mótið muni þróast erlendis Af miklum krafti en síðan þreytast menn og
þá kem ég sterkur inn.
Finnst þér að það eigi að leggja rassaboltarefsinguna niður Nei er það
Hrýtur þú Nei
Hefur þú verið slæmur í baki já
Ef já, veistu ástæðuna fyrir því Skortur á kynlífi örugglega ..
Ertu hræddur við krókódíla uuuuuuu ...en þeir eru víst hræddari við þig en þú við þá
.EINMITT
Mun Hemmi Haukss fara út fyrir rammann í ferðinni Ekki spurning...enda
þar á ferð afskaplega
vandaður einstaklingur sem aðlagast fljótt í nýjum aðstæðum og ófeiminn með meiru.
Fararstjórinn óskar Gínunni góðs gengis á Florida
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar