Færsluflokkur: Íþróttir

Dagskrá - Dagur 1

Dagur 1
TímiAtburður
12:00Lagt af stað til Keflavíkur og spússurnar kysstar bak og fyrir
12:15Allir að líta til hægri og dást að Álverinu
12:30Innritun í Keflavík
12:45Kaupa áfengi og síkó og taka út gjaldeyri
13:00Barinn í horninu - Fordrykkur
13:15Sögustund hefst - frægðarsögur úr fyrri ferðum
13:30Ávarp fararstjóra - leikmenn kynnast
13:45Reynir segir "hvað svo" söguna
14:00Halli túkall fer yfir helstu trixin í bridge
15:30Kallað út í vél
15:35Haldið af stað út í vél
15:40Ennþá röð og því farið aftur á barinn
16:00Flug
16:30Flugvélarbarinn tæmdur
17:00Reynir fer að klípa í flugfreyjurassana
17:30Vinstri handarleikurinn settur í gang
18:00Ha leikurinn settur í gang
22:30Lending í Alicante - Hergeir gleymir passanum í vélinni
23:30Skálað á hótelbarnum - Halli farinn að velta
00:00Halli fer yfir öll spil sem hann tók með sér og útskýrir reglur
00:30Mótstjórinn fer yfir fyrirkomulagið í golfinu fyrir vikuna
01:00Spilakvöld hefst
01:05Reynir og Hergeir fara "all in"
01:30Bæjarferð til Alicante
04:00Sigurrós sett á fóninn
05:50Háttatími


Sjö daga sæla

 

Kæru félagar

Ég var djúpt snortinn þegar fararstjórinn Sigurður tilkynnti mér á vormánuðum að hann hefði ákveðið að skipuleggja golfferð í kringum þrítugsafmælið mitt í október, „sjö daga sælu" eins og hann orðaði það.  Ég var ekki síður hissa þegar hann tilkynnti að hann hefði valið einvalalið til þátttöku og þurft að synja nokkrum öflugum.  Hann fullvissaði mig um að ágangurinn hefði verið slíkur að hann hefði getað fyllt aðra vél en það verður að bíða betri tíma og þess vegna voru nokkrir settir út úr hóp.  Menn eins og Beggi Fló og Ingvar Stef fengu ekki náð fyrir augum einvaldsins og ekki var talið annað en skynsamlegt að skilja samviskuna hans Hauks Braga eftir heima.  Þar sem Rollsinn komst ekki í gegnum skoðun þá var hann kyrrsettur á staðnum.  Þrátt fyrir að þessir fyrrnefndu þungavigtarmenn sitji heima, þá er ég ævinlega þakklátur farastjóranum og formanni afmælisnefndar fyrir allt umstangið.

Þó að um sjö daga veislu sé að ræða, þá verður aðalveislan þann 18. okt.  Formaður afmælisnefndar er búinn að skipuleggja heljarinnar dagskrá í tilefni dagsins þar sem golf kemur eitthvað við sögu.  Eftir golfið verður vitanlega boðið til veislu á hótelinu þar sem menn gæða sér að kræsingum og geta raðað í sig að vild, fengið eins oft á diskinn og menn treysta sér í.  Þá verður einnig í boði að sulla eitthvað frameftir í innlendum drykkjum.  Það er því ljóst að formaður afmælisnefndar hefur engu til sparað að gera daginn sem eftirminnilegastan.

Enn og aftur verð ég að hrósa Vítamíninu - undirbúningur afmælisferðarinnar hefur verið óaðfinnanlegu og ég er hreint orðlaus yfir hvað stefnir í flotta ferð.  Eina sem ég get sagt er að gera orð eðalFramara að mínum „allt of mikið, allt of mikið Siggi minn"

Krakkarassgatið


Snuddu Haren 2012 - Haukur Bragason álitsgjafi

Picture 004IM000240

 

 

Við fengum núverandi meistara á Snuddu Haren mótaröðinni til að gefa álit sitt á ferðinni ásamt því að við fáum að kynnasta meistaranum aðeins betur.  Honum verður sárt saknað úr ferðinni og sennilega verður enginn kynning á leikmönnum á teig á fyrsta degi.

 

Fullt nafn

Haukur Bragason

 

Gælunafn

H.Bragason from Kjolur Mosfellsbae

 

Hæð

ca. 180 cm fyrir ofan sjávarmál.

 

Þyngd

82 kg

 

Áhugamál

Golf og gott gengi Fram

 

Skóstærð

42

 

Limastærð

Fer eftir útihitastigi

 

Mottó

Hit it straight

 

Uppáhaldsfélagslið í ensku

Manchester City

 

Uppáhaldsfélagslið á Íslandi

Fram

 

Golfklúbbur:

Kjölur 

 

Forgjöf

11,1 og fer lækkandi

 

Lægsta forgjöf sem þú  hefur haft

8,6 "in the good old days" þegar Mosó var 9 holur

 

Besta skor á hring

77 högg í Mosó, 75 á Hellu, 78 í Öndverðanesi

 

Flestir punktar á hring

44 í Mosó

 

Vandræðalegasta golfmómentið

Braut rúðu í húsi í Svöluhöfða með rosalegu húkki á æfingasvæðinu

 

Uppáhaldsgolfvöllur

Þeir eru nokkrir. Mér þykir þó alltaf vænt um heimavöllin svo er Haren í Þýskalandi frábær völlur.

 

Tegund járnasett

Callaway þessi misserin.

 

Tegund driver

Titleist þessa stundina, á þá nokkra.

 

Tegund pútter

Odyssey

 

Uppáhaldskylfan í pokanum

Pútterinn og svo stundum Cleveland hybridin.

 

Lægsta skor á eina holu:

2

 

Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni

Elska ykkur alla.

 

Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni

Vítamínið er fagurt í sínum búningum, annars er Hergeir mikið augnayndi og legg ég til að hann safni ljósu lokkunum aftur sbr. myndir sem hér hafa birst.

 

Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni

Þetta verður tight...Raggi mun hafa forystuna fram að afmæli en síðan munu gerast óvæntir hlutir.

 

Hver telur þú að muni drepast fyrstur á Spáni

Halla verður trillað út úr vélinni í hjólastól. Verður búinn að eyða öllum norsku krónunum sínum í Bacardi Rass og flugfreyjur.

 

Hverjar eru þínar væntingar til Spánarfarana

Að vera landi og þjóð til sóma og ekkert helvítis rugl....mig grunar samt að þetta verði helvítis rugl og verði landi og þjóð ekki til sóma.

 

Mun tíðindamaðurinn vera með fréttir frá Íslandi

Ef hann verður ekki fullur á Hlemmi þá gerir hann það.

 

Þínar hugmyndir hvernig mótið muni þróast erlendis

Ég held að afmælið hans Ragga verði x-faktorinn í ferðinni og mikið verði um sætaskipti eftir það kvöld.

 

Finnst þér að það eigi að leggja rassaboltarefsinguna niður

Alls ekki...frekar auka þær heldur en hitt.

 

Er Jónas eins góður í golfi eins og hann segir

Hann er mun betri en hann segir "one to watch out for".  Ef hann er ekki á boltanum í upphafi þá gæti hann hugsanlega stungið uppá því að fara á Froðu-diskó.

 

Hverjum þakkar þú góðan árangur á mótaröðinni í sumar

Gríðalegri einbeitingu sem kom hinsvegar niður á liðstjórn Framliðsins í fótbolta.

 

Hvernig leið þér þegar það kom í ljós í verðlaunaafhendingunni að það hafi verið gerð mistök í útreikninginum

Ég man ekki neitt...vann ég ?

 

Munt þú mæta sterkur til leiks í næstu golfferð

Klárlega...mun ekki bjóða bankabókinni og skynseminni aftur fund.

 


SnudduHaren Spánn 2012 - Sigurður Egill Vítamín

180Fram19xx xx xfl 0013ÍBV

 

 

Síðast en alls ekki síst kynnum við fararstjórann til leiks. Sigurður Egill „Vítamín/Mæjó" Þorvaldsson er síðasta Snuddan sem kynnt er til leiks.  Hann er eins og margir í hópnum uppalinn í Framhverfinu, fyrst á Háaleitisbraut og síðar í Álftamýrinni, þar sem þeir feðgar héldu bestu partýin.  Siggi hóf síðar búskap með Röggu sinni í Álftamýrinni og var heimili þeirra alltaf opið fyrir félaganna, og ekki voru veislur þeirra síðri en feðganna.

Siggi er þeim hæfileikum gæddur að hann er góður í öllum íþróttum sem hann kemur nálægt.  Margfaldur Íslandsmeistari í handbolta með yngri flokkum Fram, unglingalandsliðsmaður í þeirri grein, spilar enn fótbolta í hæsta gæðaflokki í utandeildinni og í enn meiri gæðum á fimmtudagskvöldum í Álftamýrarskóla.  Þá er hann aðaldriffjöðurin í Harlem Globetrotters hópnum sem hittist í körfubolta á þriðjudögum í Árbænum.    Ekki lætur Siggi þar við sitja, heldur stundar golfið af miklum krafti, svo miklum að hann er kallaður Torfi í þröngum vinahóp, en grastorfurnar fá sko sannarlega að finna fyrir því þegar Siggi sveiflar og er uppá sitt besta. Siggi er einmitt frægur fyrir virkilega skemmtilegar sveiflur og verður spennandi að sjá hvaða sveiflu hann mætir með til Spánar.

Siggi er mikill félagsmálafrömuður.  Hann situr í stjórn handknattleiksdeildar Fram þar sem hann sér um alla heimaleiki félagsins, er í foreldraráði bæði hjá HK og Breiðablik - í handbolta, fótbolta og körfu, dansráði hjá djassballetskóla Báru og verður farastjóri með 50 spræka Hkinga í keppnisferð til Svíþjóðar milli jóla og nýárs.  Sigurður er fremstur meðal jafningja í foreldrahóp hjá Breiðablik sem kalla sig „Grænu flíspeysurnar" og hannaði m.a annars slagorðið „ Ekkert hik Breiðablik".   Þá má ekki gleyma hans mikilvæga starfi sem ritara Snuddanna, en það starf tekur líklega mestan tíma af öllu fyrrnefndu og heilt ritsafn sem liggur eftir hann á þeim vettvangi.  Þá er hann einnig formaður húsfélagsins Lautasmára 8.

Fyrrgreindu sinnir Siggi af miklum áhuga og eljusemi ásamt því að vera aðalfararstjóri í Snuddu-Haren ferðinni til Spánar, aðstoðarmótastjóri Snuddu-Haren mótaraðarinnar og formaður afhendingar- og afmælisnefndar. 

Ál er hans ær og kýr, en hann hefur starfað í álverinu í Straumsvík frá 17 ára aldri - er leiðtogi þar, slökkviliðstjóri og formaður skemmtinefndar og starfsmannafélagsins.

Sigurður er líklegur til stórafreka á Spáni og líklegur til að vinna verðlaun fyrir flottustu sveifluna og glæsilegustu dressin. Það er ekki hjá því komist að velta því fyrir sér „Er hans tími kominn" .  Bjóðum fararstjórann og dugnaðarforkinn Sigga sæta velkominn til leiks:

 

 

 

Fullt nafn: Sigurður Egill Þorvaldsson

Gælunafn: Vítamínið, Siggi Stardus, Skammturinn, Tommi

Hæð: 187 cm og fer stækkandi

Þyngd: 2 stafa tala

Áhugamál: Íþróttir og almennt skemmtanahald

Skóstærð: 43

Limastærð: Nokkur X

Mottó: To loose is not an option

Uppáhaldsfélagslið í ensku: YNWA

Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: Fram

Golfklúbbur: Kjölur Mosó

Forgjöf: 16,4

Lægsta forgjöf sem þú  hefur haft: 14,0

Besta skor á hring: 82 högg á Flúðum 2009

Flestir punktar á hring: 43 punktar GKG 2012 (held ég hafi einhvern tímann á síðustu öld fengið í kringum 50 punkta, vissi ekki þá hvað punktar væru, fór úr 36 í forgjöf í 27).

Vandræðalegasta golfmómentið: Man aðallega eftir frá öðrum eins og athafnir að henda sér út úr bíl og riverballs.  Annars lítur maður alltaf vandræðalega út þegar maður spilar með þessum snillingum á Snuddu Haren mótaröðinni.  Man þó eftir að þegar ég var að spila með Óla Már Sigurðss á 185 metra par 3 að ég tók driver en hann 7 járn, frekar vandræðalegt og hann var bæði lengri og nær holu.

Uppáhaldsgolfvöllur: Arcos Garden Spáni

Tegund járnasett:  Callaway X-18

Tegund driver: King Cobra 9.0 ° stiff

Tegund pútter: Oddesey 2 ball

Uppáhaldskylfan í pokanum: Pútterinn

Lægsta skor á eina holu: 2 högg (örn, par 4 á Flúðum)

Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni: Jón Ari, óborganlegur, en ég hugsa að ég velji af þeim sem er að fara núna, FORNLEIFAFRÆÐINGINN

Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni: Gamli töffari, ber af, annars finnst mér Goggi og Hvíti hákarlinn alltaf flottir, ekki bara í golfinu

Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni:  Hergeir er alltaf líklegur, hef samt trú á Himma, óþolandi stabíll.


Íbúðaskipan SnudduHaren 2012

 

Íbúð 1 - Ungir og ráðvilltir

 

Reynir Stefánsson

Friðrik Nikulásson

Ragnar Lárus Kristjánsson

Hilmar Magnús Bjarnason     

 

 

Íbúð 2 - Spenntir og graðir

 

Haraldur Þór Gunnlaugsson

Jónas Björnsson

Sigurður Egill Þorvaldsson

Ólafur Vilhjálmsson

 

 

Íbúð 3 - Gamlir og sveittir

 

Tómas Sigurðsson

Hafsteinn Már Einarsson

Sigurður Óli Kolbeinssson

Hergeir Elíasson


Snuddu Haren Spánn 2012 - Haraldur Túkall Gunnlaugsson

elvisIMG 1744Halli undirbýr Blassst !

 

Jæja, þá er komið að mótstjóranum sjálfum, Haraldur Þór Gunnlaugsson.  Þetta er aðal driffjöðurinn í golfhópnum, heldur utan um mótin, mótafyrirkomulagið, skipulagið og öllu því sem tilheyrir.  Halli er líka eigandi af síðunni, sem við skrifum inná, en upphaflega ætlaði hann að nota hana til að skrá andlega íhugun sína en eini vinirnir sem skráðu sig á síðuna hjá honum voru Guðjón L. Og Vítamínið.  Nú er síðan orðin aðalvettvangurinn til að halda utan um golfferðir, golfskipulag og allt sem tengist golfinu hjá Snuddu Haren.    Haraldur er enn einn Framarinn í hópnum, og enn ein handboltastjarnan í hópnum.  Hann er mikill spilamaður, margfaldur Íslandsmeistari í lokuðum bridge með fjórum laufum, 8 faldur bikarmeistari í félagsvist án atrennu og nú síðast Íslandsmeistari Tottenham klúbbsins í Olsen Olsen.   Hann þykir mjög lunkinn með allt sem hann setur í hendurnar á sér, sama hvort það sé kylfa, spil, spaðar eða kjuði.   Haraldur hefur farið í ófáar golferðirnar með okkur.  Fyrst með Haren hópnum og svo hefur hann einnig farið í eina Snuddu ferð og það var akkúrat á Oasis Plantio fyrir 2 árum.  Hann hefur séð um tónlistina í þessum ferðum við góðan orðstír fram af kvöldi , en það er þó ekki jafn fjölmennt á dansgólfinu undir morgun, þegar hann byrjar á Sigurrós.........  Eitthvað hefur heyrst að undirbúningurinn gangi illa hjá mótstjóranum þar sem hann eigi við eymsli að stríða.  Grunar þó að hann sé að beita einhver herkænsku hérna.    Ef einhver sér Halla vera að leika MR. BEAN á kvöldin, þá er hann ekki að því, hann verður svona haltur og ráfar um eftir nokkra drykki.   Vinsamlegast styðjið við hann ef þið verðið vitni af þessu.  Halli mun halda utan um allt mótafyrirkomulag úti og hefur hann nú þegar sent dagskrána.  Halli er mikill golfsnillingur og leiddi mótaröðina lengi vel fram að lokamóti í Borgarnesi, þar sem hann reið ekki feitum hesti, enda með hugann við norskar raflagnir. 

 

Ritarinn náði tali af drengnum þegar hann var að skipuleggja Ryder Cup 2014 með Montgomeri

 

 

 

Fullt nafn

Haraldur Þór Gunnlaugsson

Gælunafn

Túkallinn, engisprettufaraldur Haraldur, hipp hopp halli

Hæð

178

Þyng

94

Áhugamál

Bridge, félagsvist J, billi, skvass, hnit, karfa og smá golf

Skóstærð

41-42

Limastærð

NO COMMENT

Mottó

Að vinna Sigga í golfferðinni

Uppáhaldsfélagslið í ensku

Tottenham

Uppáhaldsfélagslið á Íslandi

Fram

Golfklúbbur:

GKJ

Forgjöf

15,5

Lægsta forgjöf sem þú  hefur haft

14,7

Besta skor á hring

83 slög á Hellu

Flestir punktar á hring

47p

Vandræðalegasta golfmómentið

Þegar HB skaut í ungan dreng sem var að pútta 200 metrum fyrir framan okkur.  Öskraði eins og stunginn grís og við HB frusum á staðnum.  Fór samt betur en á horfðist og á endanum var þetta smá marblettur.

Uppáhaldsgolfvöllur

HUSA á Spái og Grafarholt á Íslandi

Tegund járnasett

Cobra

Tegund driver

Taylormade

Tegund pútter

Ping Anser

Uppáhaldskylfan í pokanum

Var alltaf 5 rescue þangað til ég fór að draga allt til vinstri, ætli 60 gráðurnar séu ekki að verða uppáhalds eins og hjá honum Sigga vini mínum.

Lægsta skor á eina holu:

Það er tveir yfir, hef samt tvisvar sett í af löngu færi, einu sinni 165 metrum og síðan í Borgarnesi um daginn af 100 metrum en í bæði skiptin verið með víti og lokaskor fugl og parJ

Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni.

H.Elíasson er alltaf jafn flottur á velli

Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni

Glanni glæpur

Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni

Ég ætla mér að vinna þetta sjálfur að sjálfsögðu.

 

Fararstjórinn óskar mótstjóranum góðs gengis á Spáni


SnudduHaren Spánn 2012 - Jónas Björnsson

DSCN2180IMG 5552 resize

 

 

Þá er komið að því - Jónas Björnsson.  Jónas er sonur pabba síns og bróðir Hermanns og Gústaf Adolf, en margir úr hópnum þekkja alla þá bræður vel úr boltanum.   Jónas hefur ekki verið að spila með okkur á mótaröðinni en mig minnir þó að hann hafi komið einu sinni og leit bara stórvel út á vellinum.  Jónas er eins og  bræður sínur, góðir í öllu sporti og láta þeir oft leikina líta auðvelda út.  Gæti því trúað að hann muni vaxa ásmegin úti og er bara nokkuð líklegur.  Jónas er einn af 9 Frömurum í ferðinni, mikill Framsóknarmaður og sá eini í 12 manna hópnum (ekki þó ólíklegt að Guðni Ágústsson og Halldór Ásgrímss verði úti).  Jónas fór í nám á Bifröst.  Áhugamálin hans eru skotveiði, veiði, var liðtækur á skíðum.  Þess má geta að hluti úr hópnum og meðal annars Jónas fara alltaf í fljótin í ágúst að veiða (og eitthvað smá í tánna).    Hann starfaði einu sinnu sem stýrimaður á trillu sem hann átti í Ólafsfirði, en trillan var frekar ótraust og lagði hann því ekki í að sigla frá bryggjunni, heldur lagði stunda á hornasílisveiðar frá bryggjunni.  Kvótafrumvarpið fór svo illa með hann þegar þeir skattlögðu hornsílin og hætti hann þá rekstri.    Sagan segir að hann muni verða DJ inn í ferðinni og verður eingöngu spilað Ríó Tríó.  Jónas er alltaf léttur og er mikil vænts af honum á Spáni.

Við náðum tal af pilti þegar hann var að æfa í Básum í laumi.

 

Fullt nafn            Jónas Björnsson

Gælunafn           Johnny/Nasi er þá bara aðallega frá Halla

Hæð                      178, komst inní lögguna, lágmarkshæð

Þyngd                   95, var mun léttari í löggunni

Áhugamál           íþróttir og skotveiði       

Skóstærð            43          

Limastærð          15 cm, meðalstaða hækkar væntanlega í hitanum á Spáni.

Mottó                  alltaf að gera betur en næsti maður

Uppáhaldsfélagslið í ensku         Man City/Chelsea/ West Ham

Uppáhaldsfélagslið á Íslandi       Fram/Þór AK

Golfklúbbur:      GA

Forgjöf 16,5

Lægsta forgjöf sem þú  hefur haft          12,5

Besta skor á hring           79

Flestir punktar á hring   52

Vandræðalegasta golfmómentið             Bráðabani um 3ja sætið í Mosó í meistaramóti 2002/3.  Var löngu kominn í hús og farinn að teiga nokkra þegar í ljós kom að ég þyrfti í bráðabana.  Sjankaði upphafshöggið á 1. út fyrir 8. og víti, 3ja höggið endaði á miðri 8. Það eru um 75 áhorfendur til vitnis um þetta J

Uppáhaldsgolfvöllur      Kiðjaberg

Tegund járnasett            ping i3  

Tegund driver   R5 Taylor Made

Tegund pútter Oddyssey 2 ball, nýjasta kylfan í pokanum lagði 28 ára gömlum Wilson

Uppáhaldskylfan í pokanum      Driverinn

Lægsta skor á eina holu:              2

Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni        Geri ekki upp á milli góðra manna,(framsóknarblóð?)

Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni             Þessi er auðveld, undirritaður.  Á fegurðarverðlaun til vitnis um það úr 4. bekk R í Álftamýrarskóla

Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni                               Besti maðurinn vinnur.  Vissi ekki að það væri keppni, hefði þá hagað undirbúningi með öðrum hætti.

 

Fararstjórinn óskar Jónasi góðs gengis á Spáni


Með hverju halda menn í boltanum

Áhugaverð skipting á hópnum með hverjum þeir halda með í enska og íslenska boltanum

Íslenski boltinn

enski boltinn


Snuddu Haren Spánn 2012 - Tómas Sigurðsson

tommitommi 3tommi 2

 

 

Þá er komið að því - Tómas Sigurðsson en samt er þetta ekki Tommi vinur hans Jenna enda kann hann ekki eltingarleikinn.  Þetta er fyrsti Víkingurinn sem við kynnum til leiks og alltaf gott að hafa „one Icelandic Viking".    Tommi byrjaði í fasteignarbransanum og er hann sennilega þekktastur fyrir söluna á Goldfinger til Geira.  Einnig þótti hann sýna mikil klókindi þegar hann tókst að selja Eden eftir að það brann .  Hann er upprennandi stjarna í gítarleik og fengum menn smá smjörþef að því eftir Borgarnes ferðina en menn voru þó almennt sammála að hann ætti ekki að syngja með þegar hann glamrar á kassann.  Ekki var hann mikið í boltanum ólíkt flestum í hópnum, en ekki er hægt að neita að hann er góður með golfboltann.  Honum finnst gaman að kortleggja Íslands og á orðið mikið safn af Íslandskortum.  Námsferillinn hjá honum var að hann byrjaði í verkfræði en endaði í lögfræði þar sem hann starfar nú hjá Iðnaðarbankanum.  Áhuginn seinni ár snérist að karate og er hann kominn með ljósgulrauðfölleit svartabelti í þeim fræðum og oftar en ekki eyða þau hjónakornin löngum stundum á kvöldin að slást.  Ekki veit ég hver vinnur alltaf en Tommi var ansi krumpaður í Borgarnesi.  Hann er því ráðinn sem lífvörður fyrir hópinn úti ef eitthvað bjátar á.  Golfhæfileikana þarf ekki að deila um og þetta er einn af þeim sem er „one to watch" á Spáni.  Þetta er fyrsta ferðin sem Tommi fer með okkur Snuddu Haren genginu.

 

Við náðum tali af pilti þegar hann var í karatetíma hjá Ágústu Johnsen.

 

 

 

Fullt nafn

Tómas Sigurðsson

Gælunafn

Tommi

Hæð

182 cm

Þyngd

102 kg

Áhugamál

Golf og gítarspil

Skóstærð

42

Limastærð

"I‘m big in Japan"

Mottó

Tíminn líður þótt illa gangi og boltinn fer alltaf í holuna að lokum

Uppáhaldsfélagslið í ensku

Man U

Uppáhaldsfélagslið á Íslandi

Víkingur R

Golfklúbbur:

Kjölur Mos.

Forgjöf

12,6

Lægsta forgjöf sem þú  hefur haft

12,2

Besta skor á hring

80 högg - fjórum sinnum takk og síðast með double bogey á 17. og 18. á Hlíðavelli

Flestir punktar á hring

46 punktar á Urriðavelli 25. maí 2003 - 98 högg. Forgjöfin féll úr 34 í 28. Sex heilir niður takk.

Vandræðalegasta golfmómentið

Að drepa andarunga á golfvelli í Aylesbury á Englandi og nokkrum árum síðar þegar ég endurtók leikinn og drap fullvaxna gæs á æfingasvæðinu á Seltjarnarnesi með vel slegnu og háu höggi með 8 járni. Ég vonaðist til að enginn sæi mig og beið með að labba út á æfingasvæðið þar til hinn sem var að æfa var búinn. Þá gekk ég með sandwedge í annarri hendinni niður æfingasvæðið og fann fuglinn, steindauðan og gekk með hann í annarri og wedginn í hinni. Ég hélt ég hefði komist óséður upp með þetta þegar ég mætti vinnufélaga svona útbúinn.

Uppáhaldsgolfvöllur

Hlíðavöllur

Tegund járnasett

Ping i10

Tegund driver

Cobra offsett, anti slice

Tegund pútter

Odyssey 2 ball

Uppáhaldskylfan í pokanum

Dræverinn

Lægsta skor á eina holu:

2 högg - eða eitt högg og 5 cm.

Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni

Hergeir - ekkert smá stabíll.

Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni

Vítamín er fallegur þegar hann mætir í litríku buxunum.

Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni

Ég er í fanta formi og hlýt að vera sigurstranglegur

 

 

Fararstjórinn óskar Tomma góðs gengis á Spáni

Mótaskrá fyrir Snuddu - Haren 2012

16.okt  Ferðadagur Allir detta í það og gaman, gaman
17.okt PlantioFjögurra manna Texas milli íbúða Allir slá upphafshögg.  Hver og einn verður að eiga fjögur upphafshögg þ.a. Eitt á par þrjú holu.  Hæsta forgjöf slær fyrst.  Forgjöf deilt með 10
17.okt PlantioPunktaleikur Mótið hefst fyrir alvöru
18.okt PlantioPunktaleikur Raðað í ráshópa eftir stöðu fyrsta dags.
18.okt PlantioTexas Dregið saman í lið í texas, hæsta og lægsta forgöf, hægt að taka á því þar sem það er bara einn hringur daginn eftir
19.okt HusaPunktaleikur 3.punktamót spilað af bláum teigum
20.okt Font del LlopPunktaleikur Mót no. 4 í punktaleik
20.okt Font del LlopTexas Texas, raðað í lið eftir aldri
21.okt PlantioPunktar Mót no 5 í punktum
21.okt PlantioTexas Snærisleikur, 1m snæri fyrir hvert högg á lægstu forgjöf.  Raðað í lið eftir forgjöf.  Deilt með 5 til að fá samanlagða forgjöf.
22.okt PlantioPunktaleikur Mót 6, fer að líða að því að meistari verði krýndur
22.okt PlantioTexas Síðasta Texas mótið.  Snuddur á móti Haren.  Siggi ákveður allt í þessu móti.  Verðlaunaafhending á sundlaugarbarnum eftir mót.
23.okt PlantioPunktaleikur Lokamótið í þessari ferð, raðað eftir stöðu í punktaleik.  Verðlaunaafhending á barnum eftir mót

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband