Færsluflokkur: Íþróttir
12.10.2012 | 12:42
SnudduHaren 2012 - Álitsgjafinn - Jenni Jonaldo Jojo
Næst munum við kynna mann til leiks sem mun ekki verða með okkur í ferðinni en samt hluti af okkar hóp. Þetta er sjálfur Jenni, en óþarfi er að kynna hann sérstaklega. Ég gæti farið með þvílíka langloku um þennan mann á öllum tungumálum. Hins vegar er hann þannig týpa að það er erfitt að lýsa honum, maður þarf að sjá hann og upplifa sjálfur. Hann talar 83 tungumál en enginn skilur hann. Honum finnst mjög gaman að eltingaleikjum en hann uppáhaldsiðja er þó að stríða öðrum og bulla í þeim. Honum verður sárt saknað úr ferðinni.
Jónaldo er álitsgjafi Snuddu Haren og náðum við tali af honum þegar hann var að ræða við kínverja á færeysku.
Ps. Reyndi að setja viðtalið í google translate en það kom jafnvel verr út.
Fullt nafn - Jón Ari Ólafsson
Gælunafn - Jari, Jassi, Jassimótó, Jenni, Jono, Jonaldó, Jonaríó og Charlie Brown
Hæð - Way above sea level
Þyngd - Excess baggage
Áhugamál - Allar íþróttir með bolta í
Skóstærð - 40
Limastærð - Ben Dover Sjardonney
Mottó - Vera góður við Framara
Uppáhaldsfélagslið í ensku - Manchester United
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi - KR
Golfklúbbur: - Golfklúbburinn Kjölur
Forgjöf - 11,0
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft - 8,4
Besta skor á hring - 74 högg á Hlíðarvelli
Flestir punktar á hring - 43pkt
Vandræðalegasta golfmómentið - Allir birdie sjensar mínir sem enda með bogey / Craig Short
Uppáhaldsgolfvöllur - Caesarea Golf Club Israel
Tegund járnasett - Callaway
Tegund driver - Gamla þrívúddið hans Hauks Downtowns
Tegund pútter - Odyssey
Uppáhaldskylfan í pokanum - 5 tré
Lægsta skor á eina holu: - 2 högg
Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni - Munnboltaþvoarinn aka Big Easy
Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni - Alltaf gaman hva Haukur og Halli faðma mig oft undir sínum áhrifum
Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni - Sigga Eygló Myrra Thorvaldsen tekur þetta, mætir óþreyttur á morgnana og nipple sore free vegna fjarveru Jenna
Hver telur þú að muni drepast fyrstur á Spáni - Halli Þyrnirós , zipin Gin n juice
Hverjar eru þínar væntingar til Spánarfarana - Þetta verður neck n neck horse race to the finish line
Þínar hugmyndir hvernig mótið muni þróast erlendis - Getur ekki klikkað hjá svona úrvalsliði af kengúrum
Finnst þér að það eigi að leggja rassaboltarefsinguna niður - NEI, double it up mar, og allir að miða á Retro Stefson
Er Hergeir eins góður í golfi eins og hann segir - Já mar, hvort eru það kartöflurnar eða kjetilbjöllurnar sem virka svona vel
Munt þú mæta sterkur til leiks í næstu golfferð - Na klar komerat Lúzný
Tommi eða Jenni - JENNI all day long
Hvað tungumál talar þú - Jassnesku mar og vil ég á tímum að úti verði hún virt að vettugi
GÓÐA FERÐ FÉLAGAR
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2012 | 10:14
SnudduHaren Spánn 2012 - Ólafur Þór Vilhjámsson
Næst kynnum við til leiks hinn útlendinginn en hann mun koma fljúgandi frá Írlandi. Óli er alinn upp í Framhverfinu en var þó staðsettur eins og Frikki hinum megin við Kringlumýrarbraut á Háteigsveginum og stundaði nám í Æfingadeildinni. Hann var í handboltanum eins og margir aðrir og var mikil skytta. Hann gat svifið mjög lengi í loftinu og var maður ekki alltaf viss hvort hann myndi lenda aftur. Idolið hans í handboltanum hlýtur að hafa verið Atli Hilmarsson. Einnig þótti Óli mjög liðtækur í billard og sögur segja að hann hafi alltaf rúllað Halla Gunnlaugs upp þar ? Hann var einnig mikil vígamður og var í skátunum og einhverja hluta vegna ákvað Óla að skýra sína deild Horror. Þeir voru með aðstöðu í kjallara í Tónabæ þar sem 365 er með sína starfsemi í dag. Þeir ákváðu að breyta félagsheimilinu í skemmti stað og voru reknir úr húsi þegar það komst upp. Þeir félagar í Horror náðu einnig að kveikja í kofa sem skátafélagið átti á Hellisheiði sem var að mestu notaður fyrir drykkjuferðir þar sem foreldarnir héldu að þeir væru í skátaferðum þangað til hann brann. Ólafur er mikil græjumaður en á unglingsárum fór hann út í að þróa og hanna hátalara. Hann lagði mikla vinnu í hönnun og ætlaði að koma þessum græjum á markað og verða ríkur. Eitthvað klikkaði samt hönnunin og praktískahliðin, því þeir voru það stórir að þeir pössuðu ekki inn í nein herbergi.
Við rennum svolítið blint í sjóinn með golfhæfileika hans. Hann hefur ekki verið með okkur á mótaröðinni en mætti þó í eitt skipti og sást þá vel að hann er með þetta í sér. Spurning er hvernig sólin og bjórinn fer í hann en sögur segja að hann sé í stífum æfingabúðum á Írlandi og golfið hafi forgang fram yfir vinnuna. Hann svarar líka síðustu spurningunni í viðtalinu vel og spurning hvort hann búi yfir þessum eiginleikum. Það er okkur sönn ánægja að kynna hann til leiks enda Liverpool maður. Hvað er komnir margir Liverpool menn, nennir einhver að telja.
Fullt nafn: Ólafur Þór Vilhjálmsson
Gælunafn: Óli
Hæð: 183
Þyngd: 75
Áhugamál: Golf, skíði, útivist og góður félagskapur
Skóstærð: 44
Limastærð: Sama og meðalstærð japanskra karlmanna
Mottó: Það er allt hægt
Uppáhaldsfélagslið í ensku: Liverpool
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: Fram
Golfklúbbur: GR
Forgjöf: 14,2
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft: 13,9
Besta skor á hring: 81, 4 október 2010
Flestir punktar á hring: 46 punktar - 9 september 2008
Vandræðalegasta golfmómentið: Þau eru svo mörg, sýni ykkur eitt eða fleiri á Spáni
Uppáhaldsgolfvöllur: PGA International, Dublin, Írlandi
Tegund járnasett: Ping G15
Tegund driver: Ping G20, 9.5 gráður
Tegund pútter: Spalding, ef ég man rétt
Uppáhaldskylfan í pokanum: ég geri ekki á milli þeirra (trúi því að þær verði afbrýðissamar ef maður notar eina oftar en aðrar).
Lægsta skor á eina holu: 2
Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni: Sama regla og með kylfurnar, en það gæti breyst eftir Spánarferðina.
Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni: Beauty boy
Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni: Ég tel að sá sem vinnur keppnina í ár verði að vera virkilega hæfileikaríkur þar sem hann þarf að: þola mikið áfengi, finna ekki fyrri þynnku, geta sofið lítið, vera ávallt jákvæður, geta tekið þátt í hópkynlífi og geta haldið á kylfu.
Fararstjórinn óskar Ólafi góðs gengis á Spáni
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2012 | 16:09
Golfplanið á SnudduHaren Spánn 2012
Dagur | Rástími | Rástími | Völlur | Holur |
17.okt | 09:00 | 14:30 | Plantio | 36holur |
18.okt | 09:00 | 14:30 | Plantio | 36 holur |
19.okt | 13:00 |
| Alicante HUSA | 18 holur |
20.okt | 09:00 | 14:30 | Font del Llop | 36 holur |
21.okt | 09:00 | 14:30 | Plantio | 36 holur |
22.okt | 09:00 | 14:30 | Plantio | 36 holur |
23.okt | 12:00 |
| Plantio | 18 holur |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2012 | 11:27
Gátlisti fyrir SnudduHaren 2012 á Oasis Plantio á Spáni
Gátlisti fyrir SnudduHaren 2012 |
Blöðruplástrar á fætur, hæll, rist, tær |
Sólarvörn |
Flugnavörn |
Íbúffen/ annað hausverkjameðal |
30-40 boltar í það minnsta, fer eftir getunni samt J |
1 sokka par á dag |
1 brók á dag |
1-2 kakí buxur á kvöldin, gallabuxur sleppa en sum golfhótel eru líka snobbuð með þetta. |
Léttur jakki |
2-3 stutturbuxur sem eru leyfðar í golf |
1 pólóbolur á dag |
1 síðar buxur |
Derhúfur |
Sólgleraugu |
Eitthvað á flugnabit |
Regnhlíf |
Peysa, getur verið kalt á morgnana |
vindbraker |
Spurning um skyrtu ef að farið er eitthvað fínt út fyrir hótel |
Tannbursti |
Grár |
Punghlíf |
Sveifluna |
Áfengi og síkó |
Golfsett / golfskór |
Muna að þurka vel golfskóna á hverjum degi eftir golf svo að þeir verði ekki rakir, gott ef að þið eigið tvenn pör af skóm. |
Muna drekka nóg bjór |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 12:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2012 | 23:02
Snuddu Haren Spánn 2012 - Hafsteinn Már Einarsson
Næstur til leiks er Hafsteinn Már. Hann kemur í hópinn í gegnum Tomma en einnig er hann frændi Hergeirs. Hann er ekki fastamaður á mótaröðinni en menn hafa séð hann bregða þar fyrir. Pilturinn er alinn upp í Garðabæ. Hann stundaði nám við Verslunarskólann eins og margir úr hópnum. Hann er viðskiptafræðingur að menn og hefur starfað við markaðsrannsóknir í áratugi. Hann er gallharður City maður og held að að Haukur Digger sé mjög ánægður með kappann. Ekki oft sem tveir City menn hittast fyrir utan árshátíðina hjá þeim, þar sem er spilað félagsvist á einu borði. Það var mjög tvísýnt á tímabili hvort hann kæmist með í ferðina þar sem hann var í aðgerð á hné. Sögur segja að hann sé mjög liðtækur í söngnum og muna hann stýra fjöldasöngnum á Spáni. Bið hann að kynna sér lögin með Bó Hall vel. Hann er með miklar skoðanir á pólítík og ef menn ætla að ræða það við hann er betra að gefa sér tíma.
Spurning er hvernig golfið verður hjá honum þar sem undirbúningur golflega séð hefur ekki verið með besta móti hjá honum. Þeir sem þekkja hann vel lýsa honum sem óstöðugum kylfini en á frábæra spretti og svo afleita daga á milli (á þetta ekki við flesta).
Við náðum tali af pilti þar sem hann var með einsöngs tónleika fyrir utan KR heimilið.
Fullt nafn: Hafsteinn Már Einarsson
Gælunafn: Haffi, Haffi Már, Frændinn (í Haren)
Hæð: 183
Þyngd: FM Léttbylgjan
Áhugamál: Íþróttir, söngur, viðskipti og nýjasta áhugamálið er skurðaðgerðir.
Skóstærð: 44
Limastærð: Fyrir eða eftir aðgerð?
Mottó: Trying is the first step towards failure - Homer Simpson
Uppáhaldsfélagslið í ensku: Les champions Man City
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: Erfið spurning KR og Stjarnan (fer eftir íþróttagreinum)
Golfklúbbur: GÚ / GOSÍ
Forgjöf: 19,5 (hef bara hækkað í sumar)
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft; 17,1
Besta skor á hring: 85
Flestir punktar á hring: 43
Vandræðalegasta golfmómentið: 17 högg á 12. braut í Oddinum , því miður í meistaramóti.
Uppáhaldsgolfvöllur: Celebration FL. , Oddurinn á Íslandi
Tegund járnasett: Callaway
Tegund driver: Copra offset
Tegund pútter: Taylor Made Rossa
Uppáhaldskylfan í pokanum: Cleveland 56° wedge og Callaway 56° wedge. Nauðsynlegt að hafa báða í pokanum, ómögulegt að gera upp á milli þeirra J
Lægsta skor á eina holu: 1+1
Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni: Tommi Sig í góðum gír.
Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni: Hergeir bað mig að kjósa sig
Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni: girnilegt golf, skemmtilegur matur og fallegur félagsskapur.
Fararstjórinn óskar Haffa góðs gengis á Spáni
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2012 | 12:32
Snuddu Haren Spánn 2012 - Reynir Stefánsson
Næstum kynnum við til leiks Reynir Stefánsson eða Gorgeir Loftsson eins og hann er oft kallaður. Þessi piltur er meðlimur í Snuddunum og einnig ofvirkur formaður þess félags. Hann er sá sem hefur haldið félaginu gangandi og verið drifkraftur félagsins. Reynir er fæddur 1972 í Framhverfinu og er alinn þar upp. Hann á langan og farsælan handboltaferil að baki sem varamaður á bekknum í yngri flokkum Fram. Eftir þann feril snéri hann sér að þjálfun og náði góðum árangri þar og þjálfaði meðal annars Þór og KA fyrir norðan en hann flutti þangað og bjó þar í nokkur ár, en er nú kominn í bæinn og eyðir flestum sínum frístundum í svefnherberginu og afrekaði það að eignast 2 börn á innan við einu ári. Reynir hefur gert það gott í tölvuheiminum en hann byrjaði hjá Nett á Akureyri en starfar nú sem yfirmaður hjá Advania og sér um að koma öllum vírusum í umferð. Reynir er þekktur fyrir að eiga gullnar setningar" eins og ég kem bara hvítur heim, þegar hann var rekinn í bolinn á Spáni eftir að hafa sofnað á maganum í nokkrar tíma í sólbaði. Blöðrurnar á bakinu á honum voru eins og hólarnir í Vatnsdal um kvöldið. Fræg setning er einnig hvað svo" þegar við voru komnir niður á strönd á Spáni en hann vissi ekkert hvað átti að gera á strönd. Nokkrum mínútum seinna kom hann æðandi á fjórhjóli fram hjá öllum sem voru í sólbaði. Margir kannast við setningar úr golfinu, þegar einhver á slæm högg, þessi er týndur, þessi er out of bounds, þetta er bara víti.
Eins og margir í hópnum er Reynir harður Liverpool maður og hefur farið á ófá leikina með þeim. Á seinni árum hóf Reynir að stunda golfið og hefur náð góðum árangri þó hann vilji hafa forgjöfina lægri. Ég hef mikla trú á Reyni á Spáni en hann getur verið illviðráðanlegur í punktasöfnun, því hann fær alltaf punkt á hverri holu, sama hver höggafjöldinn er.
Við hittum pilt þar sem hann var að leika í Dressmann auglýsingu og tókum hann tali.
Fullt nafn Retro Stefson
Gælunafn Roy/Goggi
Hæð 195 cm ( á tám)
Þyngd Rúmlega póstnúmerið mitt
Áhugamál, langar að læra golf en hef ekki tíma fyrir áhugamál
Skóstærð, ég er eins og L í laginu, nota skóstærð 44, (nei Siggi ég er ekki eins og Þ )
Limastærð, bíddu ætla gá
Mottó Það er til lausn á öllu
Uppáhaldsfélagslið í ensku Liverpool
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi Fram
Golfklúbbur: Kjölur Mosó
Forgjöf má fara meira lækkandi en er 23,9
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft 23,7
Besta skor á hring 92 högg, Fram Open 2010
Flestir punktar á hring 43 punktar á Hesperia, Spain 2010
Vandræðalegasta golfmómentið þegar Hilmar henti mér út úr golfbíl þegar bílinn var á fullri ferð
Uppáhaldsgolfvöllur Grafarholt / Jaðar
Tegund járnasett Talor Made Burner Plus
Tegund driver Taylor Made Burner Draw
Tegund pútter Macgregor putter frá 1993
Uppáhaldskylfan í pokanum 7 járn
Lægsta skor á eina holu: 2 högg á par 3
Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni Íþróttaálfurinn
Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni, Glanni glæpur, þessi með hökuna
Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni, það fer vel
Fararstjórinn óskar Reyni góðs gengis á Spáni
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2012 | 13:08
Snuddu Haren Spánn 2012 - Sigurður Óli Kolbeinsson



Næstu kynningum við til leiks þennan með fallega fornafnið Sigurður Óli Kolbeinsson. Þetta er kannski sá maður sem menn þekkja síst í hópnum. Hann kemur inn í þetta í gegnum Tomma gullfisk. Það hafa þó einhverjir séð hann þar sem hann hefur spilað með okkur einstaka sinnum í Mosó og sumir kannski muna eftir honum frá Akureyri, þar sem hann spilaði með okkur. Ég fletti í gegnum gömul Séð og Heyrt blöð og fann þar nokkrar upplýsingar um pilt. Einnig sá ég eina grein um hann í blaði sem heitir 10 góð prjónaráð frá 1985. Hann er alinn upp á Akureyri og sótti svo nám í Verslunarskólanum. Sigurður starfar í dag sem dyravörður hjá Vörður, með áherslu á lög og reglur. Á yngri árum var hann stórhuga og með mikið frumkvæði og með stóra drauma. Hann opnaði þvottahús í Kringlunni á síðust öld. Hann er því sérfræðingur í hvernig á að strauja föt og brjóta saman. Hann mun senda ykkur leiðbeiningar hvernig á að pakka og þvo golffötin fyrir ferðina. Einnig mun hann kenna ykkur þegar út er komið hvernig megi ná bru.dblettunum úr lakinu á herberginu ykkar, þegar þið hafið lokið ykkur af. Þarna liggur hans sérgrein. Hann býr yfir þeim gæfukosti að vera grjótharður Liverpool maður og ætti því að vera með nokkuð breytt bak.
Hann er með lægstu forgjöfin í hópnum í golfinu og greinilega hörkukylfingur þar á ferð. Sögur segja að hann búi yfir högglengd og sé mjög höggviss en óvinur hans sé pútterinn, þá sérstaklega stuttu púttin. Ég hugsa að fréttaritarinn geti gefið honum nokkur góð ráð þar. Byrja að nota pútterinn af 70 metrum og stuttu púttin verða sneið af köku.
Fréttaritari náði tali af Sigurði þegar hann var að bera út Morgunblaðið á laugardagsmorgni með hund í bandi.
Fullt nafn Sigurður Óli Kolbeinsson
Gælunafn: Siggi Óli
Hæð: 180 cm
Þyngd: svona 89,7 kg.
Áhugamál: Golf, skotveiðar, fjallgöngur, í
Skóstærð: 43
Limastærð: 16,7 cm en eitthvað minna akkúrat núna.
Mottó: Að hafa gaman af því að vinna og leiðast að tapa
Uppáhaldsfélagslið í ensku: Liverpool
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: hmmm... KA, FH, Valur eða Blikar ef ekkert gengur hjá hinum félögunum.
Golfklúbbur: Keilir
Forgjöf: 9,3
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft: 9,3
Besta skor á hring: 75 högg (3 yfir) í Mosó 2012. Ótrúlega léttur völlur.
Flestir punktar á hring: 41 að mig minnir
Vandræðalegasta golfmómentið: Þegar ég tapaði fyrir Haffa í sumar, án forgjafar!
Uppáhaldsgolfvöllur: Stadium Course á Bro Hof Slotten í Svíþjóð en hér heima er ég alltaf svolítill sökker fyrir Grafarholtinu
Tegund járnasett: Titleist AP2, Titleist Vokey SM wedgar
Tegund driver: Taylor Made R360 ca. 10 ára gamall og skemmdur eftir Tomma. Hann er ótrúlega mikil eyðileggingarmaskína
Tegund pútter: Odyssey two ball, allt of stuttur, líka Tomma að kenna.
Uppáhaldskylfan í pokanum: 52 gráðu wedginn
Lægsta skor á eina holu: 2
Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni: Það verður að vera Tommi, hann er sá eini sem ég þekki almennilega og svo vinn ég hann alltaf.
Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni: Þekki nú ekki alla en er Reynir ekki ansi fallegur?
Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni: Ég vinn en Haffi vinnur fatlaða flokkinn, Special Snuddu ....
Fararstjórinn óskar Sigurður góðs gengis á Spáni
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2012 | 11:00
Snuddu Haren leikmannakynning 2012 - Friðrik Nikulásson
Næst kynnum við til leiks Friðrik Nikulásson eða Frikki Nikk, stundum kallaður. Hann er einn af 5 meðlimum Snuddana. Þar gegnir hann veigamiklu hlutverki en hann hefur verið gjaldkeri hjá Snuddunum frá stofnum þess félags. Hann sér um allar safnanir fyrir golfferðirnar og tryggir það að Snuddurnar komist reglulega í golfferðir. Hann er eins og margir úr þessum hóp alinn upp í Framhverfinu, þó hann hafi verið geymdur hinum megin við Kringlumýrarbrautina. Það eru ekki margir sem trúa því en Frikki var mikil skytta í handboltanum á yngri árum og stærstur meðal jafningja. Hins vegar hefur hann lækkað talsvert hin seinni ár. Drengurinn er einnig örvhentur en spilar samt golfið eins og ófatlaður. Frikki er í GR og hefur því ekki verið formlega á Snuddu Haren mótaröðinni en hefur þó mætt þar oft og títt sem gestur og þekkir því hópinn vel. Frikki er gamall Leedsari, en einnig hefur hann haldið með liðum eins og Plymouth, Barnsley, Brighton, Hull, Newcastle, Liverpool, Arsenal, City, Aston Villa svo eitthvað sé upptalið en núverandi ást hans er á Mutd. Það getur þó breyst þegar til Spánar er komið. Þrátt fyrir að vera ekki með lægstu forgjöfina í hópnum er hann gríðarlega högglangur. Hann helsti óvinur er þó hversu villtur hann getur verið. Á góðum degi er hann þó illviðráðanlegur á golfvellinum.
Fréttaritarinn hitti Friðrik á Monte Carlo þar sem hann var að skrá sig í aðdendaklúbb Winnie Jones og Wimbledon og tókum við hann tali.
Fullt nafn: Friðrik Nikulásson
Gælunafn: Nicklaus
Hæð: 182 cm
Þyngd: 85 kg á góðum degi
Áhugamál: Golf meðal annars
Skóstærð: 41
Limastærð: Breytileg
Mottó: Illu er best skotið á frest
Uppáhaldsfélagslið í ensku: Manchester Utd.
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: Fram
Golfklúbbur: GR, Golfklúbbur Reykjavíkur
Forgjöf: 20,3
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft: 18,8
Besta skor á hring: 88 í Grafarholti
Flestir punktar á hring: 43 punktar á Princes Golf Club, Sandwich, UK, 2011
Vandræðalegasta golfmómentið: Húkk í bíl vallarstjórans í 3 holu í Grafarholti, bílnum var lagt í hvarfi en ég náði honum samt.
Uppáhaldsgolfvöllur: Korpan af Íslenskum völlum
Tegund járnasett: Ping G10
Tegund driver: Ping G10, 9 gráður
Tegund pútter: Ping Anser
Uppáhaldskylfan í pokanum: 8
Lægsta skor á eina holu: 2
Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni: Herbergisfélaginn
Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni: Herbergisfélaginn
Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni: Það verða óvænt úrslit
Fararstjórinn óskar Friðriks góðs gengis á Spáni
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2012 | 09:09
Forgjafartafla fyrir Plantio
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2012 | 13:02
Snuddu Haren 2012 - Hergeir Elíasson
Leikmaður sem við kynnum númer 2 er enginn annar en H.Elíasson from Kjölur Mosó. Hergeir eða Heggi eins og hann er oft kallaður er fæddur í Framhverfinu, fljótlega eftir stríð. Þeir sem muna ekki eftir honum , þá var hann bílstjórinn í lokamóti Haren í Borgarnesi, enda kominn af miklum ökumannsættum, en móðir hans var kjörinn ökumaður ársins frá árunum 1950 til 1970 af Umferðastofnun Ríkisins. Þessi unglingspiltur frá fljótt uppgötvaður sem mikið fótboltaefni og var fljótt tekinn inn í knattspyrnuakademíu Alberts Guðmundssonar og átti að búa til framtíðarstjörnu. Kvennafarið og Bakkus sigruðu þann draum að lokum en þess ber að geta að hann stundar enn knattspyrnu á fimmtudagskvöldum í Álftamýrarskóla (eftir myrkur) og fara góðar sögur þar af honum og greinilegt að hann hefur þetta allt saman ennþá, nema hraðann og tæknina.
Hergeir hefur komið víða við en hann fluttist til Danmerkur og hóf nám þar. Eftir námið lág leiðin til Píluskins þar sem hann starfaði við að gefa gömlum verkamönnum bjór og gammel á morgnana og í hádeginu. Eftir árangursríkt starf í Danaveldi fór hann í útrás (langt á undan öðrum) til Samúa, Færeyja, Noregs og fleiri góðra staða. Hann komst fljótlega í landslið Samúa í bananaklifri og á nokkur landsmetin þar.
Nú eftir langan of farsælan feril hefur hann sest að í Safamýri 11 og gerst bóndi. Hann leggur áherslu á garðrækt en útilokar ekki að gerast svínabóndi seinna meir. Hann dvelur nú löngum stundum í garðinum en guð má vita hvað hann er að gera þar.
Inni á milli þegar hann er ekki arfavitlaus" í garðinum stundar hann golfið. Hergeir er með þeim sterkari á Snuddu Haren mótaröðinni og endaði í 2.sæti þar í sumar. Virkilega stabíll kylfingur og fáir með svona mjúka John Daily sveiflu. Þar verður mikið vænst af honum á Spáni. Eins og einn góður maður sagði "one to watch".
Við náðum tali af pilti þar sem hann var í vinnunni út á golfvelli í Mosó að rölta á milli holla og biðja um vinnustaðaskírteini. Fréttaritarinn tók þó eftir að hann var sjálfur með golfsett.
Fullt nafn : Hergeir Elíasson
Gælunafn : Heggi, Elíasson Iceland, Hús kötturinn
Hæð : 188cm
Þyngd : 93 kg
Áhugamál : Garðvinna nr1 og Golf
Skóstærð : lítil
Limastærð : lítil
Mottó : Af hverju að gera það í dag, sem maður getur fengið aðra til að gera á morgun.
Uppáhaldsfélagslið í ensku : Gunners
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi : Fram
Golfklúbbur : Gkj
Forgjöf : 11,9
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft : 10,0
Besta skor á hring : 75 högg Selsvöllur Flúðum (2010)
Flestir punktar á hring : 45 p. Hlíðavöllur Mosó (2004)
Vandræðalegasta golfmómentið : Þegar ég húkkaði dræfið í framrúðuna á golfbíl í Portúgal.
Uppáhaldsgolfvöllur : Hlíðavöllur / Barsebæk Svíþjóð og Faleolo Samoa
Tegund járnasett : Ping i3
Tegund driver : Taylor Made R7
Tegund pútter : Ping Ansker
Uppáhaldskylfan í pokanum : 7
Lægsta skor á eina holu : 3 á par 5
Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni : Mótstjórinn
Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni : Formaður afhendingar nefndar
Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni : Ég vinn, ekki spurning
Fararstjórinn óskar Hegga góðs gengis á Spáni
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 68461
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar