Færsluflokkur: Íþróttir
8.10.2012 | 11:03
Snuddu Haren 2012 - leikmannakynning
Fullt nafn: Hilmar Magnús Bjarnason
Gælunafn: Ísí Malli Seve Glanni
Hæð: 1,87 Þyngd: 93 og á hradri uppleid........
Áhugamál: mest allt sem vidkemur sporti
Skóstærð: 43
Limastærð: fer eftir adstaedum
Mottó: alltaf ad hugsa jákvaett - tví you only life once!
Uppáhaldsfélagslið í ensku: Arsenal ad sjálfsögdu
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: Fram
Golfklúbbur: medlimur hjá Ásatún (vegna GSÍ)
Forgjöf: Hmmmmmmmmm á eftir ad raeda vid nefndina en hjá GSÍ er skrád 12,1
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft: 11,9
Besta skor á hring: svo langt sídan ad ég man tad ekki
Flestir punktar á hring: ekki med tad á hreinu en tad var 4 fyrir framan seinni töluna
Vandræðalegasta golfmómentið: tegar makkerinn minn henti sér út úr golfbílnum á fullri ferd
Uppáhaldsgolfvöllur: GÖ og Jakobsberg í De.
Tegund járnasett: Maxfli
Tegund driver: TRÈ
Tegund pútter: ?
Uppáhaldskylfan í pokanum: elskulegi TRÈ-Driverinn minn
Lægsta skor á eina holu: 1
Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni: Hvíti hákarlinn
Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni: tad er alveg á hreinu: Maejó (stundum kalladur Siggi Saeti)
Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni: tad verdur engin rúta, tad verdur langferdabíll.......
Fararstjórinn þakkar Hilmari fyrir viðtalið og óskar honum góðs gengis.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2012 | 10:16
9 dagar í Plantio
Þá fer að styttast í golfferðina þar sem 12 vaskir félagar ætla að slá í gegn. Dagskráin er að verða klár þar sem stefnt er að því að klára 12 hringi á 7 dögum. Keppnisfyrirkomulag verður klárt í vikunni. Minni menn á að kynna sér hvernig félagsvist gengur fyrir sig þar sem keppt verður í því a.m.k. þrjú kvöld við sundlaugabarinn.
Meira síðar
Mótastjóri
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2012 | 10:33
Lokamót í Snuddu Haren soclosed in Iceland 2012
Þá er lokið Snuddu Haren 2012. Mótaröðinni var slúttað með glæsilegum hætti. Haldið var 36 holu lokamót í Borgarnesi. 9 leikmenn af 10 voru mættir til leiks ásamt 3 gestaspilurum. Kjötgerðarmaðurinn var fastur í loftmalakoff. Veðurspáin var ekkert allt of góð fyrir daginn en óhætt er segja að Veðurguðinn hafi fært okkur þessu miklu blíðu, blanka logn og gulir geislar. Keppnisfyrirkomulag var þannig að hægt var að ná 36 stigum fyrir daginn, en á fyrri 18 holur voru spilaðir samtímis, betri bolti og punktaleikur í einstaklings, 24 stig í boði fyrir fyrri daginn og 12 fyrir seinni hringinn í 18 holu Texas. Óhætt er að segja að Diggerinn hafi komið gríðarlega sterkur til leiks og náði í 33 stig af 36 mögulegum. Glæsilegt. Einnig spilaði Tommi mjög vel og náði í 32 stig þennan daginn. Sigurður, Tommi og Haukur náðu einnig að lækka í forgjöf, Tommi 37p, Haukur 38p og Sigurður V 40 p. Noregsfarinn var mikil vonbrigði á hringnum og greinilegt að Noregsbröltið situr mikið í honum og heldur honum frá æfingum. Hann átti að vísu högg dagsins á 1.holu þegar hann setti hann beint í af 100 metra færi. Einnig fréttist af H.Elíasson klína honum á barmabrúnina á 2.holu sem er par 3. Eftir hringinn var svo dýrðar veisla í golfskálanum þar sem var boðið um á lambalæri og kalkún að hætti golfskálans. Færum við þeim bestu þakkir en þarna er frábær þjónusta og gott viðmót starfsfólks, sem vildi allt fyrir okkur gera. Lokahófið var svo haldið hjá Tomma eftir nokkur pissustopp á leiðinni heim. Menn voru misvel á sig komnir og mikil vonbrigði þegar kjúklingarnir í hópnum fóru að týnast heim fyrir kvöldfréttir. Gömlu mennirnir gáfu ekkert eftir og þeir síðustu voru að svamli fram yfir 2. Mikil spenna var í verðlaunaafhendingunni þar sem Haukur vann mótið með yfirburðum. Formaður afhendinganefndar ákvað þó að setja smá leikrit í gang þegar hann var búinn að afhenda bikarinn og sagði að útreikningurinn hafi verið rangur. Upphófst mikil reikistefna en en breytingin eftir útreikninga var að Haukur var með 10 stigum meira en tilkynnt hafi verið. Við óskum sigurvegaranum til hamingju og einnig öðrum með sinn árangur. Þetta er búið að vera frábært season og er hópurinn að dafna og stækka. Þetta er flottur kjarni og vonandi verður framhald á. Ég vil nota tækifærið og þakka mótstjóranum og hans aðstoðarmönnum fyrir frábært skipulag í sumar og þeirra vinnuframlag. Þeir sem eru svo á leið erlendis 16.okt, muna að halda sveiflunni í formi og einnig drykkjunni, mér sýnist sumir ekki vera í neinu drykkjuformi.
Over and out
Vítamínið
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.9.2012 | 23:22
Harenmótaröðinni 2012 lýkur á morgun i Borgarnesi
Á morgun verður svaka spenna í Borgarnesinu þegar Harenhópurinn slær botninn í frábært sumar. Búið að skipta í fyrstu lið og eru ráshópar eftirfarandi:
Halli+Raggi
Reynir+Siggi
Tommi+Frikki
Hanna+Irunn
Heggi+Binni
Haukur+Ingvar
Annars er dagskráin frá Sigga Vítamín þannig.
Þá er komið að lokamóti sumarsins í Snuddu Haren Iceland soClosed 2012. Það hafa verið haldin mót í sumar reglulega á mánudögum og hefur það reynst fyrirkomulag nokkuð vel. Lokamótið verður haldið í Borgarnesi laugardaginn 22.september. Þátttakendur eru 12 talsins.
1. Ragnar Lárus
2. Haraldur Þór Túkall
3. Hergeir EL
4. Tommi hóst
5. Ingvar Stef
6. Reynir Stef
7. Haukur FROM KJÖLUR MOSO
8. Binni Rolls (sá einhver boltann minn)
9. Sigurður Vítamín
10. Frikki Nikk (gestur)
11. Frú Hanna Hauks (gestur)
12. Frú Irunn Tomms (gestur)
Gott að vita:
· Spilaðar verða 36 holur
· Rástímar fyrri hringinn eru frá 9.30 til 9.50
· Rástímar fyrir seinni hringinn eru frá kl. 14-14.20
· Fyrri 18 holurnar eru tvöföld keppni. Bæði er einstaklingskeppni í punktakeppni og svo er líka betri bolti, það er 2 saman í liði og betra punktaskor á holu telur.
· Seinni 18 holur er spilað Texas scramble
· Mótastjóri er Haraldur túkall sonur Gunnlaugss
· Búið er að leigja 5 golfbíla (2 þurfa því að labba), ég veit að Binni Rolls ætlar að labba og því vantar bara einn í labbið.
· Búið er að leigja ekki rútu heldur langferðabíl. Ekill er H.Elíasson, sonur pabba síns og mömmu (tek það fram að hann á gríðarlega fallega systir) nei Raggi, ekki þessi eldri)
· Eftir 36 holu spilað verður borðað í Borgarnesi (golfskálanum)
· Veisla heima hjá Tomma beint eftir matinn í Borgarnesi. Hann verður með rautt og hvítt á staðnum og bjór. Þeir sem vilja drekka eitthvað annað hjá Tomma koma með það sjálfir.
· Drykkir og matur yfir daginn sjá menn um sjálfir
Dagskráin er svona:
6:00 Elías junior vekur pabba gamla með einum gráum
7:15 Hópreið Hergeirs stoppar hjá Sigga í Lautasmára 8
7:30 Hópreið Hergeirs stoppar hjá Tomma í Funafold 35 (Hópreiðin stoppar hérna eftir golfið, ef menn vilja fara með bíla sína þangað, en það verður enginn ökufær)
7:35 Hópreið Hergeirs stoppar hjá Halla í Hamravík 34
7:45 Hópreið Hergeirs stoppar hjá Ragga í Bakkastöðum 1 (hér þurfa allir að vera komnir um borð sem ætla með Hópreiðum (þeir sem ætla á eigin bílum, vinsamlegast látið okkur vita)
09:00 Mætt á Hamarsvöll í Borgarnesi, gengið frá greiðslum og bílum, bjórar fylltir á golfpokann
09:30 Mót hefst
09:31 Rollsinn rafmangslaus
09:32 Halli túkall klikkar á upphafshöggin og fer ekki fram yfir rauða teiginn, bjór fyrir 12 manns takk, það voru allir að horfa
13:30 fyrri hring lokið og menn fá sér að borða milli hringja (hraðar hendur)
14:00 Ræst út í seinni hringinn Texas scramble
18:15 Golfi lýkur
19:00 Matur og drykkir í Borgarnesi (golfskálanum)
19:45 Hópreiðin leggur af stað í bæinn (mjög létt yfir Hópreiðinni á þessum legg)
21:00 Lokahóf Snuddu Haren Iceland soClosed 2012 hefst í Funafold 35 hjá Tómasi hóst
21:01 Fordrykkur
21:30 Hringt í Jenna (leyfilegt að skamma hann)
22:00 Verðlaunaafhending fyrir árangur sumarsins, veit verða verðlaun fyrir forgjafaflokk 0-5 í forgjöf og svo frá 5-10 í forgjöf, aðrir fá skammarverðlaun
22:30 Halli gerir tilraun til að fá alla í fatapóker
23:00 DJ Reynir stýrir músik kveldsins
23:00 Haukur verður með örfund í einu herberginu (ca 5 mín). Aðeins hann og skynsemin eru boðuð á þenna fund. Niðurstaðan er að hann á að hella meira vín í sig.
00:00 Allir á dansgólfinu, nema Halli er einn að spila félagsvist á 4 borðum
01:00 Nóttin er ung
Ef einhverjar spurningar eru hafið samband.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2012 | 14:57
Haren - Grafarholti
Í gær var haldið Harenmót í Grafarholtinu í boði Reynis og hafi hann miklar þakkir fyrir það. 8 vaskir mættu til leiks og þar af var einn gestur, heimamaðurinn F. Nicklaus. Veðurspáin var ekkert alltof góð og var Kári orðinn helvíti öflugur á síðustu brautunum. Skipt var í 2 holl, ungir á móti gömlum og aukastig í boði ásamt einum ísköldum í lokin. Ungir höfðu sigur 119 punktar gegnum 116 mjög gömlum punktum. Einn ákveðinn hjá gömlum var mjög skömmustulegur í mótslokum og vildi frekar tala um veðrið en skorið sitt. Garðyrkjufræðingurinn kom sterkur inn og kann vel við sig þessa dagana, ný búinn að vinna minningarmót Geira El. Hann kann vel við sig í rokinu. Svo voru 3 jafnir með 31 punkt en undirritaður fékk 2.sætið á betri seinni nýju. Næst er stefnt að því að halda mót á heimavellinum á sunnudaginn. Stóri dagurinn er svo eftir 2 vikur en stefnt er að Borgarnesi og Akranesi ( seinni hringur Texas). Nú er mótstjórinn kominn aftur og sendi ég boltann til hans.

Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.9.2012 | 10:23
Betra seint en aldrei

Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.9.2012 | 21:03
Nyrsti 18 holu golfvöllur í heimi
Þar sem mótstjórinn er staddur þar er golfmót og eitt slíkt var haldið í dag á golfvelli nálægt Tromsö. Það er víst nyrsti 18 holu golfvöllur í heimi en þrátt fyrir það er þetta skógarvöllur. Brautirnar eru frekar daprar þar sem það vantar gras víða en flatirnar eru nokkuð góðar. Allir teigar eru með gervigrasi. Umhverfið á þessum velli er æðislegt og við vorum svakalega heppnir með veður, logn og 17 stiga hiti. Allar par 5 brautir á þessum velli eru um 470 metra sem er bara nokkuð þokkaleg lengd. Keppendur í dag voru aðeins tveir en við vorum svo heppnir að hafa kylfubera með okkur sem stóð sig líklega best. Við þurftum að leigja okkur kylfur sem voru ekki að nýjustu gerð, kaupa okkur golfbolta og hanska. Skorið hjá mótsjóranum var á endanum 99 slög og 26 punktar. Binni pinni var eitthvað yfir 100 högg en vann punktaleikinn á 29 punktum.
Það er eru myndir af þessum nyrsta 18 holu velli í heimi í myndalbúmi Tromsö golf 2012
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 21:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2012 | 13:23
1.mót eftir sumarfrí
Það voru 12 myndalegir spilarar mættir til leiks í 10 mót Harenmótaraðarinnar, þar af þrír gestaspilarar í aðlögun. Það voru að vísu bara 11 golfarar sem skiluðu sér í hús þannig að ef einhver sér Ragnar Kristjánsson á ferli þá látið vinsamlegst vita. Hann sást síðast í blárri peysu og svörtum buxum með gofsett í eftirdragi. Það gætu einhverjar kylfur í settinu verið brotnar.
Það færist spenna í toppbaráttuna þar sem H.Bragason er yfirleitt í stuði þegar hann mætir. Annars er staðan eftirfarandi eftir 10 mót.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.7.2012 | 11:19
H.Bragason kætir Framara
Fyrrum meistar mótaraðarinnar og fyrrum mótstjóri, H.Bragason hefur verið gerður að lukkudýri Framara í meistaraflokki knattspyrnu og það virkar vel. Tveir góðir sigarar eftir að hann var settur á bekkinn. Að sama skapi hefur hann ekki getað látið sjá sig á Harenmótaröðinni undanfarið þegar leikir rekast á. Hann heldur samt ennþá þriðja sæti og fjöldi móta eftir. Aðrar fréttir af fótboltaköppum mótaraðarinnar þá má geta þess að Siggi Vítamín gat ekki tekið þátt í gær þar sem hann var að spila í utandeildinni þar sem hann hamraði einn í geitina. Það er ljóst að Sigurður verður að taka sig verulega á (t.d. með því að mæta) ef hann ætlar að eiga von um að halda bikarnum í Kópavoginum.
Tommi kom sá og sigraði í gær og gaman hvað sumir eru að ná að lækka sig á mótaröðinni. Kannski ekki skrítið þar sem félagsskapurinn er einstakur. Heggi stabíli var í öðru sæti og sigraði Reyni með betra skor á seinni níu. Reynir er alvarlega farinn að blanda sér í toppbaráttuna og er á uppleið í golfinu. Bíllinn hjá Binna stóðst 18 holurnar með trixum en það er ljóst að hann verður að vinna í bílnum í vetur til að hann verði í toppstandi á næstu leiktíð. Annar eru úrslit og staða eftirfarandi:
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 11:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 68461
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar