Færsluflokkur: Íþróttir
17.7.2012 | 09:51
Leiran
Það var ákveðið að Harenmót þessara viku yrði haldið á vinavelli okkar Kjalarmanna í Leirunni. Við spiluðum golf í rúma fjóra tíma í sól og blíðu á þessum frábæra velli. Þess ber þó að geta að völlurinn er illa haldinn að vatnsskorti og ástandið hefur líklega sjaldan verið verra. Skorið hefur aldrei verið betra og það er ljóst að H.Bragason var hissa að 38 punktarnir hans dygðu bara í þriðja sætið. Það er ljóst að hópurinn mun þéttast þar sem sex bestu skorin gilda. Mótstjórinn tók góða rispu í gær og spilaði síðustu tíu holurnar á einum yfir pari og hefur náð góðri forustu. Við vorum með góða gesti með okkur sem voru Hanna hans Hauks, Haffi sem er ennþá í aðlögun fyrir Spánarferð og síðan var enginn annar en Ingólfur Arnarson með okkur í för. Staðan eftir 8 mót er eftirfarandi. eftirfarandi:
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 09:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.7.2012 | 17:20
Fyrsta mót eftir meistaramót
Menn komu í mismunandi ástandi til leiks eftir meistaramót í 7. mót á Harenmótaröðinni í gær. Mikill vindur til að byrja með en eftir sex holur gerði algjöra dandalablíðu og allar forsendur fyrir gott skor. Það fór svo að mótstjórinn tók þetta frekar örugglega og spilaði á 85 höggum en það var ákkúrat það sem beðið var eftir í meistaramótinu. Mjaðmasveiflan hjá Sigga er að gera sig og nú er bara að fara að lækka sig aftur eftir stöðugar hækkanir í sumar. Sá eini okkar sem fékk verðlaun í meistaramóti gaf aðeins eftir en tryggði sér 3.sætið og síðasta aukastigið en var greinilega þreyttur eftir að hafa gefið allt í meistaramótið. Staðan eftir sjö umferðir þar sem sex bestu telja ásamt öllum aukastigum er eftirfarandi:
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.7.2012 | 10:57
SnudduHaren 2012
Glæsilegu golfarar og Jón Ari
Nú er að verða komin mynd á þetta hjá okkur fyrir golfferðina á Oasis Plantio þann 16.október. Það eru 10 manns búnir að borga staðfestingargjaldið og við bíðum spenntir eftir staðfestingu frá síðustu 2. Mótastjórinn er á fullu að skipuleggja golfið en það er klárt að það verður keppni alla daga og í lokin verður Snuddu Haren meistari 2012 krýndur. Stefnt er að spila sem mest eða 36 holur á dag og seinni 18 verða alltaf í léttari kantinum, Texas, betri bolti eða annað sem mótstjóranum dettur í hug.
Næstu daga munum við hér á blogginu kynna menn til leiks, þar sem við munum fá innsýn í líf leikmannsins, eins og aldur, frammistaða á golfvellinum, leikstíl, ástarlífið, viðtal við leikmanninn, fyrri afrek, svo eitthvað sé nefnt. Fyrsta viðtalið mun birtast hér í vikunni, en það verður H.Elíasson from Kjölur mosó sem við munum kynnast.
Meistaramótið var einnig að klárast um nýliðna helgi. Tommi, Hergeir og H.Bragason spiluðu í 2.flokki og varð Hergeir í 3.sæti eftir bráðabana. Vel gert Mávur. Honum gekk þó illa með 1.holuna og verður gaman að sjá á eftir hvort hann meikar hana. H.Bragason var ekki upp á sitt besta en greinilegt er að hann er að einbeita sér að Haren mótaröðinni og spennan þar á toppnum að fara með hann sem hefur greinilega hrjáð hann í meistarmótinu. Tommi var þó nokkuð stöðugur. Sigurður og Haraldur kepptu í 3.flokki þó svo að undirritaður sé kominn ansi nálægt 4.flokki eftir sveiflubreytingarnar. Hver sendi hann í kennslu ??? Halli var nokkuð góður og stöðugur en Túkallinn var meira svona 90 kallinn. Sigurður spilaði ágætlega fyrstu 2 dagana en fór svo í póstnúmerið á 3 degi og sneri sér það alfarið á Bakkusi. Einnig fréttist af Frikka í GR en engar frægðarsögur þó.
96 dagar í brottför
Golfkveðja
Sigurður Egill
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.7.2012 | 10:36
Uppgjör eftir meistaramót
Það voru fimm vaskir félagar á Harenmótaröðinni sem tóku þátt í meistaramóti Kjalar þetta árið. Bestum árangri náði Hergeir sem keppti í 2.flokki, en hann var jafn tveimur öðrum í þriðja sæti og gerði sér lítið fyrir og sigraði í bráðabana strax á fyrstu holu. Aðrir gerðu það ágætt og hér má sjá punktaskorið í keppninni:
Heggi 34, 38, 29, 31 samtals 333 högg og 132 punktar
Haukur 33, 28, 32, 30 samtals 348 högg og 123 punktar
Tommi 32, 30, 33, 35 samtals 349 högg og 130 punktar
Halli 31, 32, 33, 28 samtals 365 högg og 124 punktar
Siggi 33, 35, 28, 29 samtals 381 högg og 125 punktar
Á myndinni má sjá okkar mann með bikarinn fyrir 3.sætið (hægra megin við miðju).
Íþróttir | Breytt 10.7.2012 kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.6.2012 | 23:05
Síðasta mót fyrir meistaramót
Það hefur spurst út hversu mikið fjör er á Harenmótaröðinni og stöðugt nýir félagar að óska inngöngu. Í þetta sinn mætti Binni Stef á nýja kagganum og spilaði sinn fyrsta hring á Hlíðarvelli sem bauð hann velkominn með nokkrum boltum í gilinu. Á endanum náði hann að vinna mótstjórann um júmbósætið með betri seinni níu. Jón Ari Ólafsson gamall meistari á mótaröðinni mætti í beinu flugi frá Norge þar sem það losnaði sætið hans Tomma. Alltaf gaman að spila með Yellow submarine sem gaf okkur wiskey in að jar. Það fór nú svo eftir 18. erfiðar holur að Roj Rogers náði að leggja alla að velli og náði sér í 10 stig á mótaröðinni og kemur sterkur inn í toppbaráttuna. Heggi er að spila vel þessa dagana og náði örugglega öðru sæti og Beggi kom vel afslappaður frá Spáni og skellti sér í þriðja sætið með frábærum leik. Þess ber að geta að nokkrar hetjur í hópnum tóku tilgangslaus víti þar sem þeir þorðu ekki inn í kríuskaran á nesinu en hún er ansi skæð þessa dagana.
Það skal tekið fram að 6 bestu skor sumarsins ásamt öllum aukastigum gilda til Harenbikarsins þetta árið.
Þess ber að geta að á næstunni mun nýr greinaflokkur fara af stað ritstýrður af Vítamíninu þar sem hann mun til að byrja með reyna að sannfæra Bragason að ná fram nýjum fundi með bankabókinni og skynseminni þar sem mótastjóra og aðstoðarritsjóra yrði boðið með. Eftir það verður talið niður í Spánarferð sem verður farin í október en meira af því síðar.
Úrslit úr móti sex og staðan er eftirfarandi:
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2012 | 16:53
Meistaramót
Þá styttist í meistaramót og stefna margir kylfingar Haren mótaraðarinna að þátttöku. Til gamans þá náði ég í veðurspá fyrir næstu viku og líklega verða stuttbuxurnar í skápnum alla keppnina. Lítur ekki vel út fyrir föstudaginn eftir viku en eins og allir vita sem búa á Íslandi þá er nú oft ekkert að marka veðurspá fyrir næsta dag.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 16:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2012 | 09:13
Aitch Bragason
Haukur Bragason er heldur betur í stuði þessa dagana og stefnir á meistaramót í 1.flokki þetta árið. Þriðji sigur mótaraðarinnar staðreynd. Það var gaman að sjá endurkomu Vítamíns þar sem nýji mjaðmarhnykkurinn hefur komið sterkur inn. Nú verða menn að fara bíta í skjalarendur ef Bragason á að hafa eitthvað fyrir Haren bikarnum. Það bættist við nýr meðlimur á mótaröðinni Ragnar Kristjánsson og við bjóðum hann velkominn í hópinn.
Staðan eftir 5 mót er eftirfarandi. Þess ber að geta að sex bestu skor gilda og öll aukastig telja.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 09:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2012 | 23:14
Fjórða mót sumarsins

Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2012 | 20:05
Staðan eftir 3 mót

Íþróttir | Breytt s.d. kl. 20:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2012 | 15:23
Staðan eftir mót 2
Eftir að Haukur frétti að það væru fullt af aukastigum í boð fyrir efstu menn þá tók hann sig á og sigraði 2.mót sumarsins. Spenna á toppnum en sumir þurfa að fara taka sig á.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 68464
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar