Færsluflokkur: Íþróttir
8.5.2012 | 09:52
HAREN-mótaröðin stendur undir nafni.
Það blésu ferskir vindar í fyrsta mótinu sem haldið var síðasta dag apríl-mánaðar. Eftirvæntingin var mikil og ekki laust við að léttur spennuhrollur gerði vart við sig á fyrsta teig...kannski var það bara veðrið. En veðrið lagaðist eftir 3 holur og við tók eintóm gleði. Eins og oft áður léku flestir illa, fáir sæmilega og einn vel. Skipt hafði verið í lið, ungir-gamlir, og unnu gamlir yfirburðarsigur. Tommi virðist alls líklegur þetta sumarið. Til að mynda var fréttaritari staddur í fermingarveislu í félagsheimili úti á landi og þar höfðu menn hafði fregnir af honum við æfingar nú um helgina þar sem hann fékk t.d. léttan örn á 2. holu Hlíðavallar (driver-wedge-wedge og vola...ofan í fór hann).
Fastir leikdagar höfðu verið ákveðnir á aðalfundi félagsins. Strax hefur þurft að fresta móti og er það anda mótaraðarinnar. Eins og forseti USA þá hefur mótastjóri 100 hveitibrauðsdaga til að sanna sig (enginn pressa hr. mótastjóri) hann þarf reyndar ekki nema að ná 5 mótum til að gera betur en fráfarandi mótastjóri . Eftir lauslega talningu þá eru 26 mánudagar á þessu sumri þ.a. það er gott rými fyrir fullt af mótum.
Mikil tilhlökkun er fyrir næsta móti en þá mætir Jón Ari Ólafsson, also from Kjolur Mosfellsbaer, beint frá Múmíndal í Noregi. Þar er búin með 2 ár (af 4) í s.k. golfmenntaskóla og bíða menn spenntir eftir að sjá hvað hann hefur fram að færa þetta sumarið.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2012 | 12:39
Sigurvegari 2011
Harenbikarinn 2011 var afhentur í gær fyrir fyrsta golfmót mótaraðarinnar 2012. Á myndinni má sjá stoltan Sigurð Vítamín Þorvaldsson og var nafn hans skráð a bikarinn í fyrsta sinn. Sjö sinnum hefur verið keppt um þennan stórkostlega bikar og aðeins einu sinni sami maður unnið tvisvar og það var norski vinur okkar Jón Ari Ólafsson sem náði því.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2012 | 10:24
Nýtt í pokanum 2012
Þar sem Haren-mótaröðin hefst á mánudaginn þá er ekki úr vegi að skoða hvað menn hafa nýtt fram að færa fyrir átökin í sumar.
Halli: Mætir með nýtt járnasett, nýkominn úr 12 vikna þjálfunarbúðum hjá kennara. 6 vikna meðferð hjá kírópraktor sem jafngildir nýju baki. Hann mun síðan skarta glæsilegum fatnaði og kerrupoka sem keypt var fyrir aflandskrónur í Boston á liðnu hausti.
Sigurður: Mætir með nýja golfsveilfu (3. edtion frá liðnu sumri). Mun þó væntanlega halda sig við gömlu góðu innáhöggin með pútterunum sínum.
Hergeir: Kemur með ferskari matvæli í pokanum...erum að tala um Best before 2009 þetta árið.
Haukur: Mætir...sem er nýtt frá liðnu ári.
Reynir: Mætir með nýtt barn (?).
Tommi: Lítið breytst hjá Tomma en hann er þói nýju húsi með nýlega konu ef ritstjóra misminnir ekki.
Ingvar: Er nýr. Ætlaði fá sér nýja skó en fann þá gömlu, voru þó ekki komnir uppá hillu heldur voru undir hellu á nýlagðri stétt við húsið.
Beggi: Mætir með nýja kjötvinnslu...minna má það nú ekki vera.
Jón Ari: Sást lítið s.l. sumar en verður stubbaknúsaður ef hann mætir á ný.
Annars eru allir með gamla góða skapið
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2012 | 13:02
Fréttir af æfingum.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2012 | 11:23
HAREN-seasonið 2012...við það að hefjast !
Það voru 4 sterkir mættir á teig í fyrsta fasta tíma á mánudegi. Mótastjórinn, lögfræðingurinn, fjármálastjórinn og ritstjórinn. Það kom illa í bakið á mótastjóranum sú ákvörðun hans að fresta fyrsta móti ársins þar sem hann skoraði 30 pkt. á 14 holum og sigraði einstaklingsleikinn létt. Annars voru liðinn þannig að saman léku; mótastjóri og lögfræðingur gegn ritstjóra og fjármálastjóra. Þetta var ansi sveiflukenndur leikur þar sem mótastj./lögfr leiddu allan tímann. Með harðfylgji tókst ritstj./fjármálastj. að jafna leikinn á 9undu. Þá tók mótastjórinn sig til og opnaði einn grænan classic og hellti uppá liðið sitt (andstæðingarnir fengu ekkert). Það var ekki að sökum að spyrja hann raðaði inn fuglunum og endaði leikur með 10 pkt sigri mótastjóra og lögfræðingsins. Munaði þar með engu að hamborgari hefði þurft að fylgja bjórnum.
Þetta var hin mesta skemmtun í aldeilis frábæru veðri á Hlíðavelli og ljóst að menn mæta grimmir til leiks þegar mótastjórinn flautar loks mótið á. Fjármálastjórinn kom svo sterkur inná 15. holu og fékk sér 2 kalda og setur þar með nýtt viðmið.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2012 | 12:55
Myndir frá Ballena

Íþróttir | Breytt s.d. kl. 13:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2012 | 18:49
Ballena 2012 - fimmtudagur
Sælir kettlingar
Það hefur ekkert breyst frá því í gær að því leyti að enn hefur Hákon Erlendsson ekki unnið okkur gömlu mennina. Reynir var enn góður í dag og vann með 23 punkta. Sveiflan hjá vítamíninu er enn í mótun en hann byrjaði vel í dag en datt svo í gamla farið. Það er því enn verk að vinna. Dagurinn byrjaði með kennslu hjá Röggu Sig og leit allt vel út. Allir boltar strikaði og hamingja framundan. Eftir kennslu var borðað og rástími var svo kl. 12. Við tókum með okkur góðan gest í dag, Ólaf Jóhannesson landsliðsþjálfara fyrrverandi. Ég og Reyni á móti Hauk og Óla Jó í róna. Ég og retro byrjuðum vel en þegar vítamínið týndi nýju sveiflunni fór að harðna á dalnum. Haukur og Óli voru komnir með forskot á fáar holur eftir en þá ákvað Óli Jó að gefast upp eftir 17.holu og því var Sigurði og Reyni dæmdur sigur, þrátt fyrir að vera undir eftir 17.holur. Það þarf að klára leikinn. Svo seinni partinn var spilað texas með Jón Andra, ég og Haukur á móti Reyni og Jón Andra. Ég og Haukur töpuðum þeirri lotu, þetta var svo ójafnt að setta var ný keppni í gang eftir 6 holur.
Annars er mót á morgun á vegum Heimsferða og kapparnir skráðir til leiks.
Ég var að senda Halla nokkrar myndir, hann ætti að geta hent þeim inn.
Leiðinda líf
Þarf að fara detta í sturtu og fá mér Baccardi Razz
Love
Ballena hópurinn 2012
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.3.2012 | 22:20
Ballena 2012
Glæsilegu Snuddu Haren hópur
Erfiðlega hefur gengið að skrifa fyrstu dagana þar sem dagskráin hefur verið mjög stíf. Veðrið hefur verið mjög gott alla dagana þó að það hafi verið rigning daginn sem við lentum en þó var það eingöngu á flugvellinum og þurrt þegar komið var á áfangastað. Þó hefur verið vindasamt síðustu 2 daga eftir hádegi.
Almennt eru menn ekki að koma vel undan vetri og golfið gengið frekar erfiðlega. Gömlu karlarnir hafa þó alltaf unnið og því er Hákon Erlendsson enn ekki búinn að vinna gömlu karlana. Retro spilaði vel í dag og vann fyrstu 9 holurnar og einnig næstu 18. Vítamínið var alveg skelfilegt í dag og bað hann meðspilara sína afsökunar á sinni frammistöðu. 11 punktar á 18 holum. Til skammar. Var samt með 14 punkta á fyrstu 9. Á þessum tímapunkti ákvað Vítamínið að fara í sína fyrstu golfkennslu á ævinni. Ragnhildur Sig tók hann í kennslu. Mikil eftirvænting var í hópnum að sjá hvort hún myndi breyta 30 atriðum en svo var aldeilis ekki. Ein breyting var framkvæmd og það var gripið. Erfiðlega gekk til að byrja með en á endanum var allt orðið perfect, allir boltar strik beinir og meira segja var hann farinn á chippa. Í lokin kenndi ég svo Íslandsmeistaranum pútt af 50-100 metra færi.
Man ekki hvort ég var búinn að taka það fram, en Hákon Erlendss er ekki enn búinn að vinna gömlu karlana.
Staðan og helstu úrslit verða sett inn á morgun.
Over and out
Ballena hópurinn 2012
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.3.2012 | 10:05
Mynd af strákunum á Ballena

Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar