Færsluflokkur: Íþróttir

Æft fyrir Harenmótaröðina 2012

Frést hefur að sigurvegara Haren mótaraðarinnar í æfingabúðum á Spáni ásamt Retro Stefson.  Það er ljóst að Vítamínið ætlar ekkert að gefa eftir í sumar og gerir allt til að halda bikarnum áfram í Kópavoginum.  Tíðindarmaðurinn er ánægður með það að þessir ungu drengir taki golfið að festu og metnaðurinn er greinilega mikill fyrir sumarið. Það er því mikil ánægja að segja frá því að aðdáendur síðunnar eiga von á fréttum af unglingamótaröðinni á Ballena þetta vorið, vonandi strax í dag!! 

Sigurvegari Haren mótaraðar 2011

Á laugardaginn var var haldin uppskeruhátíð Haren mótaraðarinnar.  Þá kom i ljós að nýtt nafn verður sett á bikarinn.  Það er að vísu þremur árum á eftir áætlun en það hafðist hjá kappanum. 

Mynd í viðhengi er tekin í Haren 2007 þar sem okkar maður hefur fengið Haren hattinn lánaðan og virðist stefna á sigur 2008.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Golfvellir sem voru spilaðir

Undurfögru og

 Þar sem Valderrama var upptekinn þegar við vorum úti sökum einhvers móts sem var í gangi þar, tókum við 2 aðra mjög skemmtilega velli.

Sendi ykkur hérna heimasíðuna fyrir þá velli en þeir eru notaðir á túrnum.

 

http://www.sherrygolf.com/ingles/ingles.html

 

http://www.arcosgardens.com/site/index.html

Góða skemmtun

Öldungarnir


Myndir

Það eru komnar myndir í albúmið "öldungarmótaröðin 2011".

Kveðja

Séð og heyrt


Öldungamótaröðin klárast

Já allt tekur enda og hin geysiskemmtilega öldungamótaröð kláraðist í gær.  Keppendur koma síðan heim í dag og má búast við góðum móttökum í Leifstöð.  Tíðindamaðurinn hefur fengið þjónustufólk flugstöðvarinnar að skilja eftir tvo rafdrifna hjólastóla fyrir Hermínu og Sigríði Grönfeld svo að þær eigi auðvelt með að komast í gegnum tollinn.  Það er líklegt að það verði þegið fegins hendi hjá þeim.  Það má svo búast við því að dagbók Sigríðar verði birt hér á blogginu á næstunni og að sjálfsögðu endanleg úrslit.  Sigríður vinnur að handbók fyrir útreikningar í íþróttaviðburðum og vonandi verður þessi bók einng birt hér á blogginu.  Það eru komnar nýjar myndir í albúmið Öldungamótaröðin 2011 og það má búast við miklu fleiri myndum þegar hetjurnar koma til baka.

Með kærri kveðju um góða heimferð.

Tíðindarmaðurinn


6 og 7 dagur á Ballena

Undifögru Haren, Snuddumenn og fleiri og Jón Ari

Á 6. degi var spilað 18 holur á ótrúlega fallegum velli sem heitir Arcos Garden, en þetta er völlurinn sem Birgir Leifur tryggði sér réttindi á Evrópumótaröðina.  Fallegasti völlur sem undirritaðir hafa spilað.  Myndirnar sem eru hér í fyrra bloggi eru teknar þar.  5 stjörnu völlur.

Hergeir var á 88 höggum og 31 punkti en Stardusinn átti fáranlegan góðan dag og var á 90 höggum og 35 höggum, 8 pör, já sæll.  Svo var farið 9 holur á Ballena og spilaði Hermína vel þar.

 Á 7.degi var mót á vegum Heimsferða.  Spilaðar voru 18 holu punkta keppni,  Hermína var í ruglinu og fékk 40 puntka, 80 högg og vann mótið bæði punkta og högg án forgjafar.  Já sæll.  Eftir 18 holur þar var spilaður völlur sem heitir Sherry en hann er fáranlega fallur og erfiður, 6200 metrar á gulum.  Ein par 4 braut þar 424 metrar og nokkrar sem voru í kringum 400 metrar.  Stardus var þar á 97 höggum og 30 punktum og Hérmína á 32 punktum.

 

Lokastaðan verður á lokahófið öldungarmótaraðarinnar.

 

Meira fljótlega

S og H


Nokkrar bakmyndir

til vinstri í tjörn?FramsveiflanTíðindarmanninum hefur borist glænýjar myndir af Öldungamótaröðinni 2011.  Dæmi hver fyrir sig hvar boltinn er staðsettur.  Einnig getur fólk dæmt um hversu fallegir þessir menn eru á velli en stigin virðast a.m.k. hrúgast inn fyrir þann lið.

Tíðindarmaðurinn

In the middle of the fairway


5 dagur á Ballena

Undirfögru Haren menn og Jenní líka

 Spilað var 4 manna texas mót þennan daginn á vegum Heimsferða og spiluðu við á 3 undir pari.  Taka skal þó fram að við vorum í endalausum birdie sénsum.  Svo voru teknar 9 holur ásamt dollara leik.  Stardusinn funheitur ..........einmitt voða surprise, mágurinn einnig sterkur á 17 punktum.

Staðan eftir daginn

Dagur 4

Stigaskor

 

Punktar 9 holur

Högg

Texas 4 manna 

Dollara leikur 9 holur

Stig  punktar

Stig dollara

Texas 4 mann

Sund

Fegurð á velli

Naktir á svölunum

Samtals

Hergeir

17

40

-3

600

1

2

0

0

7

4

14

Siggi

18

43

-3

900

2

3

0

0

7

4

16

Kristján

?

?

-4

?

?

?

3

0

7

1

11

Raggi

?

?

-4

?

?

?

3

0

7

1

11


Glæsileg sveifla

Á meðan öldungarnir hvíla sig skulum við virða fyrir okkur þessa fínu framsveiflu af Hermínu og takið sérstaklega vel eftir torfunni sem er efst hægra megin á myndinni.  Ég er ekki frá því að stærðin sé jafn stór peningaseðli eins og golfkennarar tala um.

Glæsileg sveifla


5 dagur

Undurfögru félgar og Jón Ari

Staðan og fréttir frá degi 5 verða settar inn á morgun, sökum þreytu hjá öldungunum.

Kv. S og H


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband