Færsluflokkur: Íþróttir
1.7.2010 | 23:45
6. mót í Mosó
Það var haldið mót til upphitunar fyrir meistaramót í Mosó í kvöld í smá rigningu og roki. Aðeins helmingur þátttakenda var með og samskvæmt Haren reglum var þá mest hægt að fá 4 stig. Hergeir var í miklu stuði og sigraði á 36 punktum í öðru sæti var síðan Halli með 33 p. þar á eftir Jón Ari með 27 p. og Tommi Tommi rak lestina með 24 punkta. Heildar staða er því eftirfarandi:
Haukur 20,5 stig
Heggi 20 stig
Halli 18,5 stig
Siggi 16 stig
Jón Ari 12 stig
Tommi 5 stig
Reynir 3 stig
Þess má geta að Heggi og Tommi unnu rónann með 3 stiga mun.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2010 | 13:03
5. mót -Mosó-
5.mót Haren raðarinnar fór fram í eldsnemma á sunnudagsmorgni í fínu veðri. Ekki skiluðu allir sér á teiginn en þess má geta að bíladagar voru á Akureyri og ekki ólíklegt að "Bat-mobile" hafi verið að spyrna þar :-), allavegana var driverinn ekki mættur. Úrslit urðu sem hér segir:
Halli: 28 pkt og 4,5 stig.
Haukur: 28 pkt og 4,5 stig.
Siggi: 26 pkt og 3 stig.
Hergeir: 26 pkt og 2 stig.
Reynir: 15 pkt og 1 stig.
Staðan eftir 5 mót:
Haukur: 20,5 stig
Siggi: 16 stig
Hergeir: 16 stig
Halli: 15,5 stig
Jón Ari: 10 stig
Tommi: 4 stig
Reynir: 3 stig.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.6.2010 | 11:22
Leiran
Fjórða mót Haren mótaraðarinnar fór fram í miklu roki en björtu veðri 16. júní. Menn voru almennt að spila nokkuð vel og vonandi er vorbragurinn að minnka á golfspilinu. Úrslit urðu efitirfarandi:
Haukur 35 p, Halli og Jón Ari 34 p, Siggi V 33 p, Heggi 32 p, Tommi 31 p og aðrir minna.
Heildar staðan er eftirfarandi:
Haukur16 stig
Heggi 14 stig
Siggi 13 stig
Halli 11 stig
Fram 14 stig
Jón Ari 10 stig
KR 6 stig
Tommi 4 stig
Reynir 2 stig
Aðrir minna
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.6.2010 | 00:22
3. Mót -Opna Oddamótið- í Grafarholti
Mættir voru 5 menn af Haren-mótaröðinni og reyndu með sér í punktakeppni í Grafarholti. Úrslit urðu sem hér segir:
Sigurður 5 stig
Hergeir 4 stig
Haukur 3 stig
Tommi 2 stig
Fram 14 stig
Jón Ari 1 stig
Staðan eftir 3 mót er sem hér segir: Hergeir 11 stig Sigurður 9 stig Haukur 9 stig Halli 5,5 stig Jón Ari 4,5 stig Tommi 2 stig, Reynir 1 stig. Ragnar hefur ekki enn mætt til leiks. Mótið er galopið í báða enda og næsta mót er í Leirunni, 16. júni.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 11:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.5.2010 | 23:31
Texas
Mót númer tvö var haldið í frábæru veðri í Mosó á föstudagskvöldið. Fyrirkomulag var Texas með þremur í liði. Úrslit eru eftirfarandi:
Halli, Heggi og Siggi V -4 högg án forgjafar og sigur sem gerir þrjú stig.
Haukur, Jón Ari og Reynir -2 högg án forgjafar og tap en þeir fá samt eitt stig.
Heildar staðan er eftirfarandi
16.05 punktaleikur | 29.05 Texas | Samtals | ||||
Heggi | 4 | 3 | 7 | |||
Haukur | 5 | 1 | 6 | |||
Halli | 2,5 | 3 | 5,5 | |||
Siggi V | 1 | 3 | 4 | |||
Jón Ari | 2,5 | 1 | 3,5 | |||
Reynir | 0 | 1 | 1 | |||
Raggi | 0 | 0 | 0 | |||
Tommi | 0 | 0 | 0 |
Tommi og Raggi ekki ennþá mætt til leiks.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2010 | 14:19
Úrslit 1.mót
Þá er fyrsta Haren mótinu lokið. Nýliðarnir skrópuðu og því vorum við aðeins fimm auk Valla víkings sem kom með sem gestur. Það var töluverður vindur sem setti smá strik í golfið en úrslit eru eftirfarandi:
Haukur 34 punktar
Heggi 33 punktar
Jenni og Halli 31 punktur
Tommi 25 punkar
Stefnt að næsta móti í vikunni.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2010 | 22:51
Mótaröðin byrjar í fyrramálið
Þá er loksins komið af því að Haren mótaröðin fari af stað. Á morgun kl. 10.00 verður flautað til leiks að nýju og staðsetning Kjölur Mosfellsbær. Það er fastlega búist við því að keppendur síðasta árs þ.e. Halli, Haukur, Jón Ari (öðru nafni Jenni), Siggi vítamín öðru nafni Tommi, Heggi og Tommi oft nefndur Tommi mæti til leiks ásamt tveimur nýjum meðlimum Reyni og Ragga (eftir að finna nick á þá). Að vísu þarf Tommi-Tommi líklega að skrópa á morgun en mætir líklega ferskur í næsta mót.
Það er ekki búið að skipuleggja mótaröðina en það má búast við frekari dagskrá fljótlega. Á síðasta aðalfundi voru Siggi V og Haukur kostnir í ferðanefnd og einnig sem tíðindamenn mótaraðarinnar þannig að það má búast við skemmtilegum pistlum í sumar.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2010 | 11:38
Íslandsmeistarar 1983
Hallahipp barst þessi fína mynd af nokkrum góðum Frömurum. Þrír af þeim eru á Haren mótaröðinni. Mótanefndin er að störfum og reiknað með fyrsta móti í kringum 20.maí.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2010 | 23:30
Bjarnleifur ráðinn ljósmyndari á hallahipp
Nýr liðsmaður fréttamiðilsins hallahipp hefur verið ráðinn. Er það enginn annar en hinn fornfrægi íþróttaljósmyndari, Bjarnleifur. Bjarnleifur var íþróttaljósamyndari Dagblaðsins á árum áður eða allt þar til hann lést. Hann dúkkaði hinsvegar óvænt upp á Hlemmi í febrúar síðastliðnum þegar tíðindamaður síðunar var þar á ferð á sunnudagsmorgni (eftir ógurlegt ICEsave-fyllerí...hafði bæði drukkið Icy-vodka og Ice-blue rakspíra en það er nú önnur saga). Allavegana var Bjarnleifur sjanghæaður í starfið enda mikill skortur á fagmennsku í myndvinnslu síðunar. Fyrsta verk Bjarnleifs verður strax á morgun þ.e. að fylgjast með og taka myndir í kveðjupartý músarinnar og reaggie listamannsins Jenny the dreadlocks.


Eins og sjá má þá þarf Bjarnleifur ekki þrífót til að fanga viðfangsefnið.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2010 | 13:28
Jamaíka veisla Jenna
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 13:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 23
- Sl. sólarhring: 27
- Sl. viku: 53
- Frá upphafi: 68506
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 13
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar