Færsluflokkur: Íþróttir
11.9.2009 | 10:29
Uppgjör frá Akureyri
Mót 6 og 7 á Haren-Iceland 2009 mótaröðinni fór fram í æðislegu veðri í höfuðstað norðurlands Akureyri um síðustu helgi. Í för með okkur Haren strákunum voru frábærir gestir. Flestir lögðu af stað á föstudagsmorgni en eins og kom fram tók Jenni Viðeyjarferjuna og kom því ekki fyrr en á föstudagskvöldi. Í Haren mótaröðinni giltu tveir af þremur bestu punkta hringjum til verðlauna og skor manna eftirfarandi:
Föstudagur | Laugardagur | Sunnudagur | Formúlustig, besta skor | Formúlustig, næst best | Samtals | |
Haukur Bragason | 27 | X | 23 | 1 | 1,5 | 2,5 |
Halli | 32 | 29 | 24 | 4 | 5 | 9 |
Sigurður V | 36 | 35 | 28 | 6 | 6 | 12 |
Tommi | 28 | 27 | 29 | 2 | 4 | 6 |
Jón Ari | X | 30 | 23 | 3 | 1,5 | 4,5 |
Heggi | 24 | 33 | 27 | 5 | 3 | 8 |
Sigurður hefur heldur betur staðið sig vel í vítamínum þessa vikuna og tók þetta nokkuð örugglega.
Staðan er því eftirfarandi:
Halli og Siggi saman á toppnum með 32 stig
Heggi 31, Jón Ari 27,5, Tommi 23,5 og Haukur 16 stig.
Við viljum sérstaklega þakka gestjafanum Reyni Stefánssyni fyrir frábæarar móttökur og síðan þökkum við gestum okkar Hafsteini, Sigurði Óla, Ingvari og Jónasi fyrir frábæran félagsskap.
Íþróttir | Breytt 12.9.2009 kl. 09:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2009 | 10:57
Haren-Iceleand 2009, Akureyri
Þá er Sigurður Vítamín búinn að setja upp dagskrána fyrir helgina. Hún mun vera nokkurnvegin svona:
Dagskrá Haren Íslands 2009
Föstudagurinn 5.september 2009
9.00-10.30 Lagt af stað til höfuðstað Norðurlands
12.00 Hádegismatur á Blöndós........pullur og bjór
13.50 Ríkið á Akureyri........bíllinn fylltur........
14.00 Komutími í Krókeyrarnöf 16 Akureyri
14.30 Haldið út á golfvöll
14.50 Kennsla í 70 metra púttum.........mjög gott að kunna í mótvindi.........
15.00- 15.20 Hópar ræstir út af okkar elskulega mótstjóra Hizbolla
17.10 Hergeir búinn með 100 högg.............8 holur eftir........
17.45 Jenni leggur af stað með Viðeyjarferjunni
18.30 Jenni leggur að bryggju og fer heim að elda fyrir golfarana
19.20 19 holan og uppgjör mótsins
20.00 Matur hjá Jenna að Krókeyrarnöf.......væntanlega Haren snitzel.......og Schlöss
21.00 Mótstjóri kynnir golf helgarinnar
22.00 Reynir kynnir mönnum fyrir helstu trixinu við norðlenskar meyjar
24.00 Tommi og Jenni fara í eltingarleik
01.00 Kaffi Akureyri og næturlífið
04.00 Heim og tannbursta
04.30 Allir í háttinn......nema Hizbolla spilar Sigurrós til kl 06.00
Laugardagurinn 6.september 2009
08.00 Morgunmatur og beiskur
09.00-09.20 Ræst út af 1. teig
13.20 19 holan
14.00 Mótstjóri tilkynnir hvort spilaðar verði 9 eða 18 holur í viðbót og þá hvar
14.30 Ríkið .........fyllt á
15.00 - 19.00 Óvissu golf
19.30 Fordrykkur í Krókeyrarnöf
21.00 Kvöldverður í miðbæ Norðurlands
23.00 Kaffi og koníak........ásamt gömlum molum úr konfektkassasafni Hergeirs úr bílskúrnum...........þeir sem eru með ofnæmi fyrir salti láta þessa mola vera..........
01.00 Sjallinn - H. Bragason treður upp í Sjallanum ásamt útbrunnum fótboltamönnum........Toddi veitir blaðamönnum viðtöl.........
02.00 Jenni treður upp á Sjallanum........norðlendingarnir skilja ekkert hvað hann er að segja.....jú nesquick bunny stardus hizbolla....bæbæ belt....jonald whishey in the ja......
03.00 Bræðurnir taka Stefánsson púið þegar Sjallinn lokar................
06.00 Heimkoma - tannburstun og Sigurrós.........
Sunnudagurinn 7.september
10.00 Ræs and sjæn
10.30 Morgunmatur........væntanlega egg og bacon Jenni minn........eða viltu bara ost........
10.50-11.10 Ræst út í golfmót
11.30 Hergeir kominn með 3 out of bounds.......2 boltar eftir í töskunni........en tíin búin.......notaðir gamlir saltbaukar til að tía restina.........
12.00 Hizbolla ennþá í red figures
15.00 19 holan og mótsuppgjör
16.00 Reynir kysstur bak og fyrir með þúsundum þökkkum
16.10 Viðeyjarferjan leggur af stað með músina
16.15 Aðrir halda heim á leið í höfuðborgina
Kveðja
Haren nefndin
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.8.2009 | 21:09
Haren-Iceland 2009, mót 5
Jæja þá náðist loks að halda 5. mótið þó án Tomma sem komst ekki. Hann fékk lánsmann til að mótið yrði gilt. Fyrrum klúbbmeistari, Haukur Bragason (þess má geta að hann er að halda upp á að tuttugu ár eru liðið frá því að hann hélt á Íslansmeistara dollunni í fótbolta) var búinn að skipuleggja punktaleik með tveim í liði en það var blásið af vegna mikils vinds og ákveðið að taka Texas ungir og gamlir, þrír í liði. Það fór svo þannig að reynsluboltarnir Halli, Heggi og Haukur voru í miklu stuði og spiluðu Hlíðarvöll á -5, einn örn, fjórir fuglar, einn skolli og rest par. Tommi og Jenni ásamt lánsmanninum Frikka spiluðu á -1 og -3 nettó með forgjöf. Þetta setur heldur betur spennu í toppbaráttuna þar sem staðan er eftirfarandi:
Jón Ari, Heggi Salt og Halli eru með 23 stig
Sigurður Vítamín 20, Tommi 17,5 og fyrrum Íslandsmeistari rekur lestina með 13,5 stig.
Stefnt er að ná einu móti i bænum áður en haldið er til Akureyrar þar sem tveir til þrír hringir á mótaröðinni fara fram.
Íþróttir | Breytt 24.8.2009 kl. 10:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.8.2009 | 01:06
Viðtalið: H.Elíasson, Haren-meistari 2005
Tíðindamaður mótaraðarinnar mælti sér mót við H.Elíasson og fyrsta sigurvegara Haren-mótaraðarinnar (2005), í bílskúr snillingsins í Safamýrinni. Þegar tíðindamanninn bar að garði var H.Elíasson að dytta að settinu og þvo golfkúlurnar sínar, með þeim hætti að stinga þeim upp í sig, velta þeim aðeins til þannig að þegar hann spýtti þeim út úr sér komu þær alveg hvítþvegnir tilbaka, hreinni en úr nokkurri golfboltavél.
"Er þetta hollt" spurði Tíðindamaðurinn.
"Á misjöfnu þrífast börnin best" svaraði H.Elíasson.
Áður en tíðindamaður hóf spurningaflóðið bauð H.Elíasson í mat. Tíðindamaður hugasaði sér gott til glóðarinnar enda Frau Eliasson annálaður snilldarkokkur en annað átti nú eftir að koma á daginn.
H.Elíasson byrjaði á því að opna golfpokann og reiða fram veitingarnar; Þarna var snitzelbiti frá Haren 2005, hálfur lunc-pakk frá Haren 2007 sem innihélt epli, hálfa samloku og mars súkkulaði, Tomat-suppe í krukku undan "Wiskey-in-a-jar" frá Jóni Ara. Þessu var öllu skolað niður með tveimur hálfum Slotz-bjórum í plastflösku. Ekki laust við að, aðeins vantaði uppá gosið í bjórunum.
"Ég veit ekkert verra en að henda mat" sagði snillingurinn!
Tíðindamaðurinn ákvað að fá sér Tomat-suppe en fann fljótlega að hún var salt-lítil.
"Kallinn hlýtur að eiga saltkorn" spurði Tíðindamaðurinn enda er H.Elíasson þekktur fyrir salt-neyslu sína, saltar t.d. saltfisk þegar Frau Eliasson býður uppá hann á þriðjudögum.
"Jú jú, teygðu bara aftur og fáðu þér úr 1 Tonna tröllapokanum sem ég keypti af vegagerðinni rétt áður en kreppann skall á. "Bestu kaup sem ég hef gert"!
Að máltíð lokinni var boðið uppá súkkulaði-mola úr konfekt-kassa með mynd af Kristjáni heitnum Eldjárn og frú Halldóru og var því skolað niður með Ís-cola sem virtist vera nóg til af í bílskúrnum (það skal tekið fram að þetta fylgti með í kaupunum á Safamýrinni). Með þessu reyktum við birdie-vindla af bestu sort frá Haren-2005.
Það voru sorglega margir eftir í Ten-pakkinum.
T: "Jæja Mr. H.Eliasson, golfið hefur nú kannski ekki verið að gera sig eftir sterka byrjun á Haren-Iceland túrnum"?
H.Eliasson "Nei, en það er skýring á því".
T: "I´m all ears".
H.Eliasson: "Sko sjáðu til, það er alltof kalt, kroppurinn er alltof kaldur, alltof loftkalt".
T: "Ok...og...?"
H.Eliasson: "Eftir að ég að ég byrjaði í Ál-fabrikkunni þá vil ég hafa svona ca. þrr....."
T: "Hey þú getur ekki beðið um 30 gráður á klakanum"
H.Elíasson: "Nei, ég vil hafa svona 3000 gráður!"
T: "Þá verður þú að flytja"
H.Elíasson: "ég er einmitt að spá í það"
T: "nú hvert......Samóa?"
H.Elíasson: "nei, sun...."
T: "Aaah...Sun City"
H.Elíasson: "nei til sólarinnar og mamma kemur með, hún getur setið allt árið útá svölum"
T: "Takk fyrir mig og hvenær fer leið 3 uppí Breiðholt?"
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2009 | 01:22
Coke vs. Pepsi. Umfjöllun um mót 4 í Leirunni.
Tíðindamaður mótaraðarinnar var mættur í Leiruna til að berja snillingana á augum. Mótastjóri ákvað skiptingu liða í ungir (Pepsi) vs. gamlir (Coke). Tíðindamaður sá fljótlega að betra væri að fylgja Coke-liðinu eftir, ef hann ætlaði að læra eitthvað af þessu. Þarna voru tómir snillingar á ferð og yfirburðirnir algjörir. Þá gerðist það sem tíðindamaðurinn hefur aldrei upplifað áður og mun sjálfsagt aldrei upplifa aftur; Tommi, sem er einn albesti leikmaður keppninnar, veiktist af svínainflúensu á 6.braut og átti sér ekki viðreisnar von. Til að bæta gráu ofan á svart smitaði hann Hergeir, einn albesta leikmann mótaraðarinnar, á 8. braut. Það var því þyngra en tárum taki fyrir tíðindamanninn að fylgjast með hinum fallna klúbbmeistara reyna að draga vagninn, gjörsamlega týndan í vonbrigðum yfir slökum árangri á HIT-mótaröðinni. Það sem er á manninn lagt, ja Drottinn minn dýri.
Myndirnar tala sínu máli.

Pepsi-liðið, áður en lagt er af stað. Maður myndi ekki veðja mörgum dollurum á þetta bunch....en þeir sem gerðu það græddu vel .

Coke-liðið áður en lagt var í'ann. Sigurstranglegra lið hefur ekki sést síðan Fram lék við Real Madrid á Laugardalsvellinum 1972.

H. Elíasson gengur þungstígur og fárveikur af svínainflúensu eftir 18 brautinni. Ber sig þig merkilega vel þrátt fyrir 43.stiga hita á celcius og vitandi það að leikurinn væri tapaður.

Stardust setur birdie-púttið í á 18undu, eftir að Jerry hafði vippað í stöngina fyrir rare-eagle.
Takið eftir að Stardust notar driver-pútterinn til að klára dæmið.

Þessi mynd segir meira en 1000 orð. Fögnuður Pepsi-liða algjör og maður veit ekki hvað snýr upp og niður í heiminum ...til hamingju ungir...
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.7.2009 | 01:04
Haren-Iceland, mót 4
Eftir nokkra bið var fjórða mót á Haren-Iceland 2009 mótaröðinni haldið í kvöld. Spilað var í Leirunni og leikfyrirkomulag Texas skramble þar sem þrír voru saman í liði. Valið í lið eftir aldri þar sem yngri og eldri voru saman. Það kom síðan á daginn að yngri kynslóðin hafði sigur eftir nokkuð spennandi leik. Siggi vítamín, Jón Ari og Halli spiluðu samtals á tveimur undir pari vallar eða 70 slög (fjórir fuglar, tveir skollar og restin par. Gömlu mennirnir Heggi, Tommi og Haukur voru á 74 höggum (einn fugl, þrír skollar og restin par). Þetta breytir heildar stöðunni nokkuð þar sem Jón Ari hefur tekið örugga forustu. Heildar staðan er eftirfarandi:
Jón Ari 20 stig
Heggi, Halli og Siggi 17 stig
Tommi 14,5 stig og klúbbmeistarinn rekur lestina með 7,5 stig. Það er ljóst að klúbbmeistarinn kemur til með að ráða leikfyrirkomulagi í næsta móti ásamt því að velja sér makker.
Þess má geta að Sigurður Vítamín átti skot dagsins sem var 70 metra pútt fyrir erni. Boltinn fór í stöngina og endaði um 20 cm frá. Hann var síðan ekki í vandræðum að ná fuglinum.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2009 | 11:36
Viðtalið: Colin Montgomerie
Tíðindamaður mótaraðarinnar var á rölti í Fram-hverfinu á dögunum þegar hann rakst á meistarakylfinginn Colin Montgomerie þar sem hann kom út úr Víði Starmýri með kókómjólk og glassúr-snúð í hendi. Tíðindamaðurinn lét ekki segja sér þetta tvisvar heldur sveif á kappann og kynnti sig. Montgomerie brást heldur önugur við eins og hans er von og vísa og spurði
uuuugh you are not from the weight watchers magazine are you ?
No, no, I´m a freelance reporter (R) from the Haren-Iceland Tour (skst. HIT).
Þá róaðist nú Monty og féllst á að veita stutt viðtal. En fyrst þyrfti hann að fá að klára kókómjólkina sína og snúðinn og var að sjálfsögðu orðið við þeirri ósk. Eftir mikið kjams og stunur yfir málsverðinum, smárop og fret var Monty (M) klár.
R: So Monty, you seem to like our traditional food ?
M: Im just loving it like it says in the advertisment for MacDonalds. Dont mentioned the burned and boiled sheepheads its so delicious, we dont have it in Scotland so I use the opportunity to have at least a half head when Im come here.
R: Okay about the HIT you are here in same week as The Open is being played in Scotland, any reason for that...I mean you are of course the captain of Ryder team are you not obligated to be there ?
M: Not at all. I have seen all those guys before, played them and beatem. So they are no news to me. If we are gonna beat the Americans, we need alternative players with unorthodoxed swings and shots....players like .
R: .öööö the guys on the HIT ?
M: yeah !...specially guy like the Stardust-guy. Hes imagnative player, using putter for driving and so on. That will be the secret in our glorious victory over the Americans .The big surprise!
Þegar hér var komið við sögu ákvað tíðindamaðurinn að varpa fram klassískri spurningu sem allir útlendingar verða að svara How do you like Iceland en ákvað svo að breyta henni á síðustu stundu svona til að sýna að tíðindamaðurinn væri nú með smá sjálfstæða hugsun væri bara ekki eins og hin lömbin.
R: How to you like Finland ?
M: .oouuugh .,loads of water hazards and trees, not good for my carrier.
R: .so Mr. Montgomerie, thanks for your time and the interview. Anything you want to ad in the end ?
M: Yes, maybe you can help me. As you and everybody knows, I have those little bitty curlies in my hair. On a rainy days on the tour those little tiny curlies tends to roll up vigurously and my hair is totally out of control. So, I have heard that the guys on the HIT are using some strong stuff to control their hair-do. Do you know anything about it ?
R: Oh you mean the silvergel (insk. http://thesilver.is/) which Jon Ari is using for his hair and for absolutely non-slip grip instead of golf-glove .just beware not to touch your Willy with it or you will be glued .
M: Ok I´see .cheers!
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2009 | 11:25
Að loknu meistaramóti.
Tíðindamaður mótaraðarinnar tók saman gengi Haren-Iceland keppanda á meistaramótum klúbbanna. Tommi spilaði hjá GO en aðrir GKJ í Mosfellsbæ. H.Elíasson þurfti frá að hverfa eftir fyrsta spil-dag vegna áríðandi fundar í New York um fallandi álverð í heiminum. Aðrir keppendur héldu haus og kláruðu mótið þrátt fyrir brýn verkefni og miklar annir við að bjarga þjóðarbúinu.
Tom og Jerry voru gríðalega stabílir, Tom á gráa svæðinu alla tímann en Jerry náði að lækka forgjöfina á þriðja degi. Svo virðist sem hinn Tom þ.e. "the real" Tommi hafi líka náð mikilli lækkun á öðrum degi (40 pkt.) á hinum erfiða en jafnframt stórgóða Urriðavelli.
Hinn fallni klúbbmeistari og Halldóra voru meira í því að drulla uppá bak þ.a. skítalyktina lagði yfir Álfsnes.
Tekið var tillit til punkta-leiðréttingar við samantektina.
Tommi | 92 | 83 | 97 | 93 | 365 | högg | |
31 | 40 | 27 | 27 | 125 | pkt | ||
Siggi | 86 | 87 | 87 | 90 | 350 | högg | |
35 | 35 | 36 | 33 | 139 | pkt | ||
Halli | 98 | 95 | 98 | 95 | 386 | högg | |
23 | 29 | 28 | 31 | 111 | pkt | ||
Jón Ari | 83 | 83 | 78 | 80 | 324 | högg | |
35 | 33 | 38 | 35 | 141 | pkt | ||
Haukur | 86 | 82 | 85 | 85 | 338 | högg | |
28 | 33 | 30 | 30 | 121 | pkt | ||
Heggi | 93 | Forföll | |||||
27 |
Nú bíða menn bara spenntir eftir næsta móti í Haren-Iceland. Verður það kannski höggleikur með forgjöf...mótastjóri ?
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.7.2009 | 10:22
Viðtalið: Jón Ari
Tíðindamaður mótaraðarinnar hitti einn mesta höfðingja mótaraðarinnar, Jón Ara, á Café París við Austurvöll á fallegu sumarkvöldi. Jón Ari var mættur á kaffihúsið, íklæddur leðurstuttbuxum með smekk og með grænan Týróla-hatt sem í var brún arnarfjöður.
T: Bleeeessaður, menn eru bara alldeilis í dressinu ?
JA: Já sæll, þetta er þjóðbúningur Haren-Ems-héraðsins. Ég hef það fyrir sið að kaupa þjóðbúninga allra héraða sem ég kem til og spila golf.
Við pöntum okkur drykki og með því. Jón fær sér eiturgulan kokteil með regnhlíf og ristaðan tommustokk vafðan í bananalaufi en tíðindamaður lætur sér nægja að fá sér Irish-Coffee (sleppti samt kaffinu) og eina auma arabíska karamellu á myntubeði. Allt mjög huggulegt.
T: Það hefur verið eftir því tekið að þú ert hættur að spila með hanska á golfmótaröðinni, einhver sérstök ástæða?
JA: Ja, eins og þú veist þá hef ég verið í trial-hóp fyrir nýja hárgelið hans Loga Geirs, The silver gel. (innsk. T: http://thesilver.is/ ). Svo þegar ég var að laga hárið á mér fyrir einn hringinn í Haren-Iceland þá uppgvötaði ég þvílíkan kontakt á kylfinunni með þessu geli. Þ.a. ég bara prófaði þetta og þetta svínvirkar. Maður verður bara að passa eitt
T: Nú hvað, meira húkk ?
JA: uuu neibb .ef maður þarf að létta á sér í miðjum hring þá verður maður að muna að nota hina hendina annars er maður...
T: . í vondum málum ?
JA: Já verulega . þetta er svo gott hald.
T: Jæja, þú lofaðir mér einni góðri golfsögu
JA: Ég var eitt sinn að veiða fyrir norðan, nánar tiltekið í Laxá í Aðaldal og var í mínu uppáhaldshyl þegar ég fæ svaka töku. Ég berst lengi við og tekst að landa þeim gula eftir 30 mín. viðureign.
T: ?? Þeim GULA ???? Ég bað um golfsögu en ekki veiðisögu, please.
JA: Jabb, þetta er golfsaga.
T: AAAAH, nú skil ég. Þú hefur húkkað í risa Yellow Mellow-driverinn frá Big-Bang golf company frábært!
JA: öööö neibb, þetta tengist sko Global Warming.
T: Global what..?
JA: Sjáðu til. Global Warming hefur breytt strauminum í hafinu þ.a. GOLF-straumurinn fer nú aðra leiðir og þar meðal upp í Laxá í Aðaldal og honum fylgir mikið af Þorski .skilurðu nú .sá guli !!
T: Þetta er svakaleg saga Jón Ari og þú er sannarlega one to Watch á Haren-Iceland. Takk fyrir spjallið. Hvert á annars að halda.
JA: Ætli maður skelli sér ekki í Vínbarinn og panti sér þverröntóttan kokteil með regnhlíf og bulli í nokkrum Fitness-Queen.
T: Gangi þér vel. Ég ætla hinsvegar niður höfn og skella mér í sjóinn, það er fátt meira hressandi á sumarkvöldi í Reykjavík en að taka 2 til 3 hringi í Reykjavíkurhöfn svo fær maður frítt handklæði og frítt far heim .með löggunni.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2009 | 02:14
Viðtalið: Bætaefna-Sigurður.
Tíðindamaður mótaraðarinnar (T) hringdi í einn athyglisverðasta kylfinginn á Haren-Iceland mótaröðinni og fékk hann í smáspjall. Maðurinn gengdur undir ýmsum nöfnum, en gegnir þó helst nöfnunum; Sigurður Vítamín, Siggi mágur, Sigurður majones nú eða bara Stardust (S).
T: Hvað segir kallinn?
S: Kallinn er fínn.
T: Menn hafa tekið eftir sérkennilegri samsetningu á settinu þínu, segðu okkur aðeins frá því.
S: Þetta er nú bara eins og hjá flestum kylfingum, 3 driverar, 4-5 trékylfur, 2 pútterar, 7-járn og 5 fleygjárn.
T: já sæll...þrír driverar og 2 pútterar...segðu okkur aðeins frá því.
S: ööö....sjáðu til ég nota pútterinn í löngu upphafshögginn og...
T: og...driverana ?
S: ....aðallega notaðir í kringum greenin.
T: ????
S: sjáðu til, 9° offsettin nota ég í fringe-inu...9.5° offsettin svona 5-10 mtr frá greeni og....
T: ...Taylor Made-inn með skrúfunum,,,notar þú í...?
S: ...ööö þegar greenið er bakvið hól...
T: jahá...þú ert snillingur! En segðu okkur frá pútternum...upphafshögg?
S: Maður miklu beinni með pútternum heldur nokkuri annari kylfu...3-ball-inn var algjör bylting fyrir mig og örugglega fleiri!
T: ...fleiri?
S: já, ég var upp í Básum um daginn að æfa drive-inn...með pútternum og á sama tíma var Ragga Sig með hóp af eldri borgurum, byrjendum við hliðina....og ekki gekk það vel, þ.a. hún skrapp í kaffi. Á meðan tóku gamlingjarnir að fylgjast með kallinum flengja bolta 250+,,,,með pútternum.
T: ...og?
S: Nú þegar Ragga kom tilbaka stóðu 10 ellilífeyrisþegar neglandi boltann af tí-i...með pútter...strikbeint!
T: og hvað svo?
S: Mér var hent lóðbeint út og sagt að koma aldrei aftur...."VERTU ÚTI!"...svo ég hermi það nákvæmlega.
T: Þetta svakaleg saga Sigurður og þú ert sannarlega "one to watch" á Haren-Iceland. Þakka þér kærlega fyrir spjallið þetta var mjög áhugavert og gangi þér allt í haginn.
S: Ókey...
T: Bæ Bæ
S: Bæ
T: Ókey
S: Ókey..bæ bæ.
...sónn bíbar...
Íþróttir | Breytt 9.7.2009 kl. 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 25
- Sl. sólarhring: 25
- Sl. viku: 55
- Frá upphafi: 68508
Annað
- Innlit í dag: 17
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 14
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar