Færsluflokkur: Íþróttir

Kalt á toppnum!

Þriðja mót í Haren-Iceland mótaröðinni 2009 fór fram í kvöld.  Raðað var saman í lið eftir stöðu þar sem 1 og 6 sæti, 2 og 5 sæti, 3-4 sæti spiluðu saman og leikformið var betra punktaskor á holu og spilaðar 14 holur. Spennan var gífurleg um 1. til 2. sæti þar sem Sigurður Vítamín þurfti að setja 4m pútt í fyrir sigri.  Það endaði 4cm frá og því þurfti að fara í bráðabana þar sem Tommi reddaði góðu pari fyrir sigri. Loka staðan er eftirfarandi:

Jón A og Tommi 33 punktar (sigur eftir bráðabana) og þeir fá 6 stig á mann

Sigurður Vítamín og Halli 33 punktar og 4 stig á mann

Heggi og Haukur 26 punktar og 2 stig á mann

Heildar staðan er því eftirfarandi :

Jón Ari 14 stig, Heggi 14 stig, Tommi 11,5, Halli og Siggi 11, og klúbbmeistarinn rekur lestina með 4,5 stig. 

 


Haren-Iceland, úrslit eftir mót 2

H. Elíasson kom sá og sigraði örugglega í öðru móti á 37 punktum og fær aftur 6 stig.  Hann átti góða möguleika á að gera mun betur því hann var kominn með 30 punkta eftir 12 holur.  Frábært skor samt. Önnur úrslit:

Jón Ari 32 punktar og 5 stig

Tommi 31 punktur og 4 stig

Halli 28 punktar og 3 stig

Siggi Vítamín 24 punktar og 2 stig

Haukur Braga 22 puntkar og 1 stig

Heildar staðan er eftirfarandi:

Heggi 12 stig,  Jón Ari 8 stig, Siggi 7 stig, Halli 7 stig, Tommi 5,5 stig og Haukur 2,5 stig


Haren-Iceland 2009, mót 2

Það eru allir þátttakendur skráðir til leiks í Odda mótinu í Grafarholtinu á morgun og mun mótið gilda í stigakeppni Haren-Iceland 2009. Úrslit verða birt annað kvöld.


Haren-Iceland, Mót 1

Þá er mótaröðin komin af stað.  Við spiluðum 14 holur á heimavelli flestra á Hlíðarvelli í Mosó.  Veðrið mjög gott en smá vindur setti boga í nokkra bolta.  Skorið var frekar dapurt hjá flestum en kannski þokkalegt miðað við að tímabilið er að hefjast.  Staðan eftir 1. mót

Heggi 6 stig

Siggi 5 stig

Halli 4 stig

Jón 3 stig

Haukur 1,5 stig

Tommi 1,5 stig

Nákvæmari staða er síðan í viðhengi.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Pixies

Eftir að Rás 2 var með Doolittle sem LP plötu vikunar um daginn hef ég dustað rykið af öllum skífunum sem ég átti með þessari stórgóðu hljómsveit.  Í lagalista hef ég sett brot af því besta að mínu mati.  Að sjálfsögðu held ég ennþá inni í lagalista Traustum vini með okkur Þórormi:)

Haren-Iceland 2009

Þá er að skella á með golfsumari og við félagarnir ætlum að taka þátt í mótaröðinni um Haren jakkan sem að þessu sinni heitir Haren-Iceland 2009.  Það er verið að leggja drög af fyrstu keppni og mótaskráin er að er að myndast. Hér eru fyrstu drög að skipulagi (sjá skrá).

Stigagjöf er eftirfarandi:

Fyrsta sæti  í punktaleik eða höggleik 6 stig, annað 5 og síðan koll af kolli niður í eitt stig fyrir 6. sæti.  Ef ekki næst full mæting er sama stigagjöf fyrir efstu sæti (6-5-4.....)og núll fyrir þá sem ekki mæta.

Fyrir texas eða greensome eru 6 stig fyrir þá tvo í fyrsta sæti 4 stig fyrir annað sæti og 2 stig fyrir þriðja sæti.

Það er eftir að taka ákvörðun um hversu margar bestu keppnirnar gilda í heildar skori en það verður ákvarðað fljótlega.

kv. Formaður mótanefndar.

 

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Nýr hittari

Félagsskapur okkar æskufélaga Þórormur var sendur í hljóðver á Ólafsfirði í byrjun janúar.  Þar tókum við lagið Traustur vinur með glæsibrag og nú getur umheimurinn fengið að njóta lagsins. Það er geymt í lagalista hér til hliðar.

Haren 2009 ???

Það er verið að skoða golfferð þetta árið og ef það verður farið kemur Haren sterklega til greina.  Þetta er videomynd sem ég fann á netinu af einhverjum gúbbum:) og aðallega sett til að minna mína menn á hvernig þetta er. Heima er best:) Það vantar samt alveg kynningu á 1. teig, eins og Haukur Digger Bragason tók að sér með mikilli snilld 2006. 

http://www.jumpcut.com/view/?id=7C27EDA6819911DDADED000423CF4092

 Fyrir ykkur hin sem hafa áhuga á golfi erlendis mæli með að þið skoðið þýskaland ef þið viljið spara aðeins í kreppunni. 


Monty Python á eftir Hallahipp "wanted dead or alive"

Höfuðpaurar Monty Python hafa sett á laggirnar eigin rás á YouTube myndskeiðsvefnum, og bjóða þeir þar upp á úrval margra frægustu gamanatriða þeirra, áhorfendum að kostnaðarlausu.

Í tilkynningu félaganna í Monty Python kemur fram að þeir hafi „viljað ná sér niðr'á“ þeim sem hafi með ólöglegum hætti halað niður gamanatriðum þeirra á YouTube-vefinn með því að taka málin í sínar hendur.

„Við vitum hverjir þið eruð, við vitum hvar þið búið og við munum elta ykkur uppi með þeim hætti að það eru eiginlega of hroðalegt til að lýsa,“ segja þeir léttúðlega í tilkynningunni þar sem þeir kynna rásina til sögunnar.

En þar sem þeir séu einstaklega góðir gæjar, þá hafi þeir dottið niður á betri leið til að hefna sín: „Við höfum sett á laggirnar okkar eigin Monty Python rás á YouTube,“ segir þar og: „Ekki meira af þessum draslgæða myndskeiðum sem þið hafi verið að senda. Við látum ykkur í té það sem er ekta - hágæðamyndskeið beint úr okkar fórum.“


http://www.youtube.com/results?search_query=monty+python+channel&search_type=&aq=0&oq=monty+python+chann

 

 


mbl.is Monty Python með rás á Youtube
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-6-b
  • 2025-6-a
  • 2025-boltar
  • 2025-5-b
  • 2025-5-a
  • 2025-4-B
  • 2025-4-A
  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 25
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband