12. Mót. -Leiran 22. júlí, RISAMÓT-

 

Það voru 11 snillingar mættir í Leiruna í gærkvöldi þegar þriðja risamót HOS fór fram. Mjög vel viðraði á spilarana, hægviðri og hlýtt...frekar óvenjulegar aðstæður í Leirunni þetta kvöldið. Völlurinnn í toppstandi og flatirnar mjög góðar. Ekkert var því til fyrirstöðu að skila inn góðu skori nema mögulega að upp tæki sig sjank-, topp-, feitt-, slæs- og húkk- högg. Og það var einmitt það sem einhverjir fengu að reyna, en allavegana var ekki hægt að kenna aðstæðum um.

Sigurvegari þetta kvöldið var H.Bragason sem skilaði honum fyrsta RISA-titlinum síðan þau voru sett á laggirnar. Skor hans á fyrri hring var með besta móti en flestir leikmenn skiluðu betri fyrri hring en seinni...nema sumir. En eins og alltaf er betra að skila inn góðum seinni hring þegar kemur að skrifstofubráðabönum sem voru allmargir þetta kvöldið.

Saga kvöldisins var þó saga Ingvars og leitin að týndu peysunni. Ingvar var fótgönguliði í holli vélaherdeildarinnar sem taldi Binna og Ragga. Þeir sem á eftir komu sáu þó Ingvar oftar á bílnum, þeytast vítt og breytt um völlin í leit að forláta peysu sem hann hafði tapað. Reiknast mönnum til að Ingvar hafi farið völlinn þrisvar sinnum. Peysan fannst að lokum eftir að keppni lauk þegar Ingvar sá prestinnn á Útskálum í peysunni við golfleik á fyrstu braut. Eftir þrjár Maríubænir og loforð um áheit á kirkjuna féllst presturinn á að skila Ingvari peysunni.

Nú hafa fyrstu menn lokið 11 mótum. Jói er sestur á toppinn og hefur sett fyrsta viðmiðið, 570 stig. Það eru ca. 6 mót eftir og þar af a.m.k. eitt risamót sem að er að sjálfsögðu FRAM-OPEN, föstudaginn 9.ágúst. Menn eru hvattir til að skrá sig í það.

 

    

Úrslit kvöldsins:

SætiNafnPkt.B.banar
1Haukur36 
2Hergeir359
3Ragnar L35 
4Halli329
5Viktor32 
6Jói30 
7Sig.Egill299
8Ingvar296
9Tommi29 
10Binni24 
11Eggert22 

 

STAÐAN:

SætiNafn6.mai13.mai20.mai27.mai3.jún10.jún17.jún24.jún1.júl8.júl15.júl22.júlSamtals
1Jói50 42525460646048443660570
2Hergeir48465472444662  465072540
3Tóti40 485838506650606048 518
4Viktor344450425036464254 5462514
5Eggert36 36544048544650504050504
6Halli60544650364452 38 4464488
7Tommi54504462 5458  543454464
8Haukur38606064 4072   3880452
9Sig.Egill44483248 42 80 36 4258430
10Ragnar L.30 3456   5446484666380
11Ingvar  408060 48   3256316
12Haffi32   34385644 4230 276
13Jón Ari46  6646  4844   250
14Tryggvi   4032 60  4060 232
15Óli42   48   42   132
16Hanna 423044        116
17Jónas El   60  50     110
18Binni        40  5292
19Reynir  28 42       70
20Ingólfur   46        46
21Írunn  38         38

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband