25.5.2022 | 13:46
4. mót - Mosó, 23. maí -
Það voru 8 glæsimenni mætt í 4. mót ársins. Aðstæður voru frábærar, hægviðri og völlurinn í toppstandi.
Flestir voru að spila ágætisgolf og skila inn fínu skori. Talsverð spenna var á 19ándu holu þegar skorið var úr um sætaröðun og nokkrir stórskemmtilegir bráðabanar leiknir.
Það þurfti þó ekki að skera úr neinu með sigurvegara mótsins, Viktor, sem kom sá og sigraði á flottum 36 pkt. Kappinn var afar stabíll í öllum sínum aðgerðum.
Þessi sigur fleytti Viktori alla leið á toppinn í stigatöflunni.
Það stefnir í spennandi sumar. Miklar sviptingar eiga sér stað eftir hvert mót og er taflan afar þétt.
Líklega mun Mótstjórinn skella í RISA-mót næst og því til mikils að vinna þegar stigafjöldinn tvöfaldast...en þó ekki mætingarstiginn góðu, þau verða áfram einföld .
ÚRSLIT:
Sæti | Nafn | Punktar | Bráðabanar | Verðlauna-stig | Mætingar-stig | Samtals |
1 | Viktor | 36 | 5 | 1 | 6 | |
2 | Jói | 35 | 18 p. seinni 9 | 3 | 1 | 4 |
3 | Tóti | 35 | 17 p. seinni 9 | 2 | 1 | 3 |
4 | Haukur | 34 | 1 | 1 | 2 | |
5 | Tommi | 32 | 16 p. seinni 9 | 1 | 1 | |
6 | Sig.Egill | 32 | 15 p. seinni 9 | 1 | 1 | |
7 | Eggert | 27 | 1 | 1 | ||
8 | Ingvar | 23 | 1 | 1 |
STAÐAN:
Sæti | Nafn | Stig |
1-2 | Haukur | 11 |
1-2 | Viktor | 11 |
3-4 | Halli | 9 |
3-4 | Jói | 9 |
5-7 | Hergeir | 8 |
5-7 | Haffi | 8 |
5-7 | Tóti | 8 |
8 | Sig.Egill | 5 |
9 | Ingvar | 4 |
10 | Eggert | 3 |
11-12 | Gauti | 2 |
11-12 | Tommi | 2 |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 25. maí 2022
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.5.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 67584
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar