28.7.2021 | 10:05
13. mót. -Akranes 26. júlí - RISAmót-
Skipaskagi var vettvangur RISAmóts FRAM-mótaraðarinnar s.l. mánudag. Veðrið var þokkalegt svona m.v. sem hefði geta verið miðað við veðurspár. Þokkalega kyrrt og ein til tvær regndembur sem tóku frekar fljótt af. Völlurinn hefur verið í betra formi. Rennblautur á stórum köflum og til að bæta gráu ofan á svart var nýbúið að gata/rasta flatirnar. Fyrir vikið voru flatirnar hægar og héldu illa línu. En svona er þetta bara, það þarf einhvern tímann að sinna viðhaldi á þessu. Völlurinn verður sjálfsagt frábær eftir ca. viku.
Ellefu leikmenn létu sjá sig og þar af tveir góðir gestir sem heiðruðu FRAM-mótaröðina með nærveru sinni. Gamli tarfurinn, sleggjan og góðkunningi mótaraðarinnar; Binni Stef. var mættur í fyrsta skiptið þetta sumarið og svo hinn snjalli miðvörður gullaldarliðs FRAM og Verzlunarskólagengni snillingur, Viðar Þorkelsson.
Hvort það var nærvera miðvarðarins snjalla eða einfaldlega snilli TT þá fór það nú svo að TT setti í 40 pkt. sem tryggðu honum glæsilegan sigur á RISA-mótinu. Tryggvi hefur greinilega ekki sagt sitt síðasta í titilvörninni og þokast nú hægt og rólega upp töfluna.
Annars voru flestir að skila inn fínu skori og venju samkvæmt tapaði Viktor skrifstofubráðabana á 19ándu holu. Hvernig er það annars ? Starfar maðurinn ekki sem Skrifstofustjóri ? Hann hlýtur að fara að ráða fram úr þessu.
Staðan hefur nú breyst. Á toppinn er sestur efnilegur leikmaður sem hefur marga fjöruna sopið í leið sinni þangað. Hvað það heldur lengi er ekki gott að spá um. Fyrstu menn eru byrjaðir að taka til í skorinu og henda út vonbrigðum sumarsins.
Stöðutaflan tekur nú mið af 11 bestu hringjunum og nú fara hlutirnir að gerast. Taflan fer að þéttast og tækifæri hjá mörgum að hækka sig verulega. Tíðindamaður spáir því að "definding Champion" TT, hafi ekki sagt sitt í síðasta og sé hættur við að setja JAKKANN í hreinsun...hann ætlar sér að halda í hann þar sem COVID-ástandið hefur versnað. Sér hann fram á talsverð ferðalög innanlands næstu misserin. Þá er ekkert flottara en að geta skartað grænköflóttum ullarblönduðum jakka með olnbogabótum í viðræðum við bændur og búalið um landsins gagn og nauðsynjar.
ÚRSLIT:
Sæti | Nafn | Pkt. | Bráðabanar |
1 | Tryggvi | 40 | |
2 | Hergeir | 37 | 19 p. á seinni 9 |
3 | Viktor | 37 | 16 p. á seinni 9 |
4 | Jói | 36 | |
5 | Halli | 35 | |
6 | Haffi | 34 | 18 p. á seinni 9 |
7 | Haukur | 34 | 5 p. á síðustu 2 |
8 | Binni | 34 | 4 p. á síðustu 2 |
9 | Sig.Egill | 33 | |
10 | Hanna | 25 | 11 p. á seinni 9 |
11 | Viðar | 25 | 10 p. á seinni 9 |
STAÐAN:
Sæti | Nafn | 3.mai | 10.mai | 17.mai | 24.mai | 31.mai | 7.jún | 14.jún | 21.jún | 28.jún | 5.júl | 12.júl | 19.júl | 26.júl | Samtals | 11 bestu |
1 | Haukur | 54 | 44 | 44 | 80 | 54 | 38 | 80 | 38 | 34 | 50 | 44 | 58 | 618 | 584 | |
2 | Gauti | 60 | 54 | 50 | 48 | 58 | 50 | 54 | 62 | 42 | 48 | 46 | 572 | 572 | ||
3 | Tóti | 50 | 60 | 60 | 60 | 46 | 34 | 60 | 50 | 50 | 44 | 48 | 562 | 562 | ||
4 | Jói | 36 | 34 | 48 | 50 | 66 | 64 | 44 | 26 | 48 | 40 | 64 | 520 | 520 | ||
5 | Hergeir | 32 | 42 | 36 | 36 | 54 | 38 | 30 | 60 | 54 | 46 | 42 | 72 | 542 | 512 | |
6 | Tommi | 40 | 28 | 54 | 46 | 56 | 44 | 36 | 72 | 30 | 44 | 54 | 504 | 504 | ||
7 | Viktor | 38 | 32 | 44 | 54 | 50 | 36 | 40 | 58 | 32 | 42 | 38 | 66 | 530 | 498 | |
8 | Eggert | 46 | 50 | 46 | 26 | 52 | 40 | 44 | 32 | 46 | 40 | 60 | 482 | 482 | ||
9 | Tryggvi | 44 | 36 | 34 | 32 | 72 | 28 | 60 | 50 | 80 | 436 | 436 | ||||
10 | Halli | 42 | 40 | 42 | 48 | 60 | 42 | 54 | 38 | 62 | 428 | 428 | ||||
11 | Jón Ari | 48 | 48 | 38 | 28 | 64 | 60 | 48 | 40 | 374 | 374 | |||||
12 | Sig.Egill | 30 | 46 | 42 | 40 | 48 | 50 | 46 | 54 | 356 | 356 | |||||
13 | Hanna | 38 | 62 | 46 | 66 | 40 | 42 | 52 | 346 | 346 | ||||||
14 | Haffi | 38 | 30 | 34 | 32 | 34 | 36 | 54 | 60 | 318 | 318 | |||||
15 | Ingvar | 34 | 34 | 46 | 28 | 30 | 36 | 208 | 208 | |||||||
16 | Beggi | 60 | 42 | 26 | 128 | 128 | ||||||||||
17 | Reynir | 36 | 60 | 96 | 96 | |||||||||||
18 | Binni | 56 | 56 | 56 | ||||||||||||
19 | Viðar | 50 | 50 | 50 | ||||||||||||
20 | Valli | 48 | 48 | 48 | ||||||||||||
21 | Írunn | 40 | 40 | 40 | ||||||||||||
22 | Ólafur | 30 | 30 | 30 |
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.