Færsluflokkur: Íþróttir
31.5.2022 | 20:28
5. mót - Mosó, 30. maí - - RISAMÓT -
Mr. Wilson þ.e. Harald Wilson eigandi lífstílsbloggsins og glanstímaritsins hallihipp.blog fannst kominn tími til að færa út kvíarnar. Þar sem vaxandi ólga er í heiminum ákvað eigandinn að senda Tíðindamanninn út í heim til að fjalla um stríðið í Úkraníu eða stríðið í Sýrlandi. Þar sem hann gat ekki ákveðið hvort stríðið skyldi valið þá sendi hann Tíðindamanninn, núna Stríðsfréttaritari, á afskekta eyju í Miðjarðarhafi þar sem hann skyldi bíða, frekari fyrirskipina um hvert halda skyldi í leit að stríðsfréttum. Það er ekki tekið út með sældinni að vera fréttasnápur á svona öflugum og metnaðarfullum miðli eins og hallihipp.blog.
Á meðan stríðsfréttaritarinn situr og bíður, sveittur á illa loftræstu hótelherbergi vopnaður Remington ritvél og handsnúnu ferða-Telextæki þá var leikið fyrsta RISA-mót ársins á FRAM-mótaröðinni.
Aðstæður voru ákjósanlegar, kyrrviðri og hvorki of heitt né of kalt. Semsagt kjöraðstæður til að leika gott golf og skora vel. Það var líka talsvert í húfi, tvöföld stig og gott tækifæri að koma sér vel fyrir á stöðutöflunni. Það kom líka á daginn að það þurfti að leika vel fyrir ofan gamla gráa svæðið til að komast í toppsætin þrjú. Tóti og Viktor voru menn kvöldisins og settu báðir i risaskor. Einn punktur skar á milli og Tóti hirti gullið. Þetta hendir kappanum úr 7. sæti og alla leið upp í það fyrsta. Glæsilega gert Tóti.
Risamótið gerir það að verkum að Tóti og Viktor hafa slitið sig frá restinni í bili a.m.k. Nú gildir fyrir aðra að slá i klárinn, mæta og gera vel til að skáka þessum snillingum.
ÚRSLIT:
Sæti | Nafn | Punktar | Bráðabanar | Verðlauna-stig | Mætingar-stig | Samtals |
1 | Tóti | 41 | 10 | 1 | 11 | |
2 | Viktor | 40 | 6 | 1 | 7 | |
3 | Tommi | 38 | 4 | 1 | 5 | |
4 | Jón Ari | 35 | 2 | 1 | 3 | |
5 | Halli | 34 | 19 p. á seinni 9 | 1 | 1 | |
6 | Hergeir | 34 | 17 p. á seinni 9 | 1 | 1 | |
7 | Haffi | 32 | 1 | 1 | ||
8 | Gauti | 28 | 1 | 1 | ||
9 | Jói | 27 | 15 p. á seinni 9 | 1 | 1 | |
10 | Eggert | 27 | 12 p. á seinni 9 | 1 | 1 |
STAÐAN:
Sæti | Nafn | Stig |
1 | Tóti | 19 |
2 | Viktor | 18 |
3 | Haukur | 11 |
4-5 | Halli | 10 |
4-5 | Jói | 10 |
6-7 | Hergeir | 9 |
6-7 | Haffi | 9 |
8 | Tommi | 7 |
9 | Sig.Egill | 5 |
10-11 | Ingvar | 4 |
10-11 | Eggert | 4 |
12-13 | Gauti | 3 |
12-13 | Jón Ari | 3 |
Íþróttir | Breytt 13.6.2022 kl. 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2022 | 13:46
4. mót - Mosó, 23. maí -
Það voru 8 glæsimenni mætt í 4. mót ársins. Aðstæður voru frábærar, hægviðri og völlurinn í toppstandi.
Flestir voru að spila ágætisgolf og skila inn fínu skori. Talsverð spenna var á 19ándu holu þegar skorið var úr um sætaröðun og nokkrir stórskemmtilegir bráðabanar leiknir.
Það þurfti þó ekki að skera úr neinu með sigurvegara mótsins, Viktor, sem kom sá og sigraði á flottum 36 pkt. Kappinn var afar stabíll í öllum sínum aðgerðum.
Þessi sigur fleytti Viktori alla leið á toppinn í stigatöflunni.
Það stefnir í spennandi sumar. Miklar sviptingar eiga sér stað eftir hvert mót og er taflan afar þétt.
Líklega mun Mótstjórinn skella í RISA-mót næst og því til mikils að vinna þegar stigafjöldinn tvöfaldast...en þó ekki mætingarstiginn góðu, þau verða áfram einföld .
ÚRSLIT:
Sæti | Nafn | Punktar | Bráðabanar | Verðlauna-stig | Mætingar-stig | Samtals |
1 | Viktor | 36 | 5 | 1 | 6 | |
2 | Jói | 35 | 18 p. seinni 9 | 3 | 1 | 4 |
3 | Tóti | 35 | 17 p. seinni 9 | 2 | 1 | 3 |
4 | Haukur | 34 | 1 | 1 | 2 | |
5 | Tommi | 32 | 16 p. seinni 9 | 1 | 1 | |
6 | Sig.Egill | 32 | 15 p. seinni 9 | 1 | 1 | |
7 | Eggert | 27 | 1 | 1 | ||
8 | Ingvar | 23 | 1 | 1 |
STAÐAN:
Sæti | Nafn | Stig |
1-2 | Haukur | 11 |
1-2 | Viktor | 11 |
3-4 | Halli | 9 |
3-4 | Jói | 9 |
5-7 | Hergeir | 8 |
5-7 | Haffi | 8 |
5-7 | Tóti | 8 |
8 | Sig.Egill | 5 |
9 | Ingvar | 4 |
10 | Eggert | 3 |
11-12 | Gauti | 2 |
11-12 | Tommi | 2 |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2022 | 12:47
3. mót - Mosó, 16. maí -
Sumarið heilsaði loksins leikmönnum FRAM-mótaraðarinnar þetta mánudagskvöldið. Sól, hlýtt og talsverður austanvindur, sannkallað strandvallarveður. Völlurinn í fínu standi, flatir og brautir að þorna og harðna.
12 mættir; 11 leikmenn mótaraðarinnar og einn gestur. Skor leikmanna var almennt á lægra rófinu en einum tókst þó að sigra aðstæðurnar og var það enginn annar er en ástkær mótastjóri vor, Halli túkall. Halli Hizbolla, eins og JAÓ kallar meistarann, átti afbragðsdag á vellinum og skilaði inn 36 pkt. sem allir gætu verið ánægðir með við hvaða aðstæður sem er. Samkvæmt heimildum Tíðindamanns var það fyrst og fremst leikni kappanns á flötunum sem skóp þetta skor. Haraldur býr við einstakar aðstæður í dagvinnu sinni þar sem 30 mtr teppalagður gangur er fyrir utan skrifstofuna. Hefur heyrst að kappinn hafi skroppið óvenju oft í kaffi og vindil s.l. vetur og ekki skilað sér tilbaka í stólinn fyrr en 2-3 klst síðar, og allar rafmagnsteikningar í rugli en púttstrokan góð.
Staðan í mótinu er gríðarlega spennandi niður alla töfluna og eins gott að ekki komist vírus í sérsmíðaða tölvuforritið sem heldur utan um stöðuna.
Brátt líður að fyrsta RISA-móti sumarsins og spennandi að sjá hverju mótstjórinn stingur uppá.
ÚRSLIT:
Sæti | Nafn | Punktar | Bráðabanar | Verðlauna-stig | Mætingar-stig | Samtals |
1 | Halli | 36 | 5 | 1 | 6 | |
2 | Viktor | 32 | 3 | 1 | 4 | |
3 | Ingvar | 31 | 12 p. síðustu 6 | 2 | 1 | 3 |
4 | Haukur | 31 | 9 p. síðustu 6 | 1 | 1 | 2 |
5 | Tommi | 31 | 16 p. seinni 9 | 1 | 1 | |
6 | Jói | 30 | 1 | 1 | ||
7 | Sig.Egill | 27 | 1 | 1 | ||
8 | Gauti | 26 | 17 p. seinni 9 | 1 | 1 | |
9 | Haffi | 26 | 16 p. seinni 9 | 1 | 1 | |
10 | Hergeir | 24 | 1 | 1 | ||
11 | Tóti | 19 | 1 | 1 |
STAÐAN:
Sæti | Nafn | Stig |
1-2 | Haukur | 9 |
1-2 | Halli | 9 |
3-4 | Hergeir | 8 |
3-4 | Haffi | 8 |
5-7 | Tóti | 5 |
5-7 | Jói | 5 |
5-7 | Viktor | 5 |
8 | Sig.Egill | 4 |
9 | Ingvar | 3 |
10-11 | Eggert | 2 |
10-11 | Gauti | 2 |
12 | Tommi | 1 |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.5.2022 | 10:12
2. mót - Mosó, 9. maí -
Það voru 8 mættir í annað mót ársins sem fór fram á Hlíðavelli í Mosó. Veðrið var geggjað á fyrri 9 holunum, sól, kyrrt og hlýtt. Svo fór hann að kólna og blása aðeins á seinni 9.
Skor manna var í takt við vorkomuna, aðeins betra en í fyrsta mótinu.
Sigurvegari kvöldsins var enginn annar en stórsöngvarinn og annar af Man City mönnum hópisins, Haffi frændi. Kappinn spilaði feiknagott golf og sló ekki feilnótu og pitsaði á hárréttum augnablikum eins og í söngnum. Haffi fór fremstur manna í hóp manna sem kallaði eftir aukastigi fyrir mætingu í fyrsta móti sumarsins. Það eru margir sem eru þakklátir fyrir það stig í dag. Ekkert betra en að koma inn í hlýjuna á 19ándu holu eftir erfiðan dag á vellinum, vitandi að stig sé höfn eftir alla fyrirhöfnina.
Staðan er skemmtileg. Tíðindamaður fær ekki betur séð en nýja Monrad-kerfið sé að svínvirka. Allt hnífjafnt niður alla töfluna. Þetta veit á spennandi sumar þar sem hraðar sviptingar gætu átt sér stað og jafnvel mætingin gæti ráðið úrslitum.
ÚRSLIT.
Sæti | Nafn | Punktar | Bráðabanar | Verðlauna-stig | Mætingar-stig | Samtals |
1 | Haffi | 39 | 5 | 1 | 6 | |
2 | Jói | 38 | 3 | 1 | 4 | |
3 | Haukur | 36 | 2 | 1 | 3 | |
4 | Siggi | 33 | 1 | 1 | 2 | |
5 | Hergeir | 28 | 16 p. seinni 9 | 1 | 1 | |
6 | Eggert | 28 | 14 p. seinni 9 | 1 | 1 | |
7 | Halli | 26 | 1 | 1 | ||
8 | Tóti | 24 | 1 | 1 |
STAÐAN:
Sæti | Nafn | Stig |
1-3 | Hergeir | 7 |
1-3 | Haukur | 7 |
1-3 | Haffi | 7 |
4-5 | Tóti | 4 |
4-5 | Jói | 4 |
6-7 | Halli | 3 |
6-7 | Sig.Egill | 3 |
8 | Eggert | 2 |
9 | Viktor | 1 |
10 | Gauti | 1 |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2022 | 20:29
1. mót - Mosó, 2. maí -
Hann heilsaði með heimskautalofti og stífum vind þegar leimenn FRAM-mótaraðarinnar valhoppuðu inn í fyrsta mót sumarsins. Níu toppleikmenn mættir í fyrsta mót og það var spenningur í loftinu auk kuldans. Tími síðu nærbuxnanna er klárlega ekki liðinn.
Allir komu þeir aftur eins og segir í kvæðinu og 9 leikmenn skiluðu sér á 19ándu holuna eftir tæplega 4 klst. hressandi útiveru. Við tók spennandi punktaútreikningur og fjörlegar umræður um komandi golfsumar. Ekki allir sáttir við nýtt stigafyrirkomulag og fleira skemmtilegt. Samt ekkert sem harðsnúin mótanefnd gat ekki leyst úr á staðnum og allir sáttir heim að sofa.
Fyrsti sigurvegari sumarsins var gamalkunnugur og margfaldur sigurvegari á mótaröðinni; kartöflubóndinn H.Elíasson frá Safamýri í Skagafirði. Kom hann inná allgóðu skori m.v. aðstæður og tryggði sér stiginn 5 sem urðu svo 6 um nóttina eftir að mótanefnd hafði setið á rökstólum um hvort bæta eigi einu stigi við vegna mætingar. Var það talið sanngjörn krafa og samþykkt samhljóða.
Annars var það af mótinu sjálfu að frétta að Sig.Egill mætti með spánýjar græjur til leiks utan kerrunnar. Mögulega hefði hann átt að fjárfesta kannski frekar þar en í nýjum kylfum þar sem kerran þoldi illa vindsperringin og valt um alla trissur með nýja settið. Heyrðist talan 30 veltur á hringnum sem er nú talsvert. Sigurður á góða smiðjukalla að í Álverinu og er nú verið að smíða veltibúr, úr áli að sjálfsögðu, á gripinn. Verður fróðlegt að sjá smíðina á næsta mánudag.
ÚRSLIT:
Sæti | Nafn | Punktar | Bráðabanar | Verðlauna-stig | Mætingar-stig | Samtals |
1 | Hergeir | 32 | 5 | 1 | 6 | |
2 | Haukur | 31 | 3 | 1 | 4 | |
3 | Tóti | 30 | 2 | 1 | 3 | |
4 | Halli | 27 | 1 | 1 | 2 | |
5 | Sig.Egill | 26 | 1 | 1 | ||
6 | Viktor | 25 | 1 | 1 | ||
7 | Eggert | 24 | 1 | 1 | ||
8 | Gauti | 21 | 1 | 1 | ||
9 | Haffi | 20 | 1 | 1 |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.5.2022 | 11:08
FRAM-mótaröðin 2022
Þá er komið að því enn eitt árið, FRAM-mótaröðin hefst í kvöld. Þessi árvissi atburður er einn helsti vorboðinn á landinu bláa. Þegar glæsilegir fulltrúar mótaraðarinnar sjást spóka sig á Hlíðavelli við Leirvog í fuglasöngnum þá þýðir það bara eitt eitt í huga þjóðarinnar...sumarið er komið .
Ákveðið hefur verið að gera breytingar á stigagjöf mótaraðarinnar og verður hún með eftirfarandi hætti:
1. Öll mót telja.
2. Fjögur efstu hverju sinni hljóta stigin sem eru í boði.
3. Mæting gefur 1 stig.
4. Stigagjöfin er einföld og er eftirfarandi:
Stigagjöf | ||
Sæti | Mánudagsmót | Risamót |
1 | 5 | 10 |
2 | 3 | 6 |
3 | 2 | 4 |
4 | 1 | 2 |
Lokamótið verður svo að öllum líkindum 3. eða 10. sept.
Tíðindamaðurinn óskar öllum keppendum mikillar velgengni og gleði í golfinu í sumar.
FRAM-mótaröðin 2022 er sett !
Íþróttir | Breytt 3.5.2022 kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2021 | 15:20
Úrslitin Las Colinas 2021
Allt tekur enda og hversdagsleikinn tekinn við hjá flestum okkar eftir frábæra viku í golfi á Spáni. Veðrið gott alla daga og 198 holur leiknar á 7 dögum. Það fjölgaði texasleikjum miðað við það sem stefnt var að og margir flottir tveggja manna texas leikir. Þar ber helsta að geta þegar Diggerinn og Málarinn voru saman í liði á Lo Romero og léku á 70 höggum brúttó 64 nettó.
Annar fór svo að lokum að úi liðakeppninni urðu úrslitin óvænt og ungir sem unnu gamla með 13-11. Reikna með að gamlir bjóði ungum út að borða annaðhvort í Reykjavík eða Mulheim.
Einstaklingskeppnin varð aldrei spennandi en það fór þannig að Big Easy vann örugglega.
Þess má geta að síðasta daginn þegar allar keppnir voru búnar þá small JB í gang og spilaði á 41 punkti og samanlagt 50 í betri bolta með málaranum í liði.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2021 | 10:03
Las Colinas - leikmannakynning - mjög mjög aldraðir
Þá er komið að síðastu leikmannakynningunni en sá mikli meistari kemur úr röðum aldraðra og þeirra lið því fullmótað. Orðið stöðugleiki hlaut nýja merkingu þegar þessi leikmaður byrjaði að spila golf. Aldraðir geta klárlega treyst á þennan og vita hvað þeir fá frá honum. Kemur sér einnig vel þegar nokkur Richter slög eru í mannskapnum en þar er hann bestur. Það vita jú allir hvern verið er að tala um, hann Hergeir Elíasson.
Við skulum grípa niður í gamla kynningu frá 2012 af þessum meistara.
Leikmaður sem við kynnum númer 2 hjá gömlum er enginn annar en H.Elíasson from Kjölur Mosó. Hergeir eða Heggi eins og hann er oft kallaður er fæddur í Framhverfinu, fljótlega eftir stríð. Hergeir er kominn af miklum ökumannsættum, en móðir hans var kjörinn ökumaður ársins frá árunum 1950 til 1970 af Umferðastofnun Ríkisins. Hergeir hefur komið víða við en hann fluttist til Danmerkur og hóf nám þar. Eftir námið lág leiðin til Píluskins þar sem hann starfaði við að gefa gömlum verkamönnum bjór og gammel á morgnana og í hádeginu. Eftir árangursríkt starf í Danaveldi fór hann í útrás (langt á undan öðrum) til Samúa, Færeyja, Noregs og fleiri góðra staða. Hann komst fljótlega í landslið Samúa í bananaklifri og á nokkur landsmetin þar.
Inni á milli þegar hann er ekki arfavitlaus í garðinum stundar hann golfið. Hergeir er með þeim sterkari á Snuddu Haren mótaröðinni og endaði í 2.sæti þar í sumar. Virkilega stabíll kylfingur og fáir með svona mjúka John Daily sveiflu. Þar verður mikið vænst af honum á Spáni.
Við náðum tali af pilti þar sem hann var í vinnunni út á golfvelli í Mosó að rölta á milli holla og biðja um vinnustaðaskírteini. Fréttaritarinn tók þó eftir að hann var sjálfur með golfsett.
Aldraðir: Keisarinn, Málarinn, Tíðindamaðurinn og Húsasmíðameistarinn
Ungir: Tölvuþrjóturinn, Rafvirkinn, Álfilman og Stuðarinn
- Fullt nafn : Hergeir Elíasson
- Gælunafn : Heggi / Big easy /
- Hæð Passin segir 188cm
- Ungir eða gamlir : Gamlir
- Áhugamál : Golf, skíði, aðrar íþróttir og barnabörnin
- Lýstu sjálfum þér í nokkrum orðum : Vinur vina minna
- Skemmtileg saga úr þínu lífi : Þegar mér var boðið að verða höfðingi í Vailoa þorpinu á Westen Samoa
- Sturta eða bað : Sturta
- Uppáhaldsfélagslið í ensku : Arsenal
- Uppáhaldsfélagslið á Íslandi : Fram
- Forgjöf 14,2
- Lægsta forgjöf sem þú hefur haft : 10,0
- Besta skor á hring 75 högg á Flúðum og 76 högg á Hlíðavelli (2x9holur)
- Flestir punktar á hring : 49 p
- Vandræðalegasta golfmómentið : Þegar ég misti drævið til vinstri og smallaði framrúðuni á golfbíl í portúgal
- Uppáhaldsgolfvöllur : Barseback golf and country club Svíþjóð
- Tegund járnasett : Ping i3 árgerð 2000 með svötrum punti.
- Tegund driver : Gamli driverin hans Halla, Taylor Made með gráu skafti
- Tegund pútter : Ping Ansker
- Uppáhaldskylfan í pokanum : 7an
- Hefur þú farið holu í höggi : ha
- Hver er hæfileg refsing fyrir tapliðið á hverju degi í Las Colinas : Labba heim á hótel
- Hrýtur þú : Hef ekki orðið var við það
- Hefur þú verið slæmur í baki : Nei aldrei
- Ef já, veistu ástæðuna fyrir því :
- Passar síðasti golfbolur sem þú fékkst í golfferð erlendis : Nei hann hlítur að hafa minkað í þvotti.
- Hvað á að kjósa á laugardaginn : Rétt
- Ertu bólusettur : Jebb AZ maður
- Ertu með innkaupalista frá konunni : Nei keypti bar ferð fyrir hana út.
- Væntingar fyrir Las Colinas 2021 : Vinna og njóta
- Hver verður sigurvegari á Las Colinas : Ég og gamlir ekki spurning
- Hver mun koma mest á óvart : Jónas með nýju kylfurnar (færri vindhögg)
- Annað sem þú vilt kom á framfæri: Njóta, Njóta og Njóta
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2021 | 13:14
Las Colinas 2021 - leikmannakynning - síðasti unglingurinn
Jæja þá er það síðasti unglingurinn sem kynntur er til leiks og því unga liðið fullmótað og líklegt til afreka.
Fann þessa lýsingu á kauða frá í gamla daga og gott að rifja hana bara upp. Lítið breyst enda mjög íhaldssamur maður.
"Síðast en alls ekki síst kynnum við fararstjórann til leiks. Sigurður Egill Vítamín/Mæjó Þorvaldsson er síðasta Snuddan sem kynnt er til leiks. Hann er eins og margir í hópnum uppalinn í Framhverfinu, fyrst á Háaleitisbraut og síðar í Álftamýrinni, þar sem þeir feðgar héldu bestu partýin. Siggi hóf síðar búskap með Röggu sinni í Álftamýrinni og var heimili þeirra alltaf opið fyrir félaganna, og ekki voru veislur þeirra síðri en feðganna.
Siggi er þeim hæfileikum gæddur að hann er góður í öllum íþróttum sem hann kemur nálægt. Margfaldur Íslandsmeistari í handbolta með yngri flokkum Fram, unglingalandsliðsmaður í þeirri grein, spilar enn fótbolta í hæsta gæðaflokki í utandeildinni og í enn meiri gæðum á fimmtudagskvöldum í Álftamýrarskóla. Þá er hann aðaldriffjöðurin í Harlem Globetrotters hópnum sem hittist í körfubolta á þriðjudögum í Árbænum. Ekki lætur Siggi þar við sitja, heldur stundar golfið af miklum krafti, svo miklum að hann er kallaður Torfi í þröngum vinahóp, en grastorfurnar fá sko sannarlega að finna fyrir því þegar Siggi sveiflar og er uppá sitt besta. Siggi er einmitt frægur fyrir virkilega skemmtilegar sveiflur og verður spennandi að sjá hvaða sveiflu hann mætir með til Spánar.
Siggi er mikill félagsmálafrömuður. Hann situr í stjórn handknattleiksdeildar Fram þar sem hann sér um alla heimaleiki félagsins, er í foreldraráði bæði hjá HK og Breiðablik í handbolta, fótbolta og körfu, dansráði hjá djassballetskóla Báru og verður farastjóri með 50 spræka Hkinga í keppnisferð til Svíþjóðar milli jóla og nýárs. Sigurður er fremstur meðal jafningja í foreldrahóp hjá Breiðablik sem kalla sig Grænu flíspeysurnar og hannaði m.a annars slagorðið Ekkert hik Breiðablik. Þá má ekki gleyma hans mikilvæga starfi sem ritara Snuddanna, en það starf tekur líklega mestan tíma af öllu fyrrnefndu og heilt ritsafn sem liggur eftir hann á þeim vettvangi. Þá er hann einnig formaður húsfélagsins Lautasmára 8.
Fyrrgreindu sinnir Siggi af miklum áhuga og eljusemi ásamt því að vera aðalfararstjóri í Snuddu-Haren ferðinni til Spánar, aðstoðarmótastjóri Snuddu-Haren mótaraðarinnar og formaður afhendingar- og afmælisnefndar.
Ál er hans ær og kýr, en hann hefur starfað í álverinu í Straumsvík frá 17 ára aldri er leiðtogi þar, slökkviliðstjóri og formaður skemmtinefndar og starfsmannafélagsins.
Sigurður er líklegur til stórafreka á Spáni og líklegur til að vinna verðlaun fyrir flottustu sveifluna og glæsilegustu dressin. Það er ekki hjá því komist að velta því fyrir sér Er hans tími kominn . Bjóðum fararstjórann og dugnaðarforkinn Sigga sæta velkominn til leiks:"
Ég settist niður með þessum stórfurðulega gaur og tók hann tali:
- Fullt nafn: Vítamínið
- Gælunafn: Skammturinn
- Hæð: Tæpur Hemmi og rúmlega Jón Ari
- Ungir eða gamlir: Langt þangað til ég kemst í gamla liðið
- Áhugamál: Golfferðir og hindrunarhlaup kvenna
- Lýstu sjálfum þér í nokkrum orðum: Ginkeyptur
- Skemmtileg saga úr þínu lífi: Flest allar flugferðir eru skemmtilegar og óvæntar
- Sturta eða bað: Heiti potturinn
- Uppáhaldsfélagslið í ensku: You never walk alone
- Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: Fram og HK
- Forgjöf: 16,2
- Lægsta forgjöf sem þú hefur haft; 12,4
- Besta skor á hring; 77 högg í Öndverðarnesi
- Flestir punktar á hring: 5 punktar á Costa Ballena
- Vandræðalegasta golfmómentið: Þau móment eru nú að nálgast 15.000 talsins en í hvert skipti sem maður nálgast flöt og tekur upp chipper koma þessi móment og er alls ekkert að fækka
- Uppáhaldsgolfvöllur: Thracian Cliff góður á fótinn
- Tegund járnasett: Er í pöntun
- Tegund driver: Nýr G425 Ping driver 9 °
- Tegund pútter: Oddi frændi
- Uppáhaldskylfan í pokanum: Góð spurning
- Hefur þú farið holu í höggi: Geri ekki annað
- Hver er hæfileg refsing fyrir tapliðið á hverju degi í Las Colinas: Drykkur og bolti í rass
- Hrýtur þú: Sagan segir það
- Hefur þú verið slæmur í baki: Aldrei
- Ef já, veistu ástæðuna fyrir því: Ekki hugmynd
- Passar síðasti golfbolur sem þú fékkst í golfferð erlendis: 4 Xum frá því
- Hvað á að kjósa á laugardaginn: Er of seint að kjósa ? Hljóta að opnast dyr í Norðvestur
- Ertu bólusettur: Klárlega
- Ertu með innkaupalista frá konunni: 20 ár síðan síðasti listi kom
- Væntingar fyrir Las Colinas 2021: að þetta verði einhver besta vika sögunnar
- Hver verður sigurvegari á Las Colinas: Lömbin eru líkleg
- Hver mun koma mest á óvart: Leigubílstjórinn
- Annað sem þú vilt kom á framfæri: Já er með spurningu til aldraðra. Eru þið líka með frítt í strætó á Spáni ?
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 13:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 2
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 68451
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar