Færsluflokkur: Íþróttir

2. júlí...Mót nr. 9...Leiran

Það er greinilega HM mánuður þar sem í þriðja skiptið í röð mæta 11 til leiks á HOS-mótaröðina. Og alveg eins og á HM mæta 11 bestu hverju sinni til að berjast um stigin dýrmætu sem leiða menn í áttina að Jakkanum. Í þetta skiptið var leikið á ljómandi góðum Leiru-velli á Suðurnesjum. Völlurinn hafði verið vettvangur Íslandsmóts í holukeppni, degi fyrr, og var í góðu standi þegar HOS-verjar mættu. Flatir voru þó óvenjuhægar m.v. fyrri ár í Leirunni en líklega má þar kenna um vætutíðinni sem hefur herjað á SV-horn landsins.

Það var enginn annar en Þór Björnsson sem kom sá og sigraði í gærkvöldi á fínum 37 pkt. og smá forgjafarlækkun. Þetta var annar sigur Tóta á mótaröðinni í sumar og fleytti þessi honum í efsta sæti mótaraðarinnar. Vel gert Tóti og til hamingjuwink!

Annars voru úrslitin nokkuð tvískipt, annarsvegar þeir sem voru með 30 pkt. og meira og restin með talsvert minna.

Binninn og Mótstjórinn voru mættir sólbrúnir og sællegir frá suðurströndum Evrópu. Þar höfðu kapparnir dvalið við æfingar og Carlos-drykkju í +30°C. Þeim var snarlega kippt til jarðar af íslenska sumrinu og boðnir velkomnir heim. Þeir verða væntanlega búnir tempra blóðhitann fyrir næsta mót og mæta sterkir þácool.

 

Úrslit kvöldsins:

SætiNafnPkt.B.banar
1Tóti37 
2Ingólfur33 
3Tommi32 
4Jói31 
5Írunn279
6Haukur276
7Viktor27 
8Eggert26 
9Jón Ari25 
10Halli24 
11Binni18 

 

STAÐAN
SætiNafn7.maí14.maí21.maí28.maí4.jún11.jún18.jún25.jún2.júlSamtals
1Tóti26 34443640384240300
2Hergeir3428364032363046 282
3Haukur283424382828323830280
4Tommi 3638482026225036276
5Jói3032223638 403634268
6Halli323840424038  22252
7Viktor3640 241620 4828212
8Sig.Egill 22282022322432 180
9Tryggvi40  46263426  172
10Hanna38 20 18 3644 156
11Eggert   343418 3026142
12Írunn 262628 24  32136
13Haffi 3030301430   134
14Jón Ari  182630 34 24132
14Raggi L.K. 241622121620  110
16Ingólfur   32    3870
17Ingvar      2840 68
18Hemmi  32 24    56
19Binni       342054
20Óli   50     50
21Jónas     22   22

25. júní...RISAMÓT nr. 8...Grindavík

Sól, sjór, sandur og ljúfur vindur mætti okkur í Tenerife Grindavík í gærkvöldi. Menn skelltu á sig sólarvörn no. 35 og héldu útá frábæran Húsatóftavöll í hitastigi sem heldur mjólk kaldri. Völlurinn kom Tíðindamanni skemmtilega á óvart þar sem langt er síðan hann heimsótti þessa perlu á Suðurnesjum. Flatir voru örugglega á pari við það besta sem finnst hér á landi, flestar rennisléttar og hraðar. Völlurinn er í talsverðri mótun og verið að gera nýjar flatir og sandglompur á nokkrum stöðum og á hann bara eftir að verða flottari þegar fram líða stundir. Þessi völlur verður örugglega heimsóttur síðar, þegar lognið verður á minni ferð en í gærkvöldicool.

Annars kom Tommi sá og sigraði á flottum 34 pkt. Kappinn fékk þrjá fugla á fyrri níu holunum "þar af einn á tíundu" eins og hann orðaði það skemmtilega eftir hring. Líklega má taka undir það þar sem 12 fyrstu holurnar er leiknar fyrir ofan veg og síðan 5 neðan við veg áður en leikið er að skála á 18ándu holunni. Skáli og öll aðstaða er til fyrirmyndar hjá Grindjánunum enda eru þeir að fara halda Íslandsmót 35+ ára þarna um næstu helgi.

Annars var keppnin spennandi um önnur sæti og harðir skrifstofubráðabanar háðir þar sem nokkrar kærur bárust, þó innan tilsetts kærufrests, og var tillit tekið til þeirra allra. 

Binni Stefáns mætti í fyrsta sinn á árinu og væri gaman að sjá meira af honum enda fáir með jafnmjúka og ljúflétta sveiflu en kappinn sá.

Staðan í mótinu er flókin og erfitt að rýna í hana þar sem menn hafa mætt misjafnlega vel. Það vinnur enginn þessa sterku mótaröð í júní og ekki heldur í júlí né ágúst en það er jafnljóst að gott er leggja vel inná kortið fyrir lokamótið í september byrjun. Það segir reynslanwink.

 

Úrslit kvöldsins:

SætiNafnPkt.B.banar
1Tommi34 
2Viktor286
3Hergeir28 
4Hanna28 
5Tóti279
6Ingvar27 
7Haukur26 
8Jói259
9Binni25 
10Sig.Egill24 
11Eggert23 

 

STAÐAN
SætiNafn7.maí14.maí21.maí28.maí4.jún11.jún18.jún25.júnSamtals
1Hergeir3428364032363046282
2Tóti26 344436403842260
3Haukur2834243828283238250
4Tommi 36384820262250240
5Jói3032223638 4036234
6Halli323840424038  230
7Viktor3640 241620 48184
8Sig.Egill 22282022322432180
9Tryggvi40  46263426 172
10Hanna38 20 18 3644156
11Haffi 3030301430  134
12Eggert   343418 30116
13Raggi L.K. 241622121620 110
14Jón Ari  182630 34 108
15Írunn 262628 24  104
16Ingvar      284068
17Hemmi  32 24   56
18Óli   50    50
19Binni       3434
20Ingólfur   32    32
21Jónas     22  22

18. júní...Mót nr. 7...Mosó

Nú þegar HM í fótbolta er farin að rúlla þá var vel við hæfi að 11 leikmenn væru mættir til leiks á sjöunda HOS-mótið í gærkvöldi. Og ekki bara einhverjir ellefu veifiskatar heldur þeir ellefu bestu alveg eins og landsliðið á á HM. Talandi um HM þá voru þeir félagar úr Safamýrinni, Jói og Hergeir, mættir, nánast beint úr flugi frá Rússlandi, marineraðir af rússneskum vodka og kavíar. Það var því viðeigandi að Jói mætti í Argentínu-treyju nr. 10 með vindil alveg eins og Maradonna í stúkunni. Hann sýndi svo glæsilega takta á golfvellinum og sigraði mótið á flottum 37 pkt. og smá forgjafarlækkun í kaupbæti. Hinn Rússinn, H.Elíasson, nýtti svo tækifærið og settist á toppinn í samanlögðu og velti þar með Halla Spánarfara af stalli a.m.k. um tíma. Svo mætti Ingvar Stefáns í fyrsta skiptið á árinu og var gaman að sjá hann á vellinum svona alveg 100%. Skorið hans var uppá 70% og er 97% klárt að hann reyni að bæta það næst þegar hann mætir. Tóti er að koma sterkur inn og er til allslíklegur í FRAMhaldinu. Einnig telur Tíðindamaður að tíðinda sé að vænta frá Ragga L.K. Hann ku víst hafa lagt drævernum eftir 9 holur og 5 pkt. en fékk 17 pkt., án drævers, á seinni 9 holunum. Er Raggi búinn að finna leyniformúluna ? Það kemur í ljós í næsta móti sem verður ekki að verri endanum þar sem splæst verður í RISA-mót og líklega verður leikið á útivelli. Meira um það þegar nær dregur. 

 

Úrslit kvöldsins:

SætiNafnPkt.B.banar
1Jói37 
2Tóti35 
3Hanna33 
4Jón Ari32 
5Haukur30 
6Hergeir299
7Ingvar29 
8Tryggvi28 
9Sig.Egll279
10Tommi27 
11Raggi L.K.22 

 

STAÐAN
SætiNafn7.maí14.maí21.maí28.maí4.jún11.jún18.júnSamtals
1Hergeir34283640323630236
2Halli323840424038 230
3Tóti26 3444364038218
4Haukur28342438282832212
5Jói3032223638 40198
6Tommi 363848202622190
7Tryggvi40  46263426172
8Sig.Egill 222820223224148
9Viktor3640 241620 136
10Haffi 3030301430 134
11Hanna38 20 18 36112
12Raggi L.K. 241622121620110
13Jón Ari  182630 34108
14Írunn 262628 24 104
15Eggert   343418 86
16Hemmi  32 24  56
17Óli   50   50
18Ingólfur   32   32
19Ingvar      2828
20Jónas     22 22

11. júní...Mót nr. 6...Mosó

Það voru 13 spilarar sem létu sjá sig á 6.móti sumarsins sem haldið var í blíðskaparveðri á heimavellinum. Völlurinn var alveg í toppstandi enda hafði hann verið settur upp fyrir mótaröð þá næstbestu dagana á undan svokallaða; Eimskipamótaröð, en eins og allir vita þá er mótaröð þeirra allra bestu leikin á mánudagskvöldum. Og ekki voru áhorfendur sviknir af tilþrifunum sem voru í boði.  T.d. mætti hópur af heldri frúm Mosfellsbæjar á svalirnar á klúbbhúsinu þegar núverandi meistari mótaraðarinnar, TT, sló upphafshög sitt á 10. holu. TT stóðst pressuna með sóma þrátt fyrir talsvert skvaldur í kellingunum. Mátti sjá nokkrar hlaupa beint inn á klósett til að skipta um bleyju eftir að meistarinn sló.

Annars mætti góður gestur til leiks í gærkvöldi. Það var enginn annar en einn af stofnendum mótaraðarinnar, Jónas Björnsson.  Jónas hefur haldið sig frekar til hlés í golfinu eftir að hann flutti norður yfir heiðar og hefur aðallega stundað sundleikfimi í Glerárlaug og þykir víst nokkuð góður í því segja menn sem hafa séð til hans. Hann var þó fljótur að tileinka sér allt sem þarf til að leika á mótaröð þeirra bestu í gærkvöldi og var sérstaklega gaman að sjá að hann hefur ekki gleymt því sem fyrrum klúbbmeistari kenndi honum þ.e. hvernig skal slegið úr sandglompu. Að vísu þurfti hann smá hvatningu frá öðrum meistara sem lofaði honum bjórsopa ef hann næði úr glompunni og inná grín (70 mtr högg á 16. holu). Þetta leysti kappinn eins og ekkert væri og þáði góðan bjór að launum cool

Skor efstu manna var alveg frábært og munu 3 spilara þiggja lækkun á forgjöf að launum. Maður kvöldsins var sigurvegarinn, Tóti, með glæsilega sýningu uppá 39 pkt. Það er vel gert Tóti wink.

 

Úrslit kvöldsins:

SætiNafnPkt.B.banar
1Tóti39 
2Halli379
3Hergeir37 
4Tryggvi32 
5Sig.Egill319
6Haffi31 
7Haukur31 
8Tommi30 
9Írunn28 
10Jónas26 
11Viktor23 
12Eggert22 
13Raggi L.K.18 

 

STAÐAN
SætiNafn7.maí14.maí21.maí28.maí4.jún11.júnSamtals
1Halli323840424038230
2Hergeir342836403236206
3-4Haukur283424382828180
3-4Tóti26 34443640180
5Tommi 3638482026168
6Jói3032223638 158
7Tryggvi40  462634146
8Viktor3640 241620136
9Haffi 3030301430134
10Sig.Egill 2228202232124
11Írunn 262628 24104
12Raggi L.K. 241622121690
13Eggert   34341886
14Hanna38 20 18 76
15Jón Ari  182630 74
16Hemmi  32 24 56
17Óli   50  50
18Ingólfur   32  32
19Jónas     2222

4. júní...Mót nr. 5...Mosó

Það viðraði loks vel til golfleiks á 5. móti sumarsins sem haldið var heimavellinum. Og það viðraði sannarlega vel til loftárasa hjá Halla og Jóa sem létu punktunum rigna yfir skorkortið. Halli spilaði sitt besta golf frá upphafi og notaði aðeins 79 högg í hringnum, frábærlega gert og er hann vel að efsta sætinu kominn. Jói er að vakna og skutlaði í 40 punkta á gallabuxunum. Hann er að íhuga að mæta í rifnum gallabuxum næst til að toppa þetta. Sérlegur útlits- og fataráðgjafi mótaraðarinnar (Hr. Boss) mun gefa sitt álit sitt á því. Talsvert jafnræði var með mönnum og mikið að gera á skrifstofunni á 19ándu. Nýjir menn eru að þoka sér upp töfluna og munu örugglega kynda vel undir efsta manninum sem mætir með spánýja og lægri forgjöf í næsta mót.  Þetta verður spennandi allt til endalaughing.

 

Úrslit kvöldsins:

SætiNafnPkt.B.banar
1Halli41 
2Jói40 
3Tóti35 
4Eggert326
5Hergeir32 
6Jón Ari329
7Haukur32 
8Tryggvi28 
9Hemmi279
10Sig.Egill27 
11Tommi266
12Hanna26 
13Viktor26 
14Haffi23 
15Raggi L.K.19 

 

STAÐAN
SætiNafn7.maí14.maí21.maí28.maí4.júnSamtals
1Halli3238404240192
2Hergeir3428364032170
3Jói3032223638158
4Haukur2834243828152
5Tommi 36384820142
6Tóti26 344436140
7Viktor3640 2416116
8Tryggvi40  4626112
9Haffi 30303014104
10Sig.Egill 2228202292
11Írunn 262628 80
12Hanna38 20 1876
13-14Raggi L.K. 2416221274
13-14Jón Ari  18263074
15Eggert   343468
16Hemmi  32 2456
17Óli   50 50
18Ingólfur   32 32

28. maí...RISA-mót nr. 4...Akranes

Það voru 16 mættir í fjórða mót "sumarsins" sem haldið var á Akranesi í gærkvöldi. Veðrið lofaði góðu á fyrri 9 holunum en svo tók að blása og kólna verulega. Menn voru því nokkuð veðurbarðir þegar mætt var á 19ándu til uppgjörs. Að sjálfsögðu var splæst í RISA-mót þar sem þetta var fyrsti útivöllur sumarsins og mótastjóri hefur alltaf haft fyrir reglu að halda a.m.k. eitt risamót í mánuði. Það var því ekki seinna að vænna þar sem þessi blautasti maí frá upphafi mælinga er að renna sitt skeið...og megi hann fara norður (aðallega) og niður þ.e. maí-mánuðurinn 2018yell.

Menn létu þó ekki veðrið aftra sér frá góðu skori og sumir bara allgóðu eins og t.d. Óli formaður á glæsilegum 37 pkt. og smálækkun á forgjöf. Tommi er líka að spila vel þessa dagana og virðast Skotalandsæfingaferðir koma sterkar inn í þessar aðstæður.

Á næsta mánudag verður kominn júní og tíðindamaðurinn sver það við skegg spámannsins að leikið verður við a.m.k. +10° á Celcius kvarða, fjandinn hafi það cool.

 

Úrslit kvöldsins:

SætiNafnPkt.B.banar
1Óli37 
2Tommi35 
3Tryggvi33síðustu 6
4Tóti33 
5Halli31 
6Hergeir30 
7Haukur29 
8Jói28 
9Eggert26seinni 9
10Ingólfur26 
11Haffi25 
12Írunn24 
13Jón Ari20 
14Viktor1718ánda
15Raggi L.K.17 
16Sig.Egill15 

 

STAÐAN
SætiNafn7.maí14.maí21.maí28.maíSamtals
1Halli32384042152
2Hergeir34283640138
3Haukur28342438124
4Tommi 363848122
5Jói30322236120
6Tóti26 3444104
7Viktor3640 24100
8Haffi 30303090
9Tryggvi40  4686
10Írunn 26262880
11Sig.Egill 22282070
12Raggi L.K. 24162262
13Hanna38 20 58
14Óli   5050
15Jón Ari  182644
16Eggert   3434
17-18Hemmi  32 32
17-18Ingólfur   3232

21. maí...Mót nr. 3...Mosó

Það voru 13 mættir í þriðja mót sumarsins sem leikið var í Sunny Mosó í gærkvöldi. Loksins viðraði sæmilega til golfiðkunar og fór það vel í nokkra leikmenn en eitthvað síður í aðra, séð útfrá punktaskori.

Gamall HAREN-meistari, Jón Ari gleðipinni, mætti til leiks eftir ca. 2 ára fjarveru. Voru þá sameinaðir á ný; Tommi og Jenni. Búast má þá við nokkrum hröðum eltingarleikjum í sumarcool.  Einnig mætti í fyrsta sinn á árinu Hemmi Hauks, körfuboltasnillingur, og er til mikils vænst af honum enda ekki óvanur að plassera boltum í göt. Að sögn eftir hring sagði Hemmi, aðalmálið í sumar væri að vinna mini-túrinn á Laugarvatni en sá túr samanstendur af, honum, gufurúgbrauðsdrengnum Hergeiri og Þjálfa (Sig.Egill). 

Maður gærkvöldsins var mótastjórinn sjálfur, Halli, með flott skor og er til alls vís með nýju kylfurnar.  Alveg sjóðheitur í sumarkuldanum.  Tommi og Hergeir háðu æsilegan skrifstofubráðabana á 19ándu holu þar sem Tommi hafði það á betra skori á 18.holu, jafnara verður það ekkilaughing.

 

Úrslit kvöldsins:

SætiNafnPkt.B.banar
1Halli36 
2Tommi3318ánda
3Hergeir33 
4Tóti316
5Hemmi31 
6Haffi28 
7Sig.Egill27 
8Írunn259
9Haukur25 
10Jói25 
11Hanna24 
12Jón Ari21 
13Raggi L.K.18 

 

STAÐAN
SætiNafn7.maí14.maí21.maíSamtals
1Halli323840110
2Hergeir34283698
3Haukur28342486
4Jói30322284
5Viktor3640 76
6Tommi 363874
7-8Haffi 303060
7-8Tóti26 3460
9Hanna38 2058
10Írunn 262652
11Sig.Egill 222850
12-13Tryggvi40  40
12-13Raggi L.K. 241640
14Hemmi  3232
15Jón Ari  1818

14. maí...Mót nr. 2...Mosó

Annað mót ársins fór fram á Hlíðavelli í gærkvöldi. 10 mættir og þar af 5 í fyrsta sinn á árinu. Hægt og rólega birtast menn á vellinum, svona mis-rykugir eftir veturinn. Sumir hafa ákveðið að reykspóla af stað en aðrir halda aftur af sér og bíða eftir rétta tækifærinu til að springa út.

Eftir að hafa fengið ískalda sturtu af fersku regni/hagli á fyrstu 2-3 holunum þá lagaðist veðrið og var bara skaplegt fram eftir kvöldi, reyndar í kaldara lagi. Menn voru svo rétt komnir inn í skála þegar næsta gusa kom.

Menn kvöldsins voru Viktor og Halli og má segja þeir hafi verið í sérflokki og skiluðu báðir inn flottu skori. Það bar til tíðinda að Halli náði 8 pkt. á Nesinu þrátt fyrir að hafa strikað helming holanna út þ.e. 2 af 4. Örn á 13. holu og fugl á 15. holu sáu til þess. Þeir sem sáu til sögðu engu hafi munað að örninn hafi orðið að Albatros (3 undir pari)...það hefði verið eitthvaðcool.

Þó ekki sé hægt að ráða mikið í stöðuna þá samt má segja að títtnefndir, Viktor og Halli, hafi lagt ágætlega í púkkið eftir fyrstu tvö mótin.

Næsta mót verður haldið næsta mánudag en þá er annar í Hvítasunnu og spurning hvort mótastjóri geri eitthvað spes í tilefni dagsinsinnocent.

 

Uppgjör kvöldsins:

ÚRSLIT
SætiNafnPkt.B.banar
1Viktor36 
2Halli35 
3Tommi29 
4Haukur289
5Jói28 
6Haffi25 
7Hergeir239
8Írunn23 
9Raggi L.K.21 
10Sig.Egill15 

 

Staðan:

STAÐAN
SætiNafn7.maí14.maíSamtals
1Viktor364076
2Halli323870
3-5Hergeir342862
3-5Jói303262
3-5Haukur283462
6Tryggvi40 40
7Hanna38 38
8Tommi 3636
9Haffi 3030
10-11Tóti26 26
10-11Írunn 2626
12Raggi L.K. 2424
13Sig.Egill 2222

7. maí...Mót nr. 1...Mosó

Það var vel við hæfi að fyrstu kríur sumarsins sæjust á Hlíðavelli á sama tíma og HOS-2018 lagði af stað s.l. mánudagskvöld. Það voru þó aðeins 8 jaxlar sem létu sjá sig enda aðstæður erfiðar; kalt, blautt og vindur. Mótstjóri tók skynsamlega ákvörðun og skar mótið niður í 14 holur og var því leik á Blikastaðanesi sleppt. Menn reyndu að púsla saman einhverju skori og á endanum voru flestir á svipuðu róli og þurfti bráðabana til að útkljá frá þriðja sæti niður í það sjötta. Maður dagsins var enginn annar en sigurvegari síðasta árs; Tryggvi Tryggva. Hann náði að skrapa  saman 23 punktum sem dugði honum til sigurs, Hanna fylgdi þó fast á eftir með punkti minna.  TT var flottur á fyrsta teig með spánýjan dræver og var ekkert að velta því fyrir sér að hausinn á drævernum væri enn i plastinu þegar hann sló sitt fyrsta högg, taldi það bara betra þar sem mikil rigning væri og algjör óþarfi að bleyta nýju kylfunasmile. Þessi taktík dugði TT til sigurs og ljóst að hann mætir firnasterkur í titilvörnina.  Allir voru svo kátir í lokin á 19ándu þegar skorið var gert upp. Hlökkum til næsta mánudags og vonum að þá verði farið að glitta meira í sumarið. Allavegana lítur völlurinn vel út og verður í flottu standi enda dugar ekkert minna fyrir mótaröð þeirra bestu wink.  

 

Uppgjör kvöldsins:

ÚRSLIT
SætiNafnPkt.B.banar
1Tryggvi23 
2Hanna22 
3Viktor19síð. 9
4Hergeir19 
5Halli19 
6Jói19 
7Haukur18 
8Tóti17 

 

Staðan:

STAÐAN 2018
SætiNafn7.maí
1Tryggvi40
2Hanna38
3Viktor36
4Hergeir34
5Halli32
6Jói30
7Haukur28
8Tóti26

Mánudagsmótaröðin leggur af stað. Fyrirkomulagið 2018.

Gleðilegt sumar öllsömul !

Þá rennur HOS-lestin af stað enn eitt árið. Gamlir rebbar í bland við einhverja nýja birtast á brautarpallinum.  Allir ætla sér jakkann og bikarinn í haust en eins og alltaf er aðeins einn útvalinn.  Núverandi meistari, TT, hefur átt annansaman tíma frá því hann sigraði s.l. haust við allskonar uppákomur sem fylgir heiðrinum, framkoma í spjallþáttum og viðtöl í glanstímaritum er eitthvað sem sigurvegarinn verður að þola.

Fyrirkomulag sumarsins verður með sama sniði og áður utan þess að nú munu 11 bestu mótin gilda í stað 12 áður.  Hæsta forgjöf sem gefin verður er 36.

Skilmálarnir eru því þessir:

40 stig verða í boði í fyrir sigurvegara og síðan með 2ja stiga millibili niður fyrir hina.

Risamót gefur síðan 50 stig með 2ja stiga millibili.

11 bestu mótin gilda og síðan eins og alltaf bætast stigin í lokamótinu við það.

Hæsta forgjöf gefin er 36.

Ef menn eru jafnir er heðfbundinn skrifstofubráðabani leikin á  19ándu holu.

Lokamótið verður eigi síðar en Laugardaginn 8. september.

 

Góða skemmtun og munið eftir því "að slá í gegn" !


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 68454

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband